Veðráttan - 02.12.1957, Blaðsíða 1
VEBRÁTTAN 1957
ÁRSYFIRLIT SAMIÐ A VEÐURSTOFUYYI
Tíðarfarsyfirlit.
Tíöarfar var yfirleitt hagstætt, nema fyrstu þrjá mánuöina.
Loftvœgi var 1.3 mb yfir meöallagi, frá 0.5 mb á Dalatanga að 1.9 mb á Eyrarbakka.
Lægsta loftvægi ársins mældist 938.6 mb i Vestmannaeyjum 28. janúar kl. 6 og það hæsta
þ. 15. sama mánaðar kl. 7—9 á sama stað, 1043.2 mb.
Meöalhiti ársins var 0.7° yfir meðallagi. Hlýjast var að tiltölu með ströndum fram um
norðanvert landið. Við vestur- og suðvesturströndina var árssveifla hitans 13°—15°, en í
útsveitum í öðrum landshlutum var hún 8°—11°. 1 innsveitum var árssveiflan 13°—17°.
Febrúar var kaldasti mánuður ársins.
Sjávarhiti við strendur landsins var 0.2° yfir meðallagi.
Úrkoma var tæplega ylfí minni en í meðalári. Mest var ársúrkoman í Vík í Mýrdal, 2259
mm, og er það meðlaúrkoma á þeim stað. Mest að tiltölu mældist úrkoman á Húsavik,
35% umfram meðallag, en minnst á Dalatanga, aðeins helmingur af þvi, sem venja er til.
Ársúrkoma í Kalmanstungu mældist 865 mm, í Forsæludal 368 mm, á Mýri 256 mm, á
Jaðri 1190 mm og í Grindavík 1037 mm. Mesta sólarhringsúrkoma mældist 24. október í
Vík í Mýrdal, 138.5 mm, og sama morgun mældust 120.0 mm á Loftsölum. Alls mældust 18
sinnum 50.0 mm eða meira á einum sólarhring á ýmsum stöðvum. Úrkomudagar voru
fleiri en í meðalári um allt norðanvert landið, en viðast færri en venja er til sunnan lands.
Stormar. 1 Vestmannaeyjum voru 40 stormdagar umfram meðallag, en á Suðureyri
voru þeir 10 færri en í meðalári. Á öðrum stöðvum, sem meðaltöl hafa, var fjöldi storm-
daga nálægt meðallagi.
Sólskin mældist 1401 klst. i Reykjavík, og eru það 166 stundir umfram meðallag. Á
Akureyri voru 966 sólskinsstundir eða 90 fleiri en venja er til. Á Hallormsstað skein sól
í 1239 stundir.
Veturinn (des. 1956—marz 1957) var óhagstæður. Framan af var stormasamt, og síðari
hlutann var víða óvenju snjóþungt. Hiti var 1.1° yfir meðallagi. Svalast var að tiltölu um
suðvestanvert landið, þar var hiti víðast frá meðallagi að 1° yfir því. Annars staðar á
landinu var yfirleitt 1°—2° hlýrra en venja er til. Hiti var 1°—6° undir meðallagi í 33
daga, í meðallagi 15 daga og yfir meðallagi í 73 daga, 1°—4° í 59 daga og 5°—8° i 14 daga.
Úrkoman var í tæpu meðallagi á öllu landinu. Vestan lands og um suðaustanvert landið
var heldur minni úrkoma en í meðalári. Annars staðar mældist meiri úrkoma en venja er
til. 1 desember og janúar voru hagar víða betri en í meðalári, tvo síðari mánuðina voru
þeir lélegir.
Vorið (apríl—maí) var hagstætt. Hiti var 1.8° yfir meðallagi og úrkoma % umfram
meðallag. Norðan lands var yfirleitt rösklega 2° hlýrra en í meðalári, en sunnan lands
var hitinn 1°—2° yfir meðallagi. Hiti var í meðallagi í 13 daga. 1 28 daga var 1°—4° hlýrra
en venja er til, og 9 daga var hitinn 5°—7° yfir meðallagi. 111 daga var kaldara en í meðal-
ári, 1°—5°. Úrkoma var víðast meiri en í meðalári. Mest var hún sunnan lands, þar mæld-
ist meira en tvöföld meðalúrkoma á 3 stöðvum.
Sumarið (júní—sept.) var hagstætt. Hiti var 0.3° yfir meðallagi. Á Austur- og Suð-
austurlandi var víða heldur svalara en venja er til, en í öðrum héruðum var yfirleitt
hlýrra en í meðalári. Á 26 stöðvum af 38, sem meðaltöl hafa, var vik hitans frá meðallagi
innan við 1°. Hiti var í meðallagi í 22 daga, yfir meðallagi í 61 dag og undir því í 39 daga.
Aldrei var heitara en 3° yfir meðallagi og ekki kaldara en 4° undir því. Úrkoma var %
minni en venja er til. Hún var alls staðar innan við meðallag. Sólskin mældist 166 stund-
um lengur en í meðalári í Reykjavik og 118 stundum lengur en venja er til á Akureyri.
Heyfengur var góður og einnig uppskera úr görðum.
Haustið (okt.—nóv.) var hagstætt. Hiti var 1.2° yfir meðallagi. Norðan lands var yfir-
leitt 1°—2° hlýrra en venja er til, en í öðrum héruðum var hitinn viðast %°—1%° yfir
meðallagi. Sums staðar í innsveitum var þó aðeins % ° hlýrra en í meðalári. 110 daga var
hiti i meðallagi, 26 daga var 1°—4° hlýrra en venja er til, og í 10 daga var hitinn 5°—7°
yfir meðallagi. 115 daga var kaldara en í meðalári, 1°—4°. Úrkoma var tæplega 10% um-
fram meðallag. Á Austurlandi og nyrzt á Vestfjörðum var úrkoman innan við meðallag,
en annars staðar á landinu var hún í meðallagi eða yfir þvi.
(97)