Veðráttan

Volume

Veðráttan - 02.12.1967, Page 1

Veðráttan - 02.12.1967, Page 1
VEBRÁTTAN 1967 ARSYFIRMT SAMIB A VERITRSTOFUXXI Tíðarfarsyfirlit TíÖarfar var lengst af óhagstætt. Loftvœgi var 1.2 mb undir meðallagi. Hæst stóð loftvog 1040.3 mb á Hornbjargsvita 8. desember kl. 14-17, en lægst 951.7 mb á Dalatanga 28. febrúar kl. 5. Hiti var 1.2° undir meðallagi. Kaldast var með ströndum fram norðanlands og í inn- sveitum á Norðausturlandi, hiti 1.5°-1.7° undir meðallagi. Við suðurströndina og sunnan- verðan Faxaflóa var mildast, %°-l° kaidara en í meðalári, en annars staðar á landinu var hiti 1°-1%° undir meðallagi. Árssveifla hitans var minnst um 10° á annesjum austanlands. Við vesturströndina var hún 13°-15°, en við norður- og austurströndina 12°-14°. 1 innsveit- um var hún víðast 15°-16°, en mest tæp 18° í hásveitum á Norðausturlandi. Marz var kald- asti mánuður ársins, en ágúst víða hlýjastur. Sjávarhiti var 0.2° undir meðallagi samkvæmt mælingum á þremur stöðvum vestan- lands, en 1.3° undir því á tveimur stöðvum austanlands. Úrkoma var 98% af meðalúrkomu á landinu öllu. Á Suðurlandsundirlendi og í Þing- eyjarsýslum var hún mest að tiltölu, sums staðar 20-50% umfram meðallag. Vestanlands og á Austurlandi var hún yfirleitt minni en í meðalári eða um meðallag, en minnst að tiltölu á Suðausturlandi um 70-80% af meðalúrkomu. Ársúrkoman var mest á Kvískerjum 2986 mm en minnst á Grímsstöðum 358 mm. Mesta sólarhringsúrkoma mældist 131.5 mm á Kvískerj- um 15. janúar. Sama dag mældust 116.2 mm á Skaftafelli og 101.0 mm á Skógum. Á Kví- skerjum mældust 115.2 mm 26. ágúst og sama dag 109.0 mm á Vagnstöðum. 1 78 skipti mældist sólarhringsúrkoma milli 50 og 100 mm. Sólskin mældist 1518 klst. í Reykjavík, og er það 369 klst. umfram meðallag áranna 1901-1930. Á Reykhólum mældust 1094 klst. og á Akureyri 1073 klst., sem er 111 klst. um- fram meðallag. Á Höskuldarnesi mældust 888 klst., Hallormsstað 1081 klst., Hólum í Horna- firði 1322, Sámsstöðum 1474 og Hveravöllum 1311 klst. Veturinn (des. 1966-marz 1967) var óhagstæður. Hiti var 1.1° undir meðallagi. Á Vest- fjörðum, Norðurlandi austan Húnaflóa, og á Fljótsdalshéraði var hitinn 1 °-2° undir meðal- lagi, en annars staðar á landinu yfirleitt % °-1 ° undir því. Hiti var 9°-5° undir meðallagi í 28 daga og 4°-l° undir því í 44 daga. 1 37 daga var hitinn frá meðallagi að 4° yfir því, og í 12 daga var 5°-8° hlýrra en í meðalári. Orkoma var 4% innan við meðallag. Á Norðurlandi var hún mest að tiltölu, og mældist þar sums staðar meira en tvöföld meðalúrkoma. Vestan- lands var úrkoma yfirleitt innan við meðallag, víðast 70-90% af meðalúrkomu. Á Suðaustur- landi mældust 80-120% af meðalúrkomu á flestum stöðvum, sem meðaltöl hafa. Vorið (apríl-maí) var óhagstætt. Hiti var 1.7° undir meðallagi. Kaldast var á Norður- landi, 2°-3° undir meðallagi. Annars staðar á landinu var yfirleitt 1°-1%° kaldara en i meðalári. Hitinn var 8°-5° undir meðallagi í 14 daga og 4°-l° undir þvi í 27 daga. 118 daga var hann frá meðallagi að 4° yfir þvi, og í 2 daga var 5° hlýrra en í meðalári. Úrkoma var 7% innan við meðallag. Hún var allt að 40% umfram meðallag í uppsveitum á Suðvestur- og Vesturlandi, og sums staðar á Vestfjörðum fór úrkoman allt upp í tvöfalda meðalúrkomu, en þar fór hún einnig niður i % meðalúrkomu á tveimur stöðvum. Á Norðurlandi og Aust- fjörðum var úrkoman einnig mjög óregluleg eða frá 60% af meðalúrkomu og upp í 50% um- fram meðallag. Á Suðausturlandi og við suðvesturströndina var úrkoman víðast 70-90% af meðalúrkomu. Sumarið (júní-sept.) var hagstætt nema í júni og norðanlands var júlí einnig óhagstæð- ur. Hitinn var 0.7° undir meðallagi. Kaldast var við norðurströndina, á Austfjörðum og Héraði, hiti 1.0°-1.5° undir meðallagi. Annars staðar var hitinn frá meðallagi að %° undir því með ströndum fram, en í innsveitum var % °—1° kaldara en í meðalári. 1 69 daga var hit- inn 5°-l° undir meðallagi, en 53 daga var hann frá meðallagi að 3° yfir þvi. Úrkoma var 2% innan við meðallag á öllu landinu. Á Suðvestur- og Vesturlandi var hún yfirleitt meiri en i meðalári nema nyrzt á Vestfjörðum. 1 Suður-Þingeyjarsýslu var úrkoma einnig meiri en í meðalári, mest 50% umfram meðallag. Annars staðar var úrkoma innan við meðallag, minnst 60% af meðalúrkomu. Sólskin mældist 55 klst. lengur en í meðalári I Reykjavík, og á Akur- eyri voru sólskinsstundir 88 umfram meðallag. Heyfengur var minni en í meðalári, en nýt- ing heyja góð. Uppskera úr görðum var góð sunnanlands, en rýr á Norður- og Austurlandi. Haustið (október-nóvember) var kalt, en ekki óhagstætt framan af. Hiti var 2.0° undir meðallagi. I innsveitum norðanlands og austan var kaldast, hitinn 2%°-3° undir meðallagi, en mildast var að tiltölu við suðvesturströndina, þar var um 1%° kaldara en í meðalári. Annars staðar var hitinn yfirleitt l%°-2%° undir meðallagi. 1 13 daga var hitinn 9°-5° undir meðallagi og 29 daga 4°-l° neðan við meðallag. 117 daga var hann frá meðallagi að 4° yfir því og 2 daga 5°-6° yfir meðallagi. Úrkoma var 77%. Hún var meiri en í meðalári á Norðausturlandi, en yfirleitt ekki umfram 50% yfir meðallagi. Annars var úrkoma minni en í meðalári um allt land, víðast 50-80% af meðalúrkomu. (97)

x

Veðráttan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.