Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1964, Blaðsíða 172
172
SKRÁ U M DOKTORSRITGERÐIR ÍSLENDINGA
orsnafnbót í Löwen, og var ætlazt til, að ég gerði það líka, en ég nennti því aldrei, ég
var ekkert gefinn fyrir þess konar. Prófið, sem Ólafur tók, var eitthvert hið lélegasta,
sem hugsazt gat, einhver þýðing úr Herodot, og hitt þar eftir.“
Alls eru hér á skrá 150, sem hljóta doktorsnafnbót við 48 háskóla í 13 löndum.
Skipting eftir löndum er eins og hér segir: í Danmörku 40, Þýzkalandi 31, á íslandi 28,
í Bandarikjunum 24, Svíþjóð 8, Frakklandi 5, Eriglandi 4, Skotlandi 3, Noregi 3, Aust-
urríki 1, Belgíu 1, Sviss 1 og Kanada 1.
Aðalskránni er raðað í aldursröð, sem miðast við vörn eða viðurkenningu rit-
gerðar, en ekki útgáfuár. Aftan við lýsingu ritgerðar er í hornklofum dagsetning og
ártal, sem sýnir, hvenær hún er varin eða viðurkennd. Þess er getið í athugasemd, ef
doktorsritgerð er ekki varin í sömu horg og hún er gefin út. í skránni er ætíð notuð
sögnin „verja“, þótt hafður sé ýmis háttur á um doktorspróf við einstaka háskóla.
1 efnisskrá er ritgerðunum skipað í 30 flokka, sem raðað er í stafrófsröð eftir heit-
um þeirra. Skipa mætti stærri flokkum í undirflokka, og mundi þá tala þeirra hækka
að mun. Aftan við titil er tilfært, hvaða ár ritgerð hefur verið varin eða viðurkennd,
og er ártalið lykill að aðalskránni.
Skrá um nöfn háskóla er fyrir aftan nafnaskrá og raðað eftir borgum.
Það er vitanlega ekki með vilja gert að fella neinn undan. Einkum er erfitt að afla
upplýsinga um óprentaðar doktorsritgerðir. Það væri þakksamlega þegið að fá
fregnir af doktorum frá þessu tímabili, ef lesendur sakna einhvers eða einhverra, sem
ættu að vera í skránni.
Að lokum skal þeim mörgu þakkað, sem fúslega hafa gefið greið svör við fyrir-
spurnum og jafnvel sent Landsbókasafni doktorsritgerðir sínar að gjöf.
1666
1. ÞORLÁKSSON, ÞÓRÐUR (1637—1697). Q. B. V. D. Dissertatio Chorographico-
-Historica De Islandia, Brevissimam Insulæ hujus Descriptionem proponens, ac
Auctorum simul qvorundam de eá errores detegens, . . . Wittebergæ, Wendt, 1666.
(48) bls. 4to. [14/3 1666].
2. úlg. 1670; 3. úlg. 1690; 4. útg. í Joh. Chph. Martini Thesatmis dissertationum. II. 2,
Niirnherg 1763, 265.-328. bls.
1698
2. VÍDALÍN, ARNGRÍMUR ÞORKELSSON (um 1667—1704). Gustus ad Isocra-
tem hoc est Encomii Evagoræ Primi Capitis versus primus. . . . Hafniæ, Baxman,
1698. (12) bls. 4to. [1/6 1698].
1775
3. THORSTENSEN, PÉTUR [SIGURÐSSON] (1752—1792). Dissertatio inaugu-
ralis de ligni Qvassiæ usu medico, .. . Hafniæ, Godiche, 1775. (10), 51 bls. 8vo.
[3/8 1775].
Boðsrit Hafnarháskóla til doktorsvarnar, 21 bls., fylgir ritinu.