Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1967, Blaðsíða 34

Veðráttan - 02.12.1967, Blaðsíða 34
Ársyfirlit VEÐRÁTTAN 1967 Guöbjörg FriÖriksdóttir, aðstoðarmaður, byrjaði í apríl. Halldóra Ingibergsdóttir, aðstoðarmaður, byrjaði í desember. Hrafn Karlsson, aðstoðarmaður. Hörður Karlsson, aðstoðarmaður, hætti í janúar. Róbert Róbertsson, aðstoðarmaður, hætti í ágúst. Sveinn Jóhannesson, aðstoðarmaður. Sævar Pétursson, aðstoðarmaður, hætti í nóvember. Þorsteinn Sigvaldason, aðstoðarmaður, byrjaði i febrúar. Þráinn Þorleifsson, aðstoðarmaður. Veðurstöðvar. Athugunarmenn: 1 apríl hætti Ólafur Sveinsson á Lambavatni athugunum, en þær hafði hann annazt fyrir Veðurstofuna lengst allra núverandi athugunarmanna eða í 45 ár. Rækti hann starf sitt af stakri kostgæfni og samvizkusemi, og vill Veðurstofan þakka hon- um langt og gott samstarf. Við athugunum tók Tryggvi Eyjólfsson. 1 maímánuði andaðist Benedikt Björnsson bóndi á Barkarstöðum, en hann hafði annazt veðurathuganir fyrir Veðurstofuna frá árinu 1950. Við athugun tók Jenný Sigfúsdóttir, húsfrey.ia. 1 júlímánuði hætti Klemenz Kristjánsson athugunum á Sámsstöðum, en Kristinn Jóns- son tilraunastjóri tók við. Klemenz flutti búferlum að Kornvöllum í Hvolhreppi og mun gera þar athuganir framvegis fyrir Veðurstofuna. Hann á nú að baki 40 ára starf við veð- urathuganir. Snæbjörn Thoroddsen í Kvígindisdal hefur einnig gert athuganir í 40 ár á þessu ári. Veðurstofan vottar báðum þessum mönnum þakklæti sitt. Guðrún Sveinsdóttir húsfreyja hætti athugunum í Höfn í júlí og við starfinu tók Ragnheiður Ögmundsdóttir húsfreyja. 1 október hætti Gróa Salvarsdóttir athugunum á Dalatanga, en hún og maður hennar, Halldór Víglundsson, höfðu þá gegnt veðurathugunum þar og á Hornbjargsvita frá 1955 og annast þau störf eins og bezt verður á kosið. Við athugunum á Dalatanga tók Tómas Zoega. Jóhann Björnsson hætti athugunum á Húsavík í september. Jóhann byrjaði athuganir 1939, en hefur aðeins annazt þær á sumrin frá 1953. Nýjar stöövar og breytingar á eldri stöövum. 1 marzmánuði var hætt veðurathugunum í Grenivík vegna brottflutnings athugunarmanns, en þar hafði verið úrkomustöð frá því í ágúst 1966. I apríl var vélstjórum í Elliðaárstöðinni sagt upp störfum, en þeir höfðu séð um veðurathuganirnar þar frá byrjun (1922). Féllu athuganir þá niður, nema kl. 8, en þá er mælt hitastig og úrkoma, og sér Jón Ásgeirsson stöðvarstjóri um þetta. I byrjun júlí- mánaðar var úrkomustöðin á Mýrartungu II lögð niður, en samdægurs var sett upp úr- komustöð á Máskeldu í Saurbæjarhreppi. Athugunarmaður þar er Kristín Ólafsdóttir, en hún gerði athuganir á Hlaðhamri árin 1950—1961. 1 byrjun ágúst hófust veðurathuganir á Hjaltabakka í Torfulækjarhreppi, og eru gerðar athuganir kl. 8, 11, 17, 20 og 23 og skeyti send kl. 8, 11, 17 og 23. Vegna erfiðleika á símasambandi á nóttunni hafa þó verið send skeyti kl. 20 í stað kl. 23 fram að áramótum. Athugunarmaður er Jón Þórarinsson bóndi. 1 sama mánuði hófust veðurathuganir á Kornvöllum í Hvolhreppi og annast Klemenz Kristjánsson þær. Athuganir eru gerðar kl. 8 og 20 og sendar mánaðarlega til Veður- stofunnar. 1 ágúst hófust úrkomumælingar á Sólvangi í Fnjóskadal og annast Berg- sveinn Jónsson þær. Skýrslur eru sendar mánaðarlega til Veðurstofunnar. í miðjum des- ember hófust veðurathuganir á tilraunastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá á Kjalarnesi og eru gerðar athuganir kl. 8, 14 og 20. Starfsmenn tilraunastöðvarinnar sjá um athugan- irnar og senda skýrslu mánaðarlega til Veðurstofunnar. Gústaf Gíslason gerði athuganir í Papey tímabilið 11. april til 18. október, en enginn var í eynni vetrarmánuðina. Athuganir voru gerðar í Jökulheimum á sama hátt og undanfarin sumur, frá 11. júní og fram í miðjan september. Háloftastöðin á Keflavíkurflugvelli flutti í ný og betri húsakynni 27. júní. Ýmsar breytingar á tækjum og ný tœki: Skipt var um hitamælaskýli á Víðistöðum í apríl, á Loftsölum i maí og á Keflavikurflugvelli í júlí. I maímánuði var skipt um úrkomu- mæli í Vík i Mýrdal og hann jafnframt fluttur nokkra metra til suðurs. Úrkomumælar voru settir upp á Máskeldu í júlíbyrjun, á Sólvangi í ágúst og Mógilsá i desember, en þar var jafnframt sett upp hitamælaskýli. í ágúst var komið fyrir úrkomumæli og hitamæla- skýli á Kornvöllum og Hjaltabakka. I júlí voru veðurathugunartæki á Höfn í Hornafirði flutt til innan þorpsins. I október var reistur úrkomusafnmælir á Hveravöllum og í sama mánuði var komið fyrir hitarita í hitamælaskýlinu á Hvanneyri. EftirlitsferÖir: Starfsmenn Veðurstofunnar heimsóttu eftirtaldar stöðvar á árinu: Al- viðru, Akureyri, Akurhól, Fagurhólsmýri, Galtarvita, Hjaltabakka, Hólm, Hvallátur, (130)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.