Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.08.1979, Blaðsíða 2

Veðráttan - 01.08.1979, Blaðsíða 2
Ágúst VEÐRÁTTAN 1979 Loftvægi var 0.7 mb hærra en meðallag, frá 0.2 mb lægra en meðallag á Höfn í Hornafirði að 1.4 mb ofan við meðallag á Galtarvita og Hornbjargsvita. Hæst stóð loftvog 1025.1 mb á Vopnafirði þ. 31. kl. 9-15, en lægst 989.8 mb á Keflavíkurflugvelli þ. 13. kl. 9. Hiti var 1.3° neðan við meðallag. Á Norðausturlandi, útsveitum á Fljótsdalshéraði og Austfjörðum var yfirleitt um 2°-2%° kaldara en í meðalári, en hlýjast var í lág- sveitum Árnes- og Rangárvallasýslna sem og á Reykjanesi, en þar var hiti um undir meðallagi. Úrkoma var 57% meðalúrkomu. Mest að tiltölu var hún á Norðausturlandi, þar sem hún var sums staðar um 1% sinnum meðalúrkoma. Annars staðar á landinu var hún minni en í meðalári og minnst að tiltölu um vestanvert Norðurland, í Isafjarðarsýsl- um, á Snæfellsnesi og Borgarfirði og austanverðu Suðurlandsundirlendi, en á þessum svæðum var úrkoman minni en helmingur þess, sem venjulegt er. Úrkomudagar voru allt að 9 fleiri en í meðalári á Norðausturlandi, Fljótsdalshéraði og Suðausturlandi, en annars staðar voru þeir færri en í meðalári, venjulega 4-6 dögum færri. Þoka var venju fremur algeng um norðanvert landið og á Suðausturlandi, en sjald- gæfari víðast hvar annars staðar. Um þoku var getið alla daga mánaðarins. Þ. 25. og 26. var þoka á 28-30 stöðvum, þ. 24. á 23 stöðvum, þ. 6., 14. og 27. á 16-18 stöðvum, þ. 5., 7., 15., 20., 23. og 28. á 10-14 stöðvum og aðra daga mánaðarins á 1-9 stöðvum. Þrumur heyrðust á Síðumúla þ. 14. Vindar. Norðanátt var langtíðust að tiltölu í mánuðinum, en suðaustanátt var einnig venju fremur algeng. Suðvestanátt var fátiðust að tiltölu og einnig var logn mjög fátítt, miðað við það sem venjulegt er í ágústmánuði. Snjólag. Alautt var allan mánuðinn á öllum stöðvum nema á Grímsstöðum, þar sem alhvitt var þ. 30. SkaSar. Litil flugvél skemmdist nokkuð í lendingu á Bakkafirði þ. 13. vegna hliðar- vinds. Framhald á bls. 61/. Stormar. VEDURHÆD 9 VINDSTIQ VEÐURHÆD 10 VINDSTIQ EDA MEIRA EDA MEIRA .. SI Wind force 10 s Q fa u • VEDURHÆD 9 VINDSTIQ EDA MEIRA 2 o W ÍO S Q h to * VEDURHÆD 10 VINDSTIG EDA MEIRA Wind force ^ 10 12. 1 21. 3 27. i 22. 2 Vm. N-NNE 10. cd CSJ i *) Number of stationa with wind force ^ 9. (58)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.