Vísbending - 05.10.1983, Page 2
VÍSBENDING
2
Gjaldeyrisstýring:
Hvaða aðferðir eru notaðar til að spá fyrir um gengi?
Gengisspár og framvirkt gengi
Nákvæmar spár um gengi
helstu gjaldmiðla væru gulls
ígildi, ef til væru. Mikil vinna
hefur því verið lögð í að búa til
aðferðir sem nota mætti til að
spá fyrir um gengi. Eins og
rakið var í 8. tbl. Vísbendingar
ræðst raunverulegur kostnaður
við að verjast gengistapi, til
dæmis með framvirkum við-
skiptum, af mismuninum milli
framvirks gengis á samnings-
degi og daggengis við afhend-
ingu. Þar sem framvirkur
markaður er til má líta á fram-
gengi sem nokkurs konar
„gengisspá" markaðarins. Til
að meta gildi mismunandi að-
ferða við gengisspár er árangur
þeirra því oftast borinn saman
við framvirkt gengi.
Gengislíkön
Allar hagspár byggjast á því að
notuð séu einhvers konar líkön,
formleg eða óformleg. Oft er
sagt að ajaldeyrissalar fái hlut-
ina á „tilfinninguna"; af reynsl-
unni læra þeirað dragaályktanir
um áhrif mikilvægra atburða og
breytinga hagstærða á þróun
gengis. Þessi „ líkön “ eru ekki
verri en önnur. Ef „tilfinning“
gjaldeyrissala bregst honum æ
ofan í æ á hann á hættu að fara
á hausinn og annar fær þá að
spreyta sig í staðinn.
í formlegri líkönum er alltaf
hægt að skrifa niður hvað það
er sem hefur áhrif til breytingar
á gengi. Sagt er að gengi gjald-
miðils skýrist af ákveðnum
breytum; breytur gætu til
dæmis verið viðskiptajöfnuður
eða vextir eða verðbólga og
yrðu þá kallaðar skýringabreyt-
ur. Gengið sjálft er þá sú breyta
sem verið er að skýra, einnig
kölluð háða breytan. Formlegu
líkönunum er skipt í tvennt. í
einnar breytu líkönum er gengi
aðeins skýrt með fyrri gildum
sama gengis. í flóknari líkönum
koma fleiri breytur til sögunnar,
til dæmis viðskiptajöfnuður,
vextir eða gengi annarra gjald-
miðla.
Líkön með einni breytu
f einnar breytu líkani til að skýra
DM/$ gengið væri gengi t.d. í
næsta mánuði skýrt eingöngu
með DM/$ gengistölum frá
liðnum tíma. Þessi líkön eru
stundum kölluð tímaraðalíkön
og fór notkun þeirra mjög vax-
andi á áttunda áratugnum á
ýmsum sviðum, bæði á tækni-
sviðum og í viðskiptalífinu.
Notkun tímaraðalíkana við
gengisspár hefur aukist mjög
síðan fljótandi gengi tók við af
fastgengiskerfinu 1973.
Tímaraðalíkönin byggjast á því
að hægt sé með tölfræðilegum
aðferðum að finna dæmigerða
hegðun stærðarinnar ( fortíð-
inni, sem að einhverju leyti
muni haldast áfram. Margir
munu kannast við svokölluð
Box-Jenkins líkön, en víða eru
til tölvuforrit sem nota má til að
meta einnar breytu líkön eftir
aðferðum Box og Jenkins.
Kostirnir við þessi líkön eru að
þau eru einföld og nýta vel þær
upplýsingar sem fólgnar eru í
fyrri gildum tímaraðar. Helsti
gallinn er að gamlar tölur gefa
ekki alltaf rétta mynd af því sem
koma skal.
Tímaraðalíkön þau sem mest
eru notuð við gengisspár grein-
ast síðan í fáeinar tegundir og
verða þeim gerð nánari skil
síðar.
Líkön með fleiri en einni breytu
í líkönum með einni breytu er
ekki notuð nein önnur vitneskja
til að spá eftir en þær upplýs-
ingar sem felast í fyrri gildum
sömu breytu. Fleiri skýringar-
breytum er ætlað að bæta úr
þessu.
Helstu tegundir gengislíkana
með fleiri en einni breytu eru:
(i) Þjóðhagslíkön, þar sem
dregnar eru ályktanir um
breytingar gengis af mis-
muninum á milli heildar-
framboðs og -eftirspurnar
í hagkerfinu.
(ii) Greiðslujafnaðarlíkön, þar
sem ályktanir eru dregnar
af vöruskiptajöfnuði, við-
skiptajöfnuði eða greiðslu-
jöfnuði um breytingar
gengis.
Helstu gerðir gengislíkana
Þjóðhagslíkön
------r----------
Peningalfkön
-------1-----
I
I
I
J
I
„Samsett Ifkön"