Vísbending


Vísbending - 31.10.1984, Blaðsíða 3

Vísbending - 31.10.1984, Blaðsíða 3
VISBENDING 3 Hair vextlr og atvinnuleysi Athygli manna beinist aö dreifingu fjármagns Ræöa dr. Owens á ársþingi SDP I ræáu sinni a ursluiuli sosuil- demókratat'lokksins 1 Bretlandi (Soeial Democratie Barty. SDP) i sióasta mánuði lueytði lormaðui Ilokksins. dr. D;i\ id Owen. við mtili sem talið er að muni verða æ ntik- ilvægara 1 hreskum stjórnmtilum a j næstu árunt: hvernig jaína megi dreilingu fjármagns i hresku at- \ innnlíti. Þeirsem viljaað kostii frjals markaðar fái að njóta sín 1 efna- hagslífinu hafa jafnan lagt áherslu á tið eignaraðild i atvimuirckstri verði sem almennust. Með því rnoti tær Iramtak einstaklingsins að njóta sín auk þess sent alntenn hlutahréfaeign eykur skilning fólks á rckstri lyrir- tækja og eiginleikum markaðarins. En þetta eru ekki einu rökin fvrir jáfnari dreifingu fjármagns í vest- rænum þjóðfélögum. Miki! aukning atvinnuleysis á skömmum tírna og veruleg hækkun vaