Veðráttan - 01.01.1953, Page 4
Janúar Veðráttan 1953
Bjart sólskin (klst.)- Duration of bright sunshine (hours).
Klnkkan Time 3 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 Samtals Total Vik Deviation
Iteykjavík 0.9 1.3 2.4 2.9 2.7 0.4 ■■ 10.6 -7.9 -43%
Akureyri 0.1 1.3 3.2 2.0 0.2 ” » 6.8 0.2 3%
Vikið er miðað við meðaltal áranna 1930—1949. Normal period: 1930—191^9.
Meðalhiti C°. Mean temperature.
Klukkan Time 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 22 24 Mcðaltal Mean
Reykjavík 0.8 0.7 0.5 0.5 0.4 0.7 0.9 0.5 0.2 0.3 0.5 0.6 0.6
Bolungarvík -1.1 -0.8 -0.7 -0.9 -0.9 -0.9 -0.8 -0.7 -0.8 -1.0 -1.2 -1.1 -0.9
Akureyri -0.5 -0.6 -0.5 -0.2 -0.2 0.2 0.1 -0.4 -0.7 -0.7 -0.8 -0.7 -0.4
ströndum fram var hitinn tæpu 1° hærri en í meðalári, en annars staðar var 1°—2°
hlýrra en venja er til.
Sjávarhitinn við strendur landsins var 1.1° yfir meðallagi. Hlýjast var að til-
tölu við Fagradal, 2.1° yfir meðallagi, en kaldast við Reykjavík, Stykkishólm og
Vestmannaeyjar, 0.6° yfir meðallagi. Sjávarhiti við Hraun á Skaga var 1.7° og
við Grindavík 5.3°.
Úrkoman á öllu landinu var rösklega Vi meiri en í meðalári. Úrkoman var um-
fram meðallag um vestanvert landið. í Kvígindisdal mældist tiltölulega mest úr-
komumagn í mánuðinum, eða ríflega tvöfalt meðallag. Úrkoman var minni en í
meðalári um austanvert landið og minnst að tiltölu á Teigarhomi, % af meðal-
úrkomu. Úrkomudagar voru færri en í meðalári á tveimur stöðvum á Suðaustur-
landi og í Gunnhildargerði, en þar voru þeir fæstir að tiltölu, 11 færri en venja er
til. Annars staðar á landinu voru úrkomudagar víðast fleiri en í meðalári. Flestir
voru þeir að tiltölu á Raufarhöfn, 13 umfram meðallag. Úrkoman í Stóra-Botni
mældist 229.0 mm, á Hrauni á Skaga 58.1 mm, á Seyðisfirði 31.9 mm, á Eyrar-
bakka 203.0 mm og í Grindavík 88.7 mm.
Þoka var venju fremur tíð um suðaustanvert landið. Annars staðar var hún
yfirleitt fátíðari en í meðalári. Þ. 10. var þoka á 10 stöðvum, þrjá daga var þoka
á 4—6 stöðvum og 14 daga á 1—3 stöðvum.
Vindar milli suðvesturs og norðvesturs voru tíðari en venja er til, en aðrar
áttir yfirleitt tiltölulega fátíðar. Logn var sjaldnar en í meðalári og veðurhæð í
meðallagi. Stormdagar voru yfirleitt færri en venja er. Þ. 25. var stormur á 17
stöðvum. Þ. 11., 16. og 19. var stormur á 9 stöðvum. 18 daga aðra var stormur á
1—4 stöðvum.
Snjólag var 60%. Snjór var víðast minni en í meðalári.
Hagar voru 79%. Þeir voru yfirleitt taldir betri en venja er.
Sólskin mældist 10 daga í Reykjavík, mest á dag 2.3 klst. þ. 30. Á Akureyri
mældist sól 6 daga, mest á dag 3.3 klst. þ. 29.
Þrumur heyrðust á Fagurhólsmýri og Kirkjubæjarklaustri þ. 11.
Skaöar af völdum veöurs. Þ. 8. strandaði sænska skipið Bláfell í Súgandafirði.
Skipið náðist út aftur. Þ. 15. strandaði v/b Kópur við Siglunes. Áhöfninni var
bjargað og báturinn náðist síðar út mikið skemmdur. Þ. 18. lentu f jórir ísfirðing-
ar í snjóflóði, en engan þeirra sakaði. Þ. 25. féllu aurskriður á veginn í Hvalfirði.
Jarðskjálftar. Þ. 6. kl. 19 fannst allsnarpur jarðskjálftakippur á Tjömesi norð-
an Húsavíkur.
(4)