Veðráttan - 02.12.1982, Qupperneq 33
1982
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
Veðurhorfum á öðrum degi var útvarpað í lok lesturs kl. 1245 og 1615.
Frá strandarstöðvum Póst- og símamálastofnunar var útvarpað almennu yfirliti,
stormaðvörunum og spám fyrir þau spásvæði sem næst eru hverri stöð, sem hér segir:
Áð næturlagi var útvarpað frá Isafirði, Neskaupstað og Vestmannaeyjum kl. 0133 og
0503, en frá Siglufirði og Hornafirði þrem mínútum síðar í báðum tilvikum. Að degi
til var útvarpað frá Neskaupstað kl. 1045, 1645 (aðeins mánuðina okt.—mars) og 2245,
og hverju sinni þrem mínútum síðar frá Siglufirði og Hornafirði. Otvarpað var á aðal-
vinnutiðnum stöðvanna að undangengnu tilkynningakalli á 2182 kílóriðum.
Auk þessara veðurfrétta var veðurspám fyrir miðin útvarpað á islensku og ensku
í loftskeytalykli kl. 0530, 1130, 1730 og 2330.
Veðurkort voru send til skipa kl. 1000 og 2300. Sent var á 6482 kílóriðum og með
120 snúningahraða á mínútu. Otsendingartímar voru kl. 1000 og 2300.
Veðurfréttir birtust í sjónvarpi alla daga sem sjónvarpað var.
Útgáfustarfsemi og fleira.
VeSráttan: Prentuð voru mánaðaryfirlit fyrir janúar til desember 1981. Mánaðar-
yfirlit fyrir 4 stöðvar voru unnin um hver mánaðamót og send áskrifendum.
HafíssTcýrslur: Gefnar voru út skýrslur um hafís við strendur íslands fyrir tímabilið
október 1974 til september 1980.
JarSskjálftaskýrslur: Gefin voru út skjálftabréf í samvinnu við Háskóla Islands.
Preliminary Seismogram Readings var gefið út vikulega.
Að beiðni Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins, var reiknað út viðmiðunarár
fyrir 5 veðurstöðvar til notkunar við útreikninga á rekstrarkostnaði húsa og áætlunar-
gerð fyrir hitaveitur.
Handrit til útgáfu var afhent Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.
Fiskifélag Islands gaf út ritið ,,Allra veðra von“, en þar eru greinar eftir 11 veður-
fræðinga og einn haffræðing.
Starfskynning: I 24 daga, á timabilinu febrúar til apríl, var tekið á móti skólafólki
á Veðurstofunni. Ýmist var um að ræða heimsóknir hópa eða starfskynningu fyrir
einstaklinga.
Alþjóðasamstarf.
Fram var haldið þátttöku í COST-43, samstarfi Evrópurikja á sviði tækni og vísinda og
samstarfi við Chr. Michelsens Institutt í Bergen og Meteorological Office i Bracknell,
um rekstur veðurdufls (ODAS-451) tæpar 200 sjómílur SSA af Hornafirði.
Samstarf var við frönsku og norsku veðurstofurnar um sjósetningu rekdufla til veður-
athugana, suðvestur af Islandi, sem hér segir:
Dags. StaSur °N, °W Fjöldi
Frönsk dufl 14.08 60.0 35.0 2
16.08 56.1 47.1 2
29.08 65.0 30.0 1
Norskt dufl 29.10 63.1 29.8 1
Borgþór H. Jónsson sótti sameiginlegan fund tækniráða Alþjóðaveðurfræðistofnunar-
innar og Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um tilhögun flugveðurþjónustu og fjarskipta-
mál þar að lútandi. Fundurinn var haldinn í Montreal 14. apríl — 7. maí.
Flosi Hrafn Sigurðsson var fulltrúi Islands á tveimur stjórnunarfundum COST-43
í Briissel 20.—23. maí og 8. desember. Hann sat ennfremur fund svæðisnefndar COST-43
7. des. og átti í báðum ferðum viðræður við samstarfsaðila um sjálfvirkar veðurathug-
anir á sjó.
Hlynur Sigtryggsson sótti fund veðurstofustjóra í Vestur-Evrópu í Helsinki 14.—16.
maí, fund í stjórnarnefnd NAOS í Genf 6.-9. júlí, áttunda þing svæðissamtaka VI
(Evrópu) innan Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar haldið í Róm 4.—16. október, fund
stjórnarnefndar Evrópumiðstöðvar fyrir meðaldrægar veðurspár í Reading 18,—19.
nóvember og fund veðurstofustjóra á Norðurlöndum í Kaupmannahöfn 29. nóvember.
(129)