Veðráttan - 01.04.1959, Page 2
Apríl
VEÐRÁTTAN
1959
Úrkoman á öllu landinu var 80%
af meðalúrkomu. Minnst var hún að
tiltölu á Austfjörðum og Vestfjörð-
um eða um það bil helmingur þess,
sem venja er til, en í öðrum lands-
hlutum var hún víðast um meðallag
eða lítið eitt undir því. Miðað við
meðaltal var úrkomumagnið lang-
mest á Húsavík eða 150% meira en
venja er, en minnst var það tiltölu-
lega í Kvígindisdal eða % meðalúr-
komu. Úrkomudagar voru víðast
nokkru færri en I meðalári um sunn-
an- og vestanvert landið, en yfirleitt
heldur fleiri en venja er til norðan
lands og austan.
Þoka var tíðari en venja er til
nema á Vesturlandi. Um þoku var
getið 15 daga mánaðarins. Þ. 22. var
þoka á 26 stöðvum, þ. 23. á 19 stöðv-
um, þ. 19.—21. og þ. 24. á 5—13 stöðv-
um og 9 daga á 1—2 stöðvum.
Vindar. Norðan- og norðaustan-
áttir voru tíðastar að tiltölu, en
sunnan- og suðvestanáttir að sama
skapi fátíðar. Logn var sjaldnar en
í meðalári og veðurhæð í rúmu með-
allagi. Stormdagar voru aðeins fleiri
en venja er til á Austfjörðum og Suðurlandi, en yfirleitt færri en í meðalári í öðrum
landshlutum.
Snjólag var 50%. Var það í meðallagi eða meira en venja er á öllum stöðvum, sem
meðaltöl hafa nema á Teigarhorni og Vik i Mýrdal.
Snjódýpt var mæld á 32 stöðvum þá daga, sem alhvítt var. Á Galtarvita var meðal-
snjódýpt 38 cm; á Þórustöðum, Suðureyri, Hornbjargsvita, Siglunesi, Grímsstöðum og
Jaðri 10—17 cm og á 25 stöðvum 1—9 cm.
Hagar voru 77%. Þeir voru lakari en venja er um vestanvert landið, en mun betri
um landið norðaustan- og sunnanvert.
Skaóar og hrakningar af völdum veöurs. Þ. 3. varð maður fyrir bifreið í Reykjavík
og slasaðist nokkuð. Krapahríð var á, og var lélegt skyggni talið orsök slyssins. Þ. 16.
fórst þrýstiloftsflugvél á Keflavíkurflugvelli, vegna þess að frost hafði skemmt stjórn-
tækin. Báðir flugmennirnir björguðust í fallhlíf. Sama dag fannst hollenzka skipið
Henry Denny 100 mílur suður af Reykjanesi, hafði það brotnað í óveðri daginn áður og
sent út neyðarskeyti. Var því leiðbeint til hafnar í Vestmannaeyjum.
Bjart sólskin (klst.).
Duration of bright sunshine (hours).
Reykja Reyk- Akur- Höskuld- Hallorms - Hólar,
Dags. vík hólar eyri arnes staður Hornaf.
i. 6.4 4.9 8.8 11.4 9.2 4.0
2. 5.0 4.4 4.6 1.2 1.5 ,,
3. 0.2 2.2 1.3 8.2 4.9 5.7
4. 4.9 7.9 2.2 1.1 8.0 12.1
5. , , ,, ,, ,, ,,
6. 7.7 12.2 3.3 2.3 9.6
7. 3.6 ,, ,, 0.5
8. 9.9 , , ,, 4.0
9. 11.9 6.3 ,, 0.6 6.8
10. 9.3 6.3 3.7 0.2 0.2 11.7
11. 12.8 12.4 5.3 9.2 1.4 6.8
12. 13.0 11.4 1.0 4.5 4.9 5.0
13. 13.6 9.1 , , 0.3 0.8 11.9
14. 3.9 ,, 0.4
15. 7.1 10.8 ,, 1.6 1.6 0.3
16. 3.8 9.4 ,, 0.3 2.6
17. 1.7 12.6 0.3 1.9 , , 10.2
18. 4.2 8.1 12.5 6.2 7.5
19. 0.6 , , ,, 4.9 1.9 ,,
20. , , , , 7.6 5.5 7.3 6.8
21. 1.7 4.0 4.2 6.3 7.3
22. ,, 2.3 3.2 , , 5.5 0.1
23. 0.2 ,, , , ,, ,,
24. 3.8 , , ,, ,, , , , ,
25. 5.1 4.3 0.5 ,, 0.4 1.7
26. 14.0 14.2 1.3 0.3 6.7 14.2
27. 14.4 14.7 5.4 13.5 13.1 14.2
28. 14.6 14.7 — 5.4 10.3 14.3
29. 10.4 10.3 12.3 8.6 14.3 12.5
30. 9.5 14.3 6.8 8.8 2.1 3.3
Aili 1 Sum .187.7 198.4 (84.1) 97.7 110.8 165.6
Vik frá meðallagi.
Deviation from normal.
Klst. 52.3 — (-24.4) — —
% 39 — (-22)
(26)