Veðráttan

Ukioqatigiit

Veðráttan - 01.10.1949, Qupperneq 1

Veðráttan - 01.10.1949, Qupperneq 1
VEÐRÁTTAN 1949 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI Október Tíðarfarid var yfirleitt hagstætt til haustverka. Heyfengur og uppskera garð- ávaxta varð víða rýr. Bátar við Faxaflóa og suðurströndina öfluðu vel, en annars staðar á landinu var fremur sjaldan róið. Vegurinn milli Norður- og Austurlands varð ófær undir mánaðarlokin. Þ. 1. var hæg suðlæg átt og fremur hlýtt, en alldjúp lægð nálgaðist landið suð- vestan úr hafi. Þ. 2. fór lægðin yfir landið til austnorðausturs og olli veðrabrigðum. Víða var hvasst (Dt. N 10) og allmikil úrkoma um allt land. Snjókoma var víða norðan lands og vestan. Þ. 3.—8. stóð loftvog hátt. Hægviðri var og breytileg átt. Fyrstu þrjá dagana var freinur kalt, hiti 1—2° undir meðallagi, en síðan hlýnaði nokkuð, og varð hiti þá nálægt meðallagi. Þ. 9.—15. barst suðrænt loft að landinu, og var hlýtt um allt land, hiti að meðal- tali 2—5° yfir meðallagi. Tiltölulega hlýjasti dagur mánaðarins var þ. 11. (Rvk. 7° yfir meðallagi). Hægfara lægðir komu suðvestan úr hafi. Lengst af var vindur fremur hægur, en sums staðar varð þó hvasst (þ. 14. Vm. E 10). Þ. 16.—26. voru vindar tíðast á milli norðurs og austurs. Framan af var víðáttu- mikið lægðasvæði fyrir sunnan og austan land, en síðustu dagana var hæðarhryggur yfir landinu. Þ. 16.—19. var fremur kalt og víða snjókoma á norðan- og vestanverðu landinu, en lítið cútt hlýrra en í meðallagi sunnan lands og austan. Næstu tvo daga var hiti nokkuð yfir meðallagi um allt land. Þ. 21. kólnaði í veðri, og hélzt kalt til þ. 26. Flesta þessa daga var einhver snjókoma á Norðausturlandi. Köldustu dagar inánaðarins voru þ. 24. og 25. (Rvk. 7° til 8 undir meðallagi). Þ. 27.—31. voru lægðir fyrir suðvestan land. Barst suðrænt loft vfir landið, og fór hlýnandi. Síðustu fjóra daga mánaðarins var hiti 1—3° yfir meðallagi. Sums staðar var hvasst (þ. 28. Vm. E 11, þ. 29. Vm. E 10, þ. 31. Vm. E 11 og SSE 10). Loftvœgið var 1.7 mb undir meðallagi, frá 1.0 mb í Bolungarvík að 2.2 mb í Vest- mannaeyjum og á Reykjanesi. Hæst stóð loftvog á Raufarhöfn 1026.4 mb þ. 5. kl. 8—10 og lægst á Reykjanesi 965.7 mb þ. 15. kl. 5. Hitinn var 0.5° yfir meðallagi. Hlýjast var að tiltölu um iniðbik Vestur- og Norðurlands og við suðurströndina, en þar var hitinn um 1° yfir meðallagi. Á Norð- austurlandi var hitinn víða um eða lítið eitt undir meðallagi. Kaldast var í Möðrudal. Þar var tæpri 1° kaldara en í meðalári. Sjávarhitinn var 0.6° yfir meðallagi. Hlýjast var í sjó við Fagradal, 2.5° yfir ineðallagi, en kaldast við Kjörvog, 0.3° kaldara en venja er til. Úrkoman mældist um 30% undir meðallagi. Úrkoman var alls staðar ininni en í meðalárferði, nema við norðurströndina, en þar var hún í rösku meðallagi. Miðað við meðallag mældist mest úrkoma á Húsavík, tæplega Vio umfram meðalúrkomu, en minnst á Akureyri og í Reykjavík 2/6 af meðalúrkomu. Úrkomudagar voru færri en í meðallagi um allan vesturhluta landsins. Um austanvert landið var fjöldi þeirra (37)

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.