Veðráttan - 02.12.1943, Page 2
Ársyfirlit
Veðráttan
1943
Snjókoma var síðast 22. maí (49 stöðvar), er það degi síðar en 10 ára
meðaltal.
Frost var síðast 3 júní (35 slöðvar), um ll2 mánuði síðar en 10 ára meðaltal.
Sumarið (júní—sept.) var kalt og óhagstætt, einkum norðan lands. Gróðri
fór seint fram. Heyskapartíð var slæm á Norður- og Norðausturlandi og
hröktust þar hey. Sunnan Iands og vestan var tíð hagstæðari við heyvinnu.
Heyfengur var yfirleitt lítill og uppskera úr görðum rýr. Stundum snjóaði norð-
an lands. Hiti var 0 2° undir meðallagi. Úrkoma var 27 °/o meiri en í meðal-
lagi, víðast um eða yfir 50 °/o umfrarn meðallag norðan lands, en sums staðar
sunnan lands í tæpu meðallagi. Sólskin í Reykjavík var 19.6 klst. lengur en
meðaltal 20 undanfarinna sumra, en á Akureyri 119.8 klst. skemur en meðal-
tal 15 sumra.
Frostlaust var samfleytt um 13 vikur (meðaltal 35 stöðva). Tíu ára meðaltal
17 stöðva er tæpar 18 vikur.
Snjór kom ekki úr lofti 16 vikur (meðaltal 49 stöðva). Tíu ára meðaltal
23 stöðva er um 19 vikur. Lengsti tími, sem snjór kom ekki úr lofti, var 21
vika á Hólum, en skemmsti 6 vikur á Horni. Frá því síðast var alhvítt á vori
þar til fyrst varð alhvítt að hausti, liðu um 22 vikur (meðaltal 47 stöðva),
lengst 39 vikur (í Papey), en skemmst 10 vikur (á Horni). Tíu ára meðaltal
23 stöðva er rúmar 25 vikur.
Kýr. Beitartíminn var að meðaltali tæpar 17 vikur. Tíu ára meðaltal 15
stöðva er um 20 vikur. Kýr voru gjafarlausar um 14 vikur. Tíu ára meðaltal
17 stöðva er tæpar 16 vikur.
Ær lágu úti 26 vikur (meðaltal 17 stöðva). Tíu ára meðaltal 16 stöðva
er um 29 vikur.
Sláitur stóð yfir í níu vikur (meðaltal 14 sföðva). Heyskapartíminn var að
meðaltali um 11 vikur, og er það í tæpu meðallagi.
Waxtartími kartaftna var 16 vikur (meðaltal 9 stöðva). Tíu ára meðaltal
14 stöðva er tæpar 18 vikur.
Haustið (okt.—nóv.) var frekar óhagstætt og umhleypingasamt. Hiti var
um 0.7° yfir meðallagi, en úrkoma 21 °/o umfram meðallag. Snjólag var minna
en venjulega og hagar yfirleitt góðir.
Lömb. Byrjað var að hýsa þau frá 28. okt. til 1 jan., að meðaltali 30 nóv.
(20 stöðvar), er það um viku síðar en 10 ára meðaltal. Lömbum var kennt
át frá 31. okt. til 3. jan., að meðaltali 9. des. (19 stöðvar), er það rúmum V2
mánuði síðar en 10 ára meðaltal. Fyrstu innistöðudagar voru 31. okt. til 11.
jan., að meðaltali 16. des. (18 stöðvar). Er það tæplega V2 mánuði síðar en
10 ára meðaltal.
Ær. Byrjað var að hýsa þær frá 31. okt. til 3. febr., að meðaltali 4. des.
(22 stöðvar), er það 3 vikum síðar en 10 ára meðaltal. Byrjað var að gs?fa
þeim frá 31. okt. til 3. febr., að meðaltali 10. des, er það 10 dögum síðar
en 10 ára meðaltal.
Hross. Byrjað var að gefa þeim frá 11. okt. til 31. jan, að meðaltali 15.
des. (14 stöðvar).
Frost var fyrst 7. sept. (meðaltal 34 stöðva). Tíu ára meðaltal 17 stöðva
er 22. sept.
Snjóar fyrst 10. sept. (meðaltal 49 stöðva). Tíu ára meðaltal 23 stöðva
er 22. sept.
Jörð var fyrst alhvít 5. okt. (meðaltal 44 stöðva). Tíu ára meðaltal 23
stöðva er 27. okt.
(50)