Veðráttan - 01.01.1964, Blaðsíða 2
Janúar
VEÐRÁTTAN
1964
allvíða nálægt helmingur af meðalúrkomu og á
stöku stað (Þorvaldsstaðir, Fagridalur) um %
þess, sem venja er. Úrkomudagar voru 4—9 fleiri
en i meðalári sunnanlands, einnig voru þeir til-
tölulega margir á Vestfjörðum. Á Norðaustur-
landi töldust úrkomudagar allt að 4 færri en
venjulega.
Þoka. Fjöldi þokudaga í mánuðinum var við-
ast hvar nálægt meðallagi, en á Stórhöfða í Vest-
mannaeyjum var þokusamt, þokudagar 9 fleiri en
venjulega. Um þoku var getið 20 daga mánaðar-
ins, en oftast aðeins á 1—3 stöðvum hvern dag.
Heiztu þokudagar voru 3., þoka á 6 stöðvum,
flestum austanlands, 17.—18., þoka á 10 stöðvum
austanlands og sunnan, 25., þoka á 6 stöðvum og
27., þoka á 15 stöðvum víðs vegar um landið.
Vindur. Vindáttir milli suðausturs og vesturs
voru tíðari en venjulega, einkum voru sunnan-
vindar tíðir. Norðaustanátt var sjaldgæfust að
tiltölu, en noiðan-, austan- og norðvestanvindar
voru einnig fátíðir. Logn var fremur sjaldan.
Meðalveðurhæð var í rúmu meðallagi á öllu land-
inu. Sunnanlands var veðurhæð allt að einu vind-
stigi meiri en venjul., en á Norðvestur-, Norður-
og Austurlandi víðast lítið eitt undir meðallagi.
Þrumur voru óvenjulega tíðar i þessum mán-
uði. Þ. 1. voru þrumur á 5 stöðvum, en rosaljós
sáust á einni stöð, öllum sunnanlands; þ. 2.
voru þrumur á 11 stöðvum, en rosaljós á 2 stöðv-
um á Suður- og Austurlandi; þ. 7. voru þrumur
á 20 stöðvum um sunnanvert landið vestur og
norður að Lambavatni og Hlaðhamri; þ. 8. á 5
stöðvum sunnanlands; þ. 9. á 4 stöðvum suð-
vestanlands; þ. 12. á Sandi í Aðaldal; þ. 20. á 7
stöðvum sunnanlands; þ. 21. í Bjólu; þ. 25. i
Æðey; þ. 29. á Keflavíkurflugvelli; þ. 30. á
Rjúpnahæð og Egilsstöðum og þ. 31. í Vest-
mannaeyjum.
Snjúlag var að meðaltali 33%. Á 14 stöðvum,
sem meðaltal hefur verið reiknað fyrir, var það
29% minna en venjulega. Einkum var snjólétt
suðvestaniands.
Snjódýpt var mæld á 46 stöðvum þá daga, sem
jörð var alhvit. Á Siglunesi var meðalsnjódýpt
27 cm. Þar var alhvítt 7 daga. Mest snjódýpt mældist þar 45 cm þ. 1., og var það mesta snjódýpt,
sem getið er um 1 mánuðinum. 1 Papey mældist meðalsnjódýpt 23 cm, en þar var alhvit jörð 2 daga.
í Stardal, Hólum í Hjaltadal, Möðrudai og Sandhaugum var meðalsnjódýpt 10—16 cm, á 17 stöðvum
5—9 cm, en á 23 stöðvum taldist meðalsnjódýpt innan við 5 cm. Á 12 stöðvum varð jörð aldrei al-
hvít á athugunartíma.
Hagar voru að meðaltali 85%. Af 8 stöðvum, sem meðaltöl hafa, telja tvær, Þórustaðir og Vest-
mannaeyjar lélega haga, en á sex stöðvum voru hagar 29% betri en í meðalári.
Hafís. Þ. 17. er getið um hafísspöng um 30 sjómílur ANA af Horni, er lá austur þaðan. Daginn eftir
var mikill ís á stóru svæði um 25 sjómílur NV af Horni. Þá lá aðalísbrúnin 34 sjómílur norður af Kögri
og Horni, en tvær totur teygðu sig suður, önnur var næst landi 13 sjómílur N af Kögri, en hin 25 sjó-
mílur NA af Geirólfsgnúpi. Þ. 25. geta 3 skip um ísspangir og smá jaka hættulega skipum um 20—25
sjóm. N og NV af Skaga. Þ. 29. var nokkuð stór ísjaki á siglingaleið 11 sjóm. NNA af Geirólfsgnúpi.
SkaSar og hrakningar. Þ. 1. slitnaði vélbátur frá bryggju í Höfnum og mun hafa liðazt sundur og
sokkið. Sjór flæddi yfir bryggjurnar í Keflavík, og skemmdust nokkrir bátar. Allvíða fuku þök af
húsum, og bóndinn á Lælc í Holtum varð fyrir melðslum er skemma fauk. Aðfaranótt þ. 5. fauk bif-
reið með 17 manns út af veginum á Fróðárheiði, og þak fauk af húsi í Ölafsvík. Næsta dag brotnuðu
rúður í Bolungarvík vegna hvassviðris. Þ. 11. rak 3 vélbáta á land í Isafirði og skemmdust eitthvað,
einnig skemmdist brezkur togari, sem var að láta úr höfn þar, en rak fyrir vindi. Á Hvallátrum á
Breiðafirði slitnaði vélbátur upp og brotnaði. Þ. 22. fórst vb. Jón Garðar 16 sjómílur SV af Hjörleifs-
höfða. Manbjörg varð. Aðfaranótt þ. 23. fauk járn af þökum á Reyðarfirði. Þ. 26. slitnaði vélbátur
upp af legufærum í Þoriákshöfn, rak á land og gerónýttist. Þ. 31. missti vélbátur frá Grindavílc út
afla og veiðarfæri. Einn af áhöfninni féll einnig útbyrðis, en bjargaðist fljótlega. Sama dag skemmd-
ust tvö skip í Keflavík lítils háttar.
Mikið var um árekstra i þessum mánuði vegna hálku á götum og vegum. Þ. 4. lentu 4 bílar i
árekstri og skemmdust i Reykjavík. Sama dag fór bifreið út af Þingvallavegi, einn farþegi meiddist.
Bifreið rann út af veginum í Oddsskarði nokkru síðar. Þ. 27. varð bifreiðaslys á Isafirði og þ. 28.
nokkrir árekstrar i Reykjavik. Þ. 31. urðu 19 árekstrar í Reykjavík, einnig féllu menn á hálku og
meiddust. Óvenju mörg umferðarslys, þar af 4 dauðaslys i Reykjavík og eitt á Akureyri, urðu í
Þessum mánuði. — 1 þrumuveðrinu, sem gekk yfir landið sunnanvert þ. 7. urðu miklar síma- og raf-
magnsbilanir í Árnessýslu. Eldingar slitu rafmagnslínur og tættu símastaura, svo að síma- og raf-
magnslaust varð í 6 sveitum. — Þ. 27. er þess getið, að tveir vélbátar frá Skagaströnd hafi lagt línur í
norðurkanti Strandagrunns, lentu þeir Þar í rekís, annar skemmdi skrúfuna, en hinn missti línu.
Taisverð brögð voru að þvi, að bátar frá Isafirðl misstu lóðir sinar undir ís um þetta leyti.
Framhald í febrúarblaðinu. (Sjá bls. 10).
Bjart sólskin (klst.).
Duration of bright sunshine (hours).
(2)