Veðráttan - 01.04.1959, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1959
MÁNAVAKYFIItLIT SAMIB A VEÖURSTOFUIVNI
Apríl
TíÖarfar var írekar óhagstætt i þessum mánuði. Gróður, sem aðeins vottaði fyrir um
mánaðamótin marz—apríl, sölnaði, og víða var sauðfé á gjöf allan mánuðinn. Austan
iands voru fjallvegir oft tepptir vegna snjóa, en i öðrum landshlutum voru vegir yfirleitt
færir. Gæftir voru góðar.
Fyrstu tvo daga mánaðarins var lægð yfir Grænlandshafi og suðvestlæg átt með snjó-
eða slydduéljum sunnan og vestan lands. Þ. 3. og 5. fóru krappar lægðir austur yfir
landið, þá daga var vindátt breytileg og úrkoma um allt land. Rigning var á Suðaustur-
landi, en snjókoma í öðrum héruðum. Þ. 4. var aftur á móti norðan- og norðaustanátt
með snjókomu á annesjum norðan lands, en annars staðar var að mestu þurrt. Hitastig
þessa fimm daga var frá meðallagi að 2° yfir því.
Næstu 13 daga, þ. 6.—18., var fremur kalt í veðri. Þ. 6.—7. og 13.—14. var hiti 2°—5°
lægri en venja er til, og aðra daga var hann frá 1° undir meðallagi að 1° yfir þvi. Há-
þrýstisvæði var yfir Grænlandi og síðar norðan við land, en lægðir suður og suðaustur
í hafi. Fyrstu tvo dagana var norðan hvassviðri og hríð á Vestfjörðum, Norður- og
Norðausturlandi, siðan lygndi um hríð, en dagana 14.—16. var aftur norðan og norð-
austan hvassviðri. Eftir þ. 10. var skýjað, en úrkomulitið um norðan- og austanvert
landið. I öðrum landshlutum var þurrt veður og oft léttskýjað.
Dagana 19.—23. var hæg suðaustlæg átt og rigning viðast hvar. Norðan lands var
úrkomulitið, en sunnan lands og vestan var oft töluverð rigning. Þ. 19.—20. var hiti 3°
hærri en venja er til, en þ. 21.—23. var 4° hlýrra en i meðalári, Voru það hjýjustu dagar
mánaðarins. Alla þessa daga voru lægðir fyrir suðvestan land.
Næstu fimm daga var vindátt milli norðurs og austurs, og kólnaði í veðri. Þ. 26. var
hitastig 6° iægra en venja er til, og var það kaldasti dagur mánaðarins að tiltölu. Þ. 24.
var hiti í meðallagi, en þ. 25., 27. og 28. var 4°—5° kaldara en i meðalári. Fyrstu tvo
dagana þokaðist iægð austur á bóginn fyrir sunnan land, var þá allhvasst og nokkur
úrkoma austan lands og norðan. Á Suðausturlandi var rigning, en snjókoma eða slydda
annars staðar á þessu svæði. Seinni þrjá dagana var hæðarhryggur yfir landinu og
lygnara. Norðan lands var lítils háttar snjókoma á annesjum, en þurrt og víða bjart
í öðrum landshlutum.
Síðustu tvo daga mánaðarins hlýnaði í veðri, hitinn var 2“ lægri en venja er til þ. 29.,
en í réttu meðallagi síðasta dag mánaðarins. Var suðaustlæg og austlæg átt og lítils
háttar snjókoma eða slydda sunnan lands þessa daga. Fyrir sunnan land var lægð á
hreyfingu austur eftir.
Loftvœgi var 1.9 mb lægra en venja er til í þessum mánuði. Lægst var það að til-
tölu í Vestmannaeyjum, 3.6 mb lægra en í meðalári, en hæst á Galtarvita, 0.2 mb undir
meðallagi. Hæst stóð loftvog á Raufarhöfn þ. 17. kl. 21—23, 1037.7 mb, en lægst á Hól-
um í Hornafirði þ. 5. kl. 18—21, 971.6 mb.
Hiti var 0.4° lægri en meðallag. 1 innsveitum var yfirleitt %°—1%° kaldara en
venja er til, en við strendurnar var vik hitans frá meðallagi víðast innan við %°.
(25)