Veðráttan - 02.12.1972, Blaðsíða 34
Ársyfirlit
VEÐRÁTTAN
1972
Veðurstöðvar.
Athugunarmenn: Þrír veðurathugunarmenn, sem lengi höfðu unnið gott starf í þágu
Veðurstofunnar, létust á árinu.
Helgi Arason bóndi á Fagurhólsmýri lézt i ágúst. Hann athugaði i 34 ár frá 1934 til
1968, er hann lét af störfum sakir heilsubrests.
Pétur Jónsson bóndi í Reykjahlið lézt i nóvember. Hann annaðist athuganir frá árinu
1936 til dauðadags. Við athugunum tók Guðný Halldórsdóttir.
Bjarni Erlendsson á Víðistöðum í Hafnarfirði lézt í desember. Hann átti að baki 35 ára
starfsferil sem veðurathugunarmaður, eða frá 1933 til miðs árs 1968, er hann hætti vegna
veikinda.
Á þessu ári hafa þeir Klemenz Kristjánsson fyrrv. tilraunastjóri á Sámsstöðum, nú á
Kornvöllum, og Snæbjörn J. Thoroddsen bóndi í Kvígindisdal gert veðurathuganir í 45 ár.
Einar Gestsson bóndi á Hæli og Oddný Wiium á Vopnafirði, áður í Fagradal, hafa á árinu
starfað í 40 ár. Þakkar Veðurstofan þeim öllum ágætt samstarf á liðnum árum. 1 septem-
ber lét Oddný Wiium-af störfum, en við tók Guðbjörg Wiium.
Daníel Eggertsson bóndi á Hvallátrum lét af störfum í nóvember eftir 25 ára farsælt
starf. Kann Veðurstofan honum beztu þakkir fyrir samstarfið. Við athugunum tók Þórð-
ur Jónsson bóndi.
Erla Ásgrímsdóttir hætti athugunum á Sauðárkróki i marz. 1 september hóf nýr athug-
unarmaður, Lára Angantýsdóttir, starf. Birna Skarphéðinsdóttir hætti athugunum á Höfn
i Hornafirði í apríl, en við tók Svanhvít Pálsdóttir. Sigriður Ivarsdóttir í Forsæludal hætti
í apríl, og Sigríður I. Ragnarsdóttir tók við. 1 Vík í Mýrdal hætti Lilja Sigurðardóttir í maí-
lok, en Guðný Helgadóttir kennari byrjaði í september. Elísabet Sigurðardóttir á Akurhóli
hætti í lok júni, og féllu athuganir niður frá þeim tíma. 1 desember tók Bjarni E. Guðleifs-
son tilraunastjóri við athugunum á tilraunastöðinni á Akureyri af Svanberg Þórðarsyni
ráðsmanni. Á árinu tók Bjami Guðmundsson tilraunastjóri við umsjón veðurathugana á
Hvanneyri af Óttari Geirssyni kennara.
Nýjar stöðvar og breytingar á éldri stöðvum: Búveðurfræðimælingar að Sóllandi í
Reykjavík hættu í apríl vegna byggingaframkvæmda á svæðinu. Þær voru teknar upp aft-
ur í maílok i mælireit við Veðurstofubygginguna við Bústaðaveg.
Veðurathuganir hófust á Irafossi í ágúst. Eru þar gerðar veðurfarsathuganir kl. 9,15 og
21. Umsjónarmaður með athugunum er Jón Sandholt vélstjóri. Frá sama tíma hættu veð-
urfarsathuganir á Ljósafossi, og verður stöðin framvegis úrkomustöð.
Veðurathuganir í Flatey á Breiðafirði hófust að nýju í nóvember eftir eins árs hlé. Eru
þar gerðar veðurfarsathuganir kl. 9,15 og 21. Athugunarmaður er Guðmundur P. Ólafsson.
I desember hófust veðurathuganir í Nýjabæ á hálendisbrúninni inni af Eyjafirði. Er
sú stöð rekin af Orkustofnun og mun verða starfrækt um skeið, einkum vegna rannsókna
á isingu raflína. Veðurskeyti eru send kl. 9,15 og 18 og veðurfarsathugun auk þess gerð kl.
21. Athugunarmenn eru Guðrún Sigurðardóttir og Þorsteinn Ingvarsson.
1 júní hófust sólgeislunarmælingar á Sámsstöðum. Þann 13. júlí var sólgeislunarmælir
í Reykjavík fluttur frá Vatnsgeyminum við Sjómannaskólann til Veðurstofubyggingar við
Bústaðaveg, þar sem hann er staðsettur á þaki hússins. í ágúst hófust sólskinsstunda- og
sólgeislunarmælingar við Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í ölfusi.
Breytingar á athugunartima: Þann 19. janúar hófust veðurskeytasendingar frá Æðey
kl. 6. Frá og með september var hætt að gera veðurathuganir á Sauðárkróki kl. 15. Frá 1.
nóvember voru send veðurskeyti frá Loftsölum kl. 24.
óreglulegar stöövar: Athuganir voru gerðar í Heiðmörk mánuðina maí til október og
á Korpúlfsstöðum mai til september.
EftirlitsferÖir: Starfsmenn Veðurstofunnar heimsóttu eftirtaldar stöðvar á árinu: Ak-
ureyri, Akureyri (tilraunastöð), Akurhól, Amarstapa, Bergþórshvol, Bjólu, Blesastaði,
Brekku, Búð, Fornahvamm, Garð, Grímsstaði, Grindavik, Gufuskála, Hallormsstað, Heið-
arbæ, Heiðmörk, Hjarðarfell, Hólma, Hraun, Hvanneyri, Höfn, Irafoss, Keflavíkurflugvöll,
Kirkjubæjarklaustur, Korpúlfsstaði, Laugardæli, Ljósafoss, Miðfell, Mógilsá, Mosfell,
Raufarhöfn, Reyki i ölfusi, Reykjanesvita, Sámsstaði, Sauðárkrók, Skeiðfoss, Skoruvík,
Stardal, Stykkishólm, Vestmannaeyjar, Vestmannaeyjakaupstað, Vik, Vopnafjörð og
Þingvelli.
Athuganir á skipum: Á eftirtöldum skipum voru gerðar athuganir og skeyti send: Al-
bert, Arnarfelli, Árna Friðrikssyni, Bakkafossi, Bjarna Sæmundssyni, Brúarfossi, Detti-
fossi, Fjallfossi, Freyfaxa, Goðafossi, Goðanum, Gullfossi, Hafþóri, Hallveigu Fróðadóttur,
Harðbak, Helgafelli, Hofsjökli, Hvassafelli, Irafossi, Júpiter, Jökulfelli, Lagarfossi, Langá,
Laxfossi, Mai, Mánafossi, Múlafossi, Mælifelli, Reykjafossi, Selá, Selfossi, Sigurði, Skafta-
felli, Skógafossi, Sólbak, Tungufossi, Úranusi, Vigra, Þorkeli mána, Þormóði goða, Þór,
Ægi.
(130)