Veðráttan - 01.06.1963, Síða 1
VEÐRÁTTAN 1963
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEBFRSTOFUNIVI
Júní
Tíöarfar var sæmilega hagstætt. Gróðri fór vel fram, einkum fyrstu vikuna og aftur
síðustu daga mánaðarins. Á stöku bæjum hófst sláttur fyrir mánaðamót.
Tvo fyrstu daga mánaðarins var yfirleitt þurrt og viða bjart, en þ. 1. voru þó síðdegis-
skúrir í uppsveitum suðvestanlands. Hæðarhryggur var að þokast austur yfir landið. Hiti
var 1° undir meðallagi þ. 1., en 1° yfir því þ. 2.
Dagana 3.—7. var fremur hlýtt um allt land. Þ. 3. var hiti 3“ yfir meðallagi, og varð
aldrei hlýrra að tiltölu í mánuðinum, en þ. 28. og 29. var einnig 3° hlýrra en í meðalári.
Hina dagana var hiti 2° yfir meðallagi. Loftþrýstingur var hár alla dagana, en þ. 3. fór
smálægð norður Grænlandshaf, og úrkomusvæði var sunnan við land. Var hæg suðaust-
læg eða suðlæg átt með nokkurri úrkomu sunnanlands og vestan þann dag, en annars
var að mestu þurrt um allt land þessa daga. Þó gerði snarpar skúrir sums staðar norðan
lands þ. 7. Yfirleitt var hægviðri, en tvo síðustu dagana var þó austanstrekkingur við
suðurströndina.
Veður var hæglátt dagana 8,—14., og hiti frá meðallagi að 1° yfir því. Fram til 11.
var hæð yfir landinu og úrkomulítið, en þrjá síðustu dagana var þykkt loft um allt land,
og sums staðar nokkur úrkoma, einkum norðan lands þ. 12., en þann dag hafði lægð
myndazt norðvestan við land. Síðasta daginn var lægðadrag við vesturströndina.
Aðfaranótt þ. 15. olli lægð, sem nálgaðist suðvesturströndina, suðaustanátt suðvestan-
lands og mikilli rigningu um allt land. Lægðin þokaðist inn yfir landið þ. 15., var yfir
Suðausturlandi þ. 16.—17., og fór siðan suðaustur í haf. Kalt loft tók að berast inn yfir
norðvestanvert landið þ. 15. og breiddist síðan fremur hægt austur yfir landið. Á Galtar-
vita var hiti 2° undir meðallagi þ. 15. og 4°—5° undir meðallagi frá 16.—20., á Akureyri
var orðið 2° kaldara en í meðalári þ. 18., og þ. 20. var hiti þar kominn 4° niður fyrir meðal-
lag, en á Raufarhöfn fór hitinn ekki niður fyrir meðallag fyrr en þ. 19. Þ. 20. var hiti til
jafnaðar 2° undir meðallagi á öllu landinu, og varð það tiltölulega kaldasti dagur mán-
aðarins. Alla þessa daga var hiti sunnan til á landinu yfirleitt frá 1° undir meðallagi að
1° yfir því. Þ. 16. birti til suðvestantil á landinu, en annars staðar hélzt úrkomutíð alla
þessa daga, og var stundum allmikið úrfelli norðan lands. Norðaustantil á landinu var þó
víða bjart þ. 16. Á Hornströndum var slydda öðru hvoru. Þ. 20. hafði myndazt smálægð
suðaustan við land, og var þá allhvasst og mikil úrkoma bæði austan lands og norðan.
Dagana 21.—26. var hiti frá meðallagi að 1° undir því nema þ. 22., en þá var 1° hlýrra
en í meðalári. Lægðasvæði var á hreyfingu austur sunnan við land, og síðasta daginn
kom hæðarhryggur inn yfir landið úr vestri. Sunnan lands var austlæg átt með rigningu
þrjá fyrstu dagana, en annars var hægviðri og úrkomulítið.
Siðustu fjóra daga mánaðarins var hæð sunnan við land og vindur vestlægur. Vestan
til á landinu var dumbungsveður, en yfirleitt lítil úrkoma nema á Vestfjörðum þ. 28. Á
Norður- og Austurlandi var bjart veður og hlýindi, hiti yfirleitt 4°—5° yfir meðallagi.
Þ. 27. og 30. var hiti á öllu landinu 1°—2° yfir meðallagi, en dagana 28.—29. var 3° hlýrra
en i meðalári, og voru það hlýjustu dagar mánaðarins.
Loftvægi var 1.8 mb yfir meðallagi, frá 1.4 mb yfir meðallagi á Hólum og Akureyri
að 2.4 mb yfir meðallagi á Reykjanesvita. Hæst stóð loftvog á Keflavikurflugvelli þ. 28.
kl. 23 — þ. 29. kl. 2, 1033.7 mb, en lægst í Vestmannaeyjum þ. 15. kl. 23, 980.2 mb.
(41)