Vísbending


Vísbending - 15.12.1983, Blaðsíða 2

Vísbending - 15.12.1983, Blaðsíða 2
VÍSBENDING 2 Tór Einarsson: Þjóðarbú í þrengingum - þrjú skakkaföll borin saman Stafa af framboðsbresti Á tæpum tveim áratugum hafa fslendingar þrívegis hreppt öflugt andstreymi í efnahagsmálum. Árin 1967-68 varð þjóðarbúið fyrir skakkaföllum er síldarafli brast og útfluttar afurðir féllu í verði. Annar skellur dundi á 1974-75, þegar olíuverð margfaldaðist og viðskipta- kjör rýrnuðu til muna. En hið síðar- nefnda átti án efa upphaf sitt í olíu- verðssprengingunni að talsverðu leyti. Tíðarfjandi knýr dyra þriðja sinni 1982 með aflabresti, og sér raunar ekki fyrir endann á þeim ógöngum. Eru jafnvel líkur á enn frekari sam- drætti árið 1984 vegna þess hversu tæpt þorskstofninn virðist standa. Frá fræðilegu sjónarmiði eru öll þessi áföll af sama tagi. Þau mætti nefna einu nafni framboðsbresti (e. supply shocks), þarsem „framboð" áfram- leiðsluþætti ýmist bregzt (sbr. afla- brestur) eða hann hækkar í verði (sbr. olía). Þrengingarnar, sem hrjáðu þjóðarbúið árin 1967-68 eru í ætt við núverandi vandræði að því leyti að hvort tveggja stafar af afla- bresti. Samdrátturinn 1974-75 á hins vegar rót sína að rekja til verð- breytinga; hækkandi olíuverðs og lækkandi verðs á sjávarafurðum, m.ö.o. versnandi viðskiptakjara. í þessu sambandi verður mönnum e.t.v. spurn: Hversvegnasigldisam- dráttur ekki í kjölfarið þegar olíuverð hækkaði engu minnaárin 1979-80? Skýringarinnar er trúlega að leita í góðum aflabrögðum þessi ár. Því til stuðnings má nefna að verðmæti fiskaflans upp úr sjó (á föstu verði) jókst um 27% milli áranna 1978 og 1980. Má því með nokkrum rétti segja, að islendingar séu nú að súpa seyðið af seinni olíuskellinum. Úr því skyldi þó ekki dregið, að afla- brestur veldur sérstökum vandamál- um eins og fram kemur síðar í þessu yfirliti. Áhrifá helstu hagstærðir Myndin í hægri hlið opnunnar sýnir samdráttarskeiðin þrjú í fremur samandregnu formi. Á myndina má Gengi dollarans framh. og útlánum er stjórnaö með beinum hömlum, en ekki vöxt- um. í Bandaríkjunum njóta lán- takar skattf rád ráttar vegna vaxtagreiðslna, og útlánum er stjórnað með vöxtum. Vextir eru því löngum hærri í Banda- lesa bæði lárétt og lóðrétt. Með því að lesa lóðrétt er unnt að glöggva sig á þróun hinna ýmsu hagstærða á hverju tímaskeiði um sig. Ef lesið er lárétt má bera saman breytingar hag- stærðar (t.d. þjóðarframleiðslu) á hinum mismunandi tímabilum. Efsti hluti myndarinnar sýnir breytingar fiskafla og útflutningstekna. Árin 1967-68 hrapaði verðmæti fiskafl- ans upp úrsjó um 27%, áföstu verði reiknað. Útflutningstekjur rýrnuðu litlu minna. Að öðru óbreyttu hefði aflabresturinn ekki haft í för með sér slíka tekjurýrnun þar sem þjónustu- útflutningur var (og er) töluverður. En verðfall á afurðum kom til viðbótar, svo að útflutningstekjurnar féllu við- líka og aflaverðmætið. Árin 1974-75 lækkuðu útflutnings- tekjur um 5%, eingöngu vegna versnandi viðskiptakjara. Ekki eru öll kurl komin til grafar varðandi þau áföll sem dunið hafa yfir 1982-83, þar sem aflatölur yfirstandandi árs liggja ekki fyrir. Myndin sýnir samdrátt upp á 16-17%, sem gæti e.t.v. reynzt meiri á