Veðráttan - 01.05.1981, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAX 1981
MÁNAÐARYFIRLIT SA.MII> A VEiMJRSTOFdVNI
Maí
Mánuðurinn var hægviðrasamur og þurr og fremur kalt var einkum norðanlands.
Sauðburður fór víðast hvar fram í húsum og búfé var á fullri gjöf mesf allan mánuð-
inn vegna gróðurleysis. Kalskemmdir í túnum voru umtalsverðar. Gæftir voru með
ágætum.
Þ. 1. var hægviðri og léttskýjað austantil á landinu en vestantil var hæg suðvestanátt
og víða úrkoma þegar leið á daginn, einkum á Vestfjörðum. Á hádegi þ. 2. var komin
suðlæg átt um allt land. Lægð nálgaðist landið úr suðvestri og fór að rigna um nóttina
við suðurströndina, en lægðin þokaðist síðan til suðausturs og varð þvi ekki vart úr-
komu annars staðar.
Dagana 3.-8. var austan- og norðaustanátt á landinu og milt veður sunnantil en
heldur kaldara norðantil. Þ. 3. var talsvert úrfelli um vestanvert landið og varð úrkomu
vart um allt land þann dag. Þ. 4. var einnig mikil úrkoma um land allt, rigning sunnan-
til en slydda eða snjókoma norðantil. Kólnaði nokkuð um leið og vindur snérist til norð-
austurs. Dró ekki verulega úr úrkomunni sunnantil fyrr en aðfaranótt þ. 5. en áfram
voru lítilsháttar él norðantil. Hélst þurrt að mestu sunnan jökla næstu tvo daga en
fyrir norðan gekk á með smáéljum. Þ. 7. hvessti að norðan og jókst éljagangurinn
talsvert fyrir norðan en sunnanlands var þurrt og að mestu léttskýjað. Þ. 8. gekk norð-
anáttin niður og háþrýstisvæði yfir Grænlandi þokaðist austur og lá suður um Island
og var hæg breytileg átt á landinu og léttskýjað að mestu en fremur kalt.
Um hádegi þ. 9. fór að þykkna upp með sunnan kalda vestast á landinu og lægð nálg-
aðist landið að suðvestan. Hlýnaði mjög og fór að rigna að morgni þ. 10. þegar skil
þokuðust inn á landið vestanvert. Þau hreyfðust hægt austur yfir landið næsta sólar-
hring og varð úrkomu vart í öllum landshlutum nema á Suðausturlandi. Næstu tvo daga
var mild suðlæg átt á landinu og þurrt að mestu um állt land og viða léttskýjað.
Síðdegis þ. 12. fór að rigna sunnantil á landinu þegar lægðardrag sunnan úr hafi
teygði sig inn á landið. Hvessti að norðaustan um stundarsakir á Vestfjörðum og snjóaði
þar, en annars staðar var hæg austlæg átt og súld til landsins en þokubakkar við strend-
ur. Næstu tvo daga hélst veður svipað nema á Vestfjörðum, þar gekk norðaustanáttin
niður. Að kvöldi þess 14. myndaðist lægð við suðvesturströndina, þokaðist hún norður yfir
landið og olli talsverðri úrkomu um sunnan- og vestanvert landið.
Dagana 15.—21. var nokkuð hlýtt á öllu landinu, og var þokuloft á hafinu umhverfis
landið. Dagana 15.—16 var aðgerðarlítið veður og víða léttskýjað nema á stöku stað
við ströndina voru þokubakkar. Aðfaranótt þ. 17. þykknaði upp og varð dálítil úr-
koma við strendur Suður- og Austurlands í austan golu næstu tvo sólarhringa. Skýjað
var og létti einungis til á stöku stað að deginum í innsveitum norðanlands. Síðdegis
þ. 19. létti til og var hægviðri og úrkomulítið dagana 20. og 21., og veður fór kólnandi
einkum fyrir norðan og vestan.
Þ. 22. fór að rigna við Austur- og Suðurströndina í hægt vaxandi austanátt en næsta
morgun snérist vindur til norðurs þegar smálægð myndaðist við austurströndina og
þokaðist siðan vestur yfir landið sunnanvert. Orkomu varð vart í öllum landshlutum
en víðast hvar var hún mjög litil.
Dagana 24,—31. var hæg austan- og norðaustanátt og svalt á landinu og var það ennþá
umgirt þokulofti. Dagana 24.-27. var úrkomulaust víðast hvar nema á Austurlandi
var súld eða rigning. Árdegis þ. 28. féll talsverð úrkoma á Suður- og Austurlandi þegar
grunn lægð myndaðist yfir sunnanverðu landinu. Næstu tvo daga var skýjað og kyrrt
veður og voru skúraleiðingar á Suður- og Austurlandi en þurrt að mestu annars staðar.
Aðfaranótt þ. 31. herti vindinn aðeins um leið og vindátt snérist til norðausturs. Létti
þá til sunnanlands en Htilsháttar snjóél voru norðanlands.
Loftvægi var 2.5 mb undir meðallagi, frá 3.4 mb undir meðallagi í Reykjavik að 1.1
mb undir meðallagi á Vopnafirði. Hæst stóð loftvog, 1029.9 mb, á Hornbjargsvita þ. 8.
kl. 13 og í Grímsey þ. 8. kl. 09, en lægst, 994.5 mb, í Vestmannaeyjum þ. 2. kl. 24 og
þ. 3. kl. 03.
(33)