Veðráttan - 02.12.1943, Qupperneq 3
1943
VSeðráttan
Ársyfirlit
Jarðskjálftar. Mælarnir í Reykjavík sýndu alls 44 jarðhræringar á árinu.
Þar af áttu 26 upptök á íslandi eða í grennd við landið, en tvær voru komnar
úr 1100 — 1200 km fjarlægð. Kippurinn sem varð 19. marz mun hafa átt upp-
tök einhvers staðar á norðanverðu Atlantshafi. Annarra hræringa er nánar getið
í mánaðarblöðum Veðráttunnar. Þann 29. jan. fannst jarðskjálftakippur í Hrísey,
en hans varð ekki vart á mælum í Reykjavík.
Veðurstofan.
Sú breyting varð á starfsfólki Veðurstofunnar, að Guðrún Markúsdóftir
hætfi störfum í lok maímánaðar, en við starfi hennar tók Ingibjörg Þorkels-
dóttir, stúdent. Frá 1. sept. vann Kristján ]ónsson á Veðurstofunni í veikinda-
forföllum Kristjáns Hoffmanns loftskeytamanns. Haldið var áfram útgáfu mán-
aðarblaðsins Veðráttan. Veðurspár voru sendar símleiðis um 70 símastöðvum
til birtingar tvisvar á dag.
Veðurathugunarstöðvar.
Þ. 1. febr. hóf Kristján Guðnason, ráðsmaður, veðurafhuganir á Kolviðar-
hóli og sendir Veðurstofunni skýrslur mánaðarlega.
Þ. 4. febr. hóf Sigríður ]ónsdóttir, stöðvarstjóri, flugveðurathuganir á Egils-
stöðum á Völlum og sendir Veðurstofunni skeyti tvisvar á dag.
Þ. 15. marz hætti Karl Ásgeirsson, símritari, veðurathugunum á Akureyri.
Voru áhöldin þá flutt í húsnæði lögreglunnar við Smáragötu og heldur lög-
regla Akureyrar veðurathugunum þar áfram. Ábyrgðarmaður er Jón Benedikts-
son, yfirlögregluþjónn.
Þ. 6 apríl hófust aflur veðurathuganir á Siglunesi, athugunarmaður jón
Þórðarson, vitavörður, og sendir hann Veðurstofunni skeyti þrisvar á dag.
Þ. 15. maí byrjuðu stöðvarnar Hraun á Skaga, Mælifell, Siglunes og Síðu-
múli að senda veðurskeyti kl. 7 ísl. sumartími vegna flugferða innan lands.
Þ. 5. júlí hóf Þorvaldur Böðvarsson, bóndi, flugveðurathuganir á Þór-
oddsstöðum í V.-Hún og sendi Veðurstofunni skeyti þrisvar á dag.
Þ. 22. júlí hóf Kristján Guðnason, bóndi, flugveðurathuganir í Svartárkoti
í Bárðardal og sendi Veðurstofunni skeyti tvisvar á dag.
Þ. 23. júlí hóf Sigurbergur Dagfinnsson, stöðvarstjóri, flugveðurathuganir
í Haukatungu í Hnappadalssýslu og sendi Veðurstofunni skeyti þrisvar á dag.
Þ. 1. okt. hætti Kristján^ Eggertsson, kaupfélagsstjóri, veðurathugunum í
Grímsey, en ungfrú Sigrún Óladóttir heldur þeim áfram. Frá því um 25.
júní til 8. okt. voru veðurathugunaráhöldin á bænum Sandvík í Grímsey
(66° 32’ N, 18° 01’ W, hæð 17 m).
Þ. 16 okt. hættu eftirtaldar stöðvar að senda skeyti þau, sem send voru
kl. 7 að morgni vegna innanlandsflugs: Haukatunga, Hraun á Skaga, Mælifell,
Síðumúli, Siglunes, Svartárkot og Þóroddsstaðir.
Þ. 1. nóv. hóf Pétur Gíslason, veðurathugunarmaður á Eyrarbakka, send-
ingu veðurskeyta og sendir þau tvisvar á dag.
(51)