Veðráttan - 01.02.1994, Side 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1994
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Fcbrúar
Veðráttan í mánuðinum var talin nokkuð hagstæð, einkum vestan- og norðanlands þar sem var
úrkomulítið og bjart. Fremur hægviðrasamt var og gæftir nokkuð góðar. Færð á vegum var sæmileg
á öllu landinu.
Dagana 1. - 21. var fremur mild veðrátta á landinu. Suðlægar áttir voru ríkjandi og var
víðáttumikið lágþrýstisvæði yfir Atlantshafi.
í upphafi mánaðarins var lægðarmiðja á vestanverðu Grænlandshafi og önnur yfir Suðausturlandi
á hreyfingu norður. Snjóaði í snarpri norðvestanátt vestan til á landinu en rigning var víða austan
til. Þ. 2. og 3. var svöl sunnan- og suðvestanátt með éljum um sunnan- og vestanvert landið en
léttskýjað var norðaustanlands. Um kvöldið þ. 3. snerist vindátt til suðausturs og síðar austurs og
hvessti þegar leið á nóttina. Djúp lægð var við írland að þokast norðvestur og fór að rigna á
Suðausturlandi með kvöldinu þ. 4. Dagana 5. og 6. var stíf austanátt á landinu. Rigning var á
Austurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi en úrkomulítið í öðrum landshlutum nema á
norðanverðum Vestfjörðum þar var slydda og rigning. Aðfaranótt þ. 7. dió úr veðurhæðinni og
stytti að mestu upp nema við ströndina austan til þar var súld eða rigning.
Aðfaranótt þ. 9. lægði víðast hvar en undir morgun snerist vindur til suðvesturs og þykknaði
upp vestanlands en létti til austanlands. Næstu nótt þykknaði upp með vaxandi suðaustanátt og fór
að rigna í suðaustan hvassviðri vestan til um morguninn þ. 10. Upp úr hádegi snerist vindur til
suðvesturs og létti til austanlands en slyddu- og snjóél voru vestan til. Um nóttina nálgaðist
úrkomusvæði landið enn á ný með hvassri suðaustanátt. Skil fóru austur yfir landið þ. 11. í
kjölfarið kólnaði og dagana 12. og 13. var suðvestlæg átt með éljum sunnan- og vestanlands en viða
léttskýjað norðan- og austanlands. Aðfaranótt þ. 14. nálgaðist kröpp lægð landið úr suðri og fór
hún norðnorðaustur yfir landið. Hlýnaði og rigndi um allt austanvert landið en vestan til var
norðan- og norðvestanátt og snjókoma. Síðdegis þ. 14. lægði og létti víða til um leið og dálítill
hæðarhryggur þokaðist austur yfir landið. Þ. 15. var hæg austlæg átt og víða snjókoma um norðanvert
landið en skúrir eða él sunnan og austan til. Dagana 16. - 20. var suðaustlæg átt á landinu.
Víðáttumikil nærri kyrrstæð lægð var suður af Hvarfi og lá lægðardrag norðaustur í átt til íslands.
Síðdegis þ. 17. skall á norðaustan hvassviðri á Vestfjörðum og einnig var hvöss austan- og
suðaustanátt á sunnan- og vestanverðu landinu og rigndi víða. Upp úr hádegi þ. 18. dró úr
veðurhæðinni og stytti upp en næstu nótt gekk í suðaustan hvassviðri með rigningu um sunnan- og
vestanvert landið en úrkomulítið var norðaustanlands. Heldur dró úr suðaustanáttinni aðfaranótt
þ. 20. og var hæg sunnanátt og síðar hægviðri og smáskúrir við suðurströndina en víða léttskýjað í
öðrum landshlutum þ. 20. og 21.
Dagana 22. - 24. kólnaði og var austan- og norðaustanátt á landinu oftast fremur hæg. Hæð var
fyrir norðan land og víðáttumikið lágþrýstisvæði suður af landinu. Léttskýjað var vestan til á
landinu en smáél voru við ströndina norðan- og austanlands. Þ. 25. lægði og létti til um allt land.
Síðustu daga mánaðarins var hægviðrasamt og bjart veður á landinu og talsvert frost. Með kvöldinu
þ. 28. þykknaði upp og hlýnaði í vaxandi suðaustanátt vestanlands og úrkomusvæði nálgaðist landið
úr suðvestri.
Loftvægi var 0,6 mb undir meðallagi áranna 1931-1960, frá 2,1 mb undir því í Kvk að 2,4 mb
yfir því á Dt. Hæst stóð loftvog,1031,8 mb, á Hbv þ. 23. kl. 24 og þ. 25. kl. 03 og lægst, 956,1 mb,
á Ak þ. 24. kl 12.
(9)