Veðráttan - 01.03.1981, Qupperneq 1
VEÐRÁTTAN 1981
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐVRSTOFUNNI
Mars
Tíöarfarið var óhagstætt um allt land. Kalt var og snjóþyngsli umtalsverð nema á
Suðvesturlandi. Færð tafsöm og gæftir slæmar. Mikil svellalög á túnum og í úthögum.
Fyrstu tvo daga mánaðarins var hæg austlæg átt á landinu og fremur hlýtt. Frostlaust
var sunnantil og einnig að deginum norðantil. Orkomulaust var að mestu fyrstu tvo
dagana. Aðfaranótt þ. 3. olli lægðardrag við suðurströndina talsverðri úrkomu, slyddu og
rigningu sunnanlands, en éljagangur var norðantil. Síðdegis þ. 3. létti til um stundar-
sakir á Norðurlandi um leið og lægðardragið tók að dýpka við suðurströndina en þvi
fylgdi talsverð snjókoma og slydda þá um nóttina og fram eftir degi þ. 4.
Dagana 4.-9. var kalt í veðri. Lægðardragið þokaðist austsuðaustur. Vindátt var norð-
austlæg oftast kaldi eða stinningskaldi, nema þ. 5. og 6. var hvasst víða um land og
sums staðar stormur á annesjum norðanlands. Snjókoma var mikil á Vestfjörðum og á
Nórðurjandi allt austur á Hérað, en sunnanlands var þurrt og víða léttskyjað. Aðfara-
nótt þ. 7. dró úr veðurhæðinni og snjókoman minnkaði nema á Vestfjörðum var áfram
mikil snjókoma og fram á næsta dag. Að kvöldi þ. 8. var veðrið að mestu gengið niður
og vindátt var orðin austlæg og úrkoma lítil.
Síðdegis þ. 9. þykknaði upp á Suður- og Suðvesturlandi og fór að rigna um kvöldið.
Kröpp lægð hafði myndast suðvestur af landinu. Hlýnaði mjög í hvassri suðaustanátt
og varð úrkomu vart í öllum landshlutum. Lægðin hreyfðist hægt austur og hreyfðust
skil hennar norður yfir landið aðfaranótt þ. 11. með mikilli úrkomu.
Næstu daga var milt veður á landinu, hæg breytileg átt og skýjað með dálitilli úr-
komu á víð og dreif um landið, oftast rigning, en þó voru snjóél viða á annesjum norðan-
til. Þokubakkar lágu við suðausturströndina á þessu timabili.
Þ. 14. var hæð fyrir suðvestan landið og lá hæðarhryggur norður á Grænlandshaf, sem
olli hvassri norðvestanátt með éljagangi um vestanvert landið fyrst i stað, en siðdegis
lægði. Um nóttina var frost viðast hvar töluvert. Síðdegis þ. 15. fór að þykkna upp
vestantil með ört vaxandi lægð vestur af landinu. Hreyfðist hún hægt austur og síðar
suðaustur yfir landið. þ. 16. og 17. og fylgdi henni mikið úrfelli um allt land.
I kjölfar þess að lægðin þokaðist austsuðaustur og varð kyrrstæð milli Islands og
Noregs gekk í garð einn versti kuldakafli mánaðarins. Hvöss norðan- og norðaustanátt
var um allt land dagana 17.—18. Snjókoma eða éljagangur var víða um land einkum
voru mikil hriðarveður á Austur- og Norðausturlandi og á Vestfjörðum þessa daga.
Þ. 19. lægði i bili og iétti þá til um sunnan- og vestanvert landið en í öðrum landshlut-
um gekk á með éljum. Síðdegis þ. 20. hvessti aftur að norðaustan og var strekkings
vindur um allt land næstu fjóra sólarhringa. Snjókoma var mikil austast á landinu þessa
daga en í öðrum landshlutum voru él, nema á Suðurlandi var úrkomulaust að mestu.
Um kvöldið þ. 23. lægði og vindátt varð austlægari og hríðarveðrinu slotaði.
Dagana 24.-28. hlýnaði mjög um allt land með eindrægri austan og suðaustanátt, oft
hvassri syðst. Urkomu var víða vart um landið en í litlu magni, nema þ. 26. þokaðist
úrkomusvæði norður yfir landið og féll þá víða mjög mikil úrkoma austan- og suðaust-
anlands mest sem slydda. Þ. 27. var vindátt suðaustlæg og hæg sunnantil en norðan-
lands var hæg breytileg átt. Aðfaranótt þ. 28. nálgaðist úrkomusvæði að suðaust-
an og þokaðist það norðvestur yfir landið. Orkomu varð vart á öllu. landinu og í
mjög miklum mæli á Austur- og Suðausturlandi. Þ. 29. var skýjað og víða dálítil rigning.
Um kvöldið nálgaðist landið djúp lægð úr suðvestri og fóru skil hennar norðaustur yfir
landið um nóttina en lægðin varð eftir á Grænlandshafi. Næstu daga var fremur hlý
sunnan- og suðvestanátt á landinu. Á Norður- og Norðausturlandi létti til síðdegis þ. 30.
en þá um nóttina tók að hvessa mjög að suðaustan syðst á landinu er skil nálguðust
landið að sunnan og þokuðust norðaustur yfir það með mikilli úrkomu á Suðausturlandi.
Loftvcegi var 3.1 mb undir meðallagi, frá 5.8 mb undir meðallagi á Höfn að 0.3 mb
yfir þvi á Hornbjargsvita. Hæst stóð loftvog 1031.3 mb í Grímsey þ. 3. kl. 12 en lægst
964.1 mb í Vestmannaeyjum þ. 10. kl. 21.
Vindar: Norðaustanátt var tíðust miðað við meðallag en norðan- og austanáttir voru
einnig algengar. Sunnan- og suðvestanáttir voru fremur fátíðar.
VeOurhceG: I Vm. komst veðurhæð í 11 vindstig 6 daga þ. 4., 6., 11., 17., 24. og 29.,
(17)