Veðráttan - 02.12.1972, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1972
ÁnSYFIRLIT SAMin A VEÐURSTOFCNPÍI
Tíðarfarsyfirlit
Tíöarfariö var hagstætt fyrri hluta ársins, en óhagstæöara er á leið, einkum vegna
óþurrka og síðar umhleypinga.
Loftvœgi var 2.8 mb undir meðallagi, frá 2.4 mb á Höfn í Hornafirði að 3.2 mb á Horn-
bjargsvita. Hæst stóð loftvog 1041.5 mb á Kirkjubæjarklaustri 17. október kl. 15, en lægst
943.5 mb á Dalatanga 19. janúar kl. 12.
Hiti var 0.5° yfir meðallagi, og var nú í fyrsta skipti síðan 1964 hlýrra en í meðalári. Á
Suðvesturlandi og við vestur- og norðurströndina var hiti frá meðallagi að % ° yfir þvi, en
á Austur- og Suðausturlandi og í innsveitum norðanlands var %0—1° hlýrra en í meðalári.
Árssveifla hitans var stærst 12°—13° í innsveitum á Norðausturlandi. Annars staðar var
hún víða 10°—12° I innsveitum, en 8°—10° við strendur, en minnst 7°—8° við austur-
ströndina.
Sjávarhiti var í meðallagi á þeim 7 stöðvum, sem höfðu ársmeðaltal.
Úrkoma var 27% umfram meðallag. Sums staðar á Norðvesturlandi og við innanverðan
Breiðafjörð var hún um eða innan við meðallag, en alls staðar annars staðar meiri en í
meðalári. Mest var ársúrkoma á Kvískerjum 3935 mm, en minnst á Grímsstöðum 444 mm.
Mesta sólarhringsúrkoma mældist á Dalatanga 28. október, 133.8 mm. Sama dag mældust
130.3 mm á Kvískerjum og 100.2 mm á Kambanesi. Þann 23. febrúar mældust 122.0 mm á
Ljósafossi, 104.0 mm á Reykjum i ölfusi og 100.6 mm við Andakílsárvirkjun. Á síðastnefndu
stöðinni mældust einnig 107.0 mm 12. október. I 102 skipti mældist sólarhringsúrkoma milli
50 og 100 mm.
Sólskin mældist í 1197 klst. í Reykjavík, en það er 52 klst. undir meðallagi. Á Akureyri
voru sólskinsstundir 934 eða 28 klst. færri en í meðalári. Á Reykhólum voru sólskinsstundir
943, Höskuldarnesi 942, Hallormsstað 1044, Hólum I Hornafirði 1213, Sámsstöðum 1175 og
Hveravöllum 1051.
Veturinn (desember 1971 —marz 1972) var hagstæður, en þó umhleypingasamur með
köflum. Hann var mjög hlýr og var hiti 1.6° yfir meðallagi. AÖeins 2 vetur, 1928—29 og
1963—64, hafa orðið að ráði hlýrri á þessari öld. Á annesjum var hiti yfirleitt 1°—1%° hærri
en í meðalári, en í innsveitum 1%0—2Vs ° hærri. 1 9 daga var hiti 5°—9° undir meðallagi og
í 33 daga 1°—4° undir því. I 44 daga var hiti frá meðallagi að 4° yfir því og í 36 daga var
5°—7° hlýrra en venja er. Orkoma var 37% umfram meðallag. Hún var innan við meðallag
allvíða á Norðurlandi, einkum vestan til, en þó einnig í innsveitum austan til. Annars var
hún alls staðar meiri en i meðalári og mest tæplega tvöföld meðalúrkoma á innanverðu
Fljótsdalshéraði.
Vorið (april — maí) var hagstætt. Hiti var 0.8° yfir meðallagi. Hann var um meðallag á
Hornströndum, %°—1° yfir þvi á Suður- og Vesturlandi og einnig við strendur á Norður-
og Austurlandi, en í innsveitum í þeim landshlutum var 1°—1%° hlýrra en í meðalári. 1 4
daga var hiti 5°—7° undir meðallagi og í 14 daga 1°—4° undir þvi. 1 38 daga var hiti frá
meðallagi að 4° yfir því og í 5 daga var 5°—7° hlýrra en í meðallagi. Úrkoma var 26% um-
fram meðallag. Hún var um og innan við meðallag víða vestanlands frá Borgarfirði til Vest-
fjarða og einnig sums staðar á Norðurlandi. Annars staðar var hún meiri en i meðalári,
mest um tvöföld meðalúrkoma við norðausturströndina.
Sumarið (júní — september) var fremur óhagstætt vegna óþurrka, einkum á Suður- og
Vesturlandi. Hiti var 0.5° undir meðallagi. Við norðausturströndina var hann um meðallag,
en í öllum öðrum landshlutum allt að 1° undir meðallagi. 1 1 dag var hiti 5° undir meðal-
lagi og i 72 daga 1°—4° undir því. 1 48 daga var hiti frá meðallagi að 4° yfir því og i 1 dag
var 5° hlýrra en í meðalári. Úrkoma var 28% umfram meðallag. Var hún meiri en í meðal-
ári um nær allt land, en þó óvíða meira en 50% umfram meðallag. 1 Reykjavík skein sól 38
klst. skemur en í meðalári, og á Akureyri voru sólskinsstundir 15 færri en að meðaltali.
Haustið (október — nóvember) var sæmilega hagstætt framan af, en óhagstætt er á leið
um norðanvert landið, einkum vegna mikilla snjóþyngsla. Hiti var 1.0° undir meðallagi. Á
Norður-, Austur- og Suðausturlandi var hann víðast innan við 1° undir meðaillagi, en yfir-
leitt 1°—1%° undir því á landinu vestanverðu. 1 6 daga var 5°—8° kaldara en í meðalári
og í 31 dag 1°—4° kaldara. 1 24 daga var hiti frá meðallagi að 4° yfir þvi. Úrkoma var 4%
umfram meðallag. Á öllu Suðurlandi og viða við Faxaflóa og Breiðafjörð var hún undir
meðallagi, en í Borgarfirði, á Vestfjörðum og öllu norðanverðu landinu var hún meiri en í
meðalári, mest rúmlega tvöföld meðalúrkoma um miðbik Norðurlands.
(97)