endanum. Útflutningstekjur hafa ekki fallið jafnmikið, því við- skiptakjör hafa fremur vænkazt en versnað síðan 1981. Auk þess er lík- legt að framleiðsla til útflutnings, önnur en úr sjávarfangi, aukist í ár. Áhrif skakkafallanna á þjóðarfram- leiðslu (VÞF), þjóðartekjur (VÞT) og atvinnu má sjá á miðhluta myndar- innar. Eins og að líkum lætur varð samdrátturinn mesturárin 1967-68. Þá minnkaði VÞF um 8% og VÞT um 12%. Þjóðarframleiðslan skrapp saman um 2% 1975, VÞT um 6%. Á árunum 1982-83 hefur VÞF fallið um rúm 7% og VÞT um 6% eftir því sem næst verður komizt. Heildar- framleiðsla þjóðarinnar virðist því hafa minnkað ámóta og í afturkippn- um 1967-’68. Þá kom til verulegs at- vinnuleysis, sem á myndinni má sjá. í þessu viðfangi er rétt að vekja athygli á tvennu. í fyrsta lagi stafar rýrnandi þjóðarframleiðsla upp á síð- kastið að nokkru af stórauknum vaxtagreiðslum til útlanda. Því er svonefnd „verg landsframleiðsla” ríkjunum en Japan, bæði af þessum ástæðum og öðrum, en með skattabreytingum mætti draga nokkuð úr mis- muninum. Verði þessi áform og hug- myndir stjórnvalda að veru- (sjá skýringar) einnig sýnd fyrir núverandi samdráttarskeið. En hún er betri vísbending um vinnuaflseftir- spum en VÞF. Sýnt er, að landsfram- leiðslan hefur ekki dregizt saman til jafns við þjóðarframleiðsluna. j öðru lagi fór atvinna ekki að bresta að marki fyrr en veturinn 1968-69. Atvinnuleysistölum fyrir landið allt var fyrst safnað í desember 1968. Þó áreiðanleg gögn liggi ekki fyrr hér um, er talið að nokkurt atvinnuleysi hafi ríkt veturinn 1967-68, snöggt um minna þó en síðar varð. Nokkuð bryddaði á atvinnuleysi í fyrravetur. Erfitt er að spá um framhaldið, en ólíklegt er að atvinna verði meiri í vetur en þann sem leið, að óbreytt- um aflahorfum. Ekki gætti atvinnu- leysis svo neinu nam árin 1974-76. Hins vegar styttist vinnutími sumra stétta nokkuð. Á myndinni er líka sýndur við- skiptajöfnuður I hlutfalli við þjóðar- framleiðslu. Öllum er þessum mis- ærum sameiginlegt, að verulegur halli hefur myndazt í viðskiptum við útlönd, um og yfir 10% af VÞF. Svo virðist sem hallinn verði minni nú en á fyrri samdráttarskeiðum. En þá er þess að gæta, að innflutningur skipa, flugvéla og véla til virkjana og ann- arra stórframkvæmda var mun fyrir- ferðarmeiri þá en nú. Neðsti hluti myndarinnar sýnir þróun þjóðartekna og atvinnutekna á starf- andi mann, auk kauptaxta. Þar kemur m.a. fram, að þjóðartekjur á mann hafa rýrnað ámóta nú og í kreppunni 1974-75. Þær lækkuðu hins vegar nokkru meira árin 1967-’69. Niðurstaðan af ofangreindri samantekt er því í stuttu máli sú, að hvað framleiðslu og atvinnu í landinu áhrærir, voru áföllin 1967-68 hast- arlegust þeirra þriggja, sem hér eru könnuð. Þetta er vitaskuld sagt með þeim fyrirvara, að ekki komi til veru- legs aflabrests umfram þann sem þegar er orðinn. Hvað viðvíkur breyt- ingum á þjóðartekjum - einkum þjóðartekjum á starfandi mann - svipar þessum tímabilum meir saman. leika, mætti búast við einhverri hækkun á gengi yensins gagn- vart dollara. Enn sem komið er virðist slík hækkun þó ekki lík- leg nema staða dollarans á al- þjóðlegum markaði taki að veikjast.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.