Veðráttan

Ukioqatigiit

Veðráttan - 02.12.1979, Qupperneq 1

Veðráttan - 02.12.1979, Qupperneq 1
VEBRÁTTAN 1979 Arsyfirlit samið A veðurstofunni Tíðarfarsyfirlit TÍÖarfariO var óhagstætt nema 3 síðustu mánuðina og á sunnanverðu landinu var hey- skapartíð góð. Loftvægi var 0.4 mb undir meðallagi frá 0.5 mb yfir meðallagi á Galtarvita að 1.3 mb undir því á Höfn í Hornafirði. Hæst stóð loftvog 1039.8 mb á Vopnafirði nóttina 6.-7. april, en lægst 945.0 mb á Gufuskálum 2. desember kl. 2. Hiti var 2.1° undir meðallagi og er þetta kaldasta ár frá 1892 að telja. Þess ber þó að geta að samanburðurinn við árin fram til 1920 byggir á fáum veðurstöðvum. Kaldast var í innsveitum á Norðausturlandi, 2%°—3° undir meðallagi. Mildast var á norðvestanverðu landinu og við suðurströndina, en þar var hitinn víða 1%°—2° undir meðallagi. Árssveifla hitans var mest 18°—19° í uppsveitum norðaustanlands, minnst var hún 10%° á tveimur stöðvum við austurströndina. Um mestan hluta landsins var hún 13° —16°. Úrkoma var 89% af meðalúrkomu. Hún var meiri en í meðalári norðaustanlands og á fáeinum stöðvum í öðrum landshlutum, en annars undir meðallagi, víðast 60—90% af meðalúrkomu. Mest var ársúrkoman á Kvískerjum 3410 mm, en minnst I Forsæludal 311 mm. Mesta sólarhringsúrkoma 243 mm mældist 1. október á Kvískerjum og er það mesta sólarhringsúrkoma sem mælst hefur hér á landi. Heildarúrkoma á Kvískerjum í október var 772 mm og er það mesta mánaðarúrkoma sem mælst hefur á landbau. Sól- arhringsúrkoma fór yfir 100 mm í 11 skipti og var milli 50 og 100 mm í 86 skipti. Sólskin. I Reykjavík voru sólskinsstundir 1496 eða 247 umfram meðallag. Á Akureyri voru þær 872 eða 90 færri en í meðalári. Veturinn (des. 1978—mars 1979). Desember var hagstæður en siðari mánuðirnir óhag- stæðir nema helst febrúar. Hiti var 2.1° undir meðallagi og var kaldast á Norðaustur- og Suðvesturlandi, allt að 3° kaldara en í meðalári. I 43 daga var hitinn 5°—11° undir meðallagi og í 41 dag frá meðallagi að 4° undir því. 24 daga var 1°— 4° hlýrra en í með- alári og í 13 daga var hitinn 5°—8° yfir meðallagi. Orkoma var % af meðalúrkomu. Hún var víðast innan við meðallag nema á tveimur svæðum á Norðaustur- og Austurlandi, þar sem hún var frá meðallagi að rösklega % umfram það. Minnst var úrkoman um miðbik Norðurlands, 35—40% af meðalúrkomu. Vorið (apríl—maí) var mjög óhagstætt. Hiti var 3.3° undir meðallagi. Kaldast var norðaustan til á landinu, víðast 4°—5° undir meðallagi, en mildast á Suður- og Vestur- landi, víðast 2%°—3° kaldara en i meðalári. 1 24 daga var 5°— 8° kaldara en í meðalári og í 32 daga var hiti frá meðallagi að 4° undir því. 1 5 daga var hiti 1°—5° yfir meðal- lagi. Úrkoma var 72% af meðalúrkomu. Norðanlands var hún yfirleitt frá meðallagi að tvöfaldri meðalúrkomu. Annars staðar var úrkoma minni en í meðalári og allviða sunnan til á landinu og á Vesturlandi aðeins 30—50% af meðalúrkomu. Sumarið (júni—sept.) var mjög óhagstætt um norðaustanvert landið, en heyskapartíð var góð í júlí og ágúst á Suður- og Vesturlandi. Hiti var 1.9° undir meðallagi. Á Norð- austur- og Austurlandi var yfirleitt 2°—2%° kaldara en í meðalári, annars staðar á landinu var hiti viðast 1%°—2° undir meðallagi. í 8 daga var hiti 5°—6° undir meðallagi og i 96 daga frá meðallagi að 4° undir því. 1 18 daga var 1°—4° hlýrra en í meðalári. Úrkoma var í meðallagi. Hún var frá 60% af meðalúrkomu og upp í meðallag með ströndum fram vestan lands, á Suðausturlandi, Austfjörðum og á nokkrum stöðvum i uppsveitum austanlands og norðan. Annars staðar var hún viðast frá meðallagi að 40% umfram meðallag. Haustið (okt.—nóv.) var hagstætt. Hiti var 0.7° undir meðallagi. Um allt land var kaldara en i meðalári. Á nokkrum stöðvum á Vestur- og Norðvesturlandi og við suðaust- urströndina var vik hitans frá meðallagi innan við %°, en víðast var hann %°—1° undir meðallagi. I 6 daga var hiti 5°—7° undir meðallagi og i 36 daga frá meðallagi að 4° undir þvi. I 19 daga var 1°—6° hlýrra en í meðalári. Urkoma var rétt yfir meðallagi (101%). Á suðaustanverðu landinu, með ströndum fram suðvestanlands og á nokkrum stöðvum við norður- og vesturströndina var hún frá meðallagi að 70% yfir því, og í Vestmanna- eyjum var meira en tvöföld meðalúrkoma. Annars staðar var úrkoma á bilinu 30—90% af meðalúrkomu. (97)

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.