Veðráttan - 01.08.1979, Síða 1
VEÐRÁTTAN 1979
mAnasaryfiulit samið A veðurstofunni
Ágúst
TlOarfar var mjög óhagstætt til heyskapar um norðaustanvert landið. Á Suður- og
Vesturlandi var heyskapartíð aftur á móti góð og nýting heyja með besta móti, en
heyfengur með minna móti vegna lélegrar sprettu.
Fyrstu 5 daga mánaðarins var hægviðri um allt land. Vestanlands var víða léttskýjað
fyrstu 2 dagana, en annars var yfirleitt skýjað, en þurrt veður. Dálitil úrkoma var þó
þ. 2. suðaustanlands. Þessa daga var hæð yfir Norður-Grænlandi, en lægð fyrir sunnan
land. Hitastig var l°-3° lægra en í meðalárferði .
Dagana 6.-9. var norðan- og norðaustanátt, kaldi eða stinningskaldi, hérlendis. Þ. 6.
var lægð nálægt Færeyjum og þokaðist hún norður á bóginn daginn eftir og þ. 8. og 9.
var lægðarsvæði skammt út af austurströnd íslands. Norðan- og austanlands var úr-
komusamt þessa daga og einkum rigndi mikið seinni hluta þ. 6. og þ. 7. á Norðaustur-
landi og á norðanverðum Austfjörðum. Sunnan- og vestanlands var aftur á móti viða
léttskýjað. Hiti var l°-2° lægri en að tiltölu þessa 4 daga.
Þ. 10. var lægðarsvæði fyrir sunnan land og þokaðist það nær landinu daginn eftir.
Úrkomusvæði fór norður yfir landið þ. 12., en sjálf lægðarmiðjan var skammt suðvestur
af Reykjanesi fram til þ. 14. Vindur þessa daga var yfirleitt milli suðausturs og austurs
og úrkoma um mestallt land þessa 5 daga. Einkum rigndi mikið á Suðausturlandi þ. 11.
og 12. Hitastig var 1%° lægra en venjulega þ. 10., en nálægt meðallagi þ. 11.-14.
Nokkuð kólnaði í veðri með norðanátt þ. 15. og var 2° kaldara en venja er þ. 15.-16.
Lægð, sem verið hafði suðvestur af Reykjanesi, þokaðist austur með suðurströnd lands-
ins og síðan norður í átt til Jan Mayen. Norðan lands var skýjað veður og lítils háttar
rigning fyrri daginn, en þ. 16.-17. var hægviðri um allt land. Fyrri daginn voru smá-
skúrir vestan lands og norðan, en yfirleitt þurrviðri þ. 17. og á Suðausturlandi og Aust-
fjörðum var léttskýjað þann dag. Hiti var í réttu meðallagi þ. 17., en daginn eftir var
1° hlýrra en venja er og var það hlýjasti dagur mánaðarins að tiltölu. Þann dag var
smálægð vestan við Island og þokaðist úrkomusvæði austur yfir landið þ. 18. Var suð-
austankaldi með rigningu hérlendis þann dag, en daginn eftir var smálægð yfir land-
inu á hægri hreyfingu austur, og hægviðri og skúrir um mestallt landið. Hitastig var
í meðallagi þ. 19.
Dagana 20.-22. var norðaustanstrekkingur með töluverðri úrkomu norðan lands, en
bjartviðri sunnan fjalla. Nokkuð kólnaði og var hiti l%°-2%° lægri en venja er þessa
daga, en þ. 23.-25. var 1° kaldara en í meðalári. Yfir Skotlandi var lægð, sem þokaðist
norður á bóginn þ. 21. og 22., en næstu daga var lægðarsvæði suður af landinu. Var
hægur vindur og breytileg átt þ. 23.-27. með litilsháttar rigningu austan lands og
sunnan. Hitastig þ. 26.-27. var nálægt meðallagi.
Þ. 28. dýpkaði lægðin, sem var fyrir sunnan land ,og þokaðist nær landinu og siðan
norðaustur í átt til N-Noregs. Hvessti af austri með rigningu um allt land þ. 28., en
daginn eftir snerist vindur meira til norðausturs og létti þá til sunnanlands, en norðan-
lands voru enn skúrir á annesjum og einnig á Suðausturlandi. Þ. 30. voru smálægðir
yfir landinu, en um kvöldið þ. 31. nálgaðist lægð suðausturströndina sunnan úr hafi.
Þessa 2 síðustu daga mánaðarins var hæg suðaustan átt hér á landi með nokkurri úr-
komu á Suðurlandi. Hitastig var 2%°-3%° lægra en í meðalári og var næstsíðasti dagur
mánaðarins kaldasti dagurinn í ágúst.
(57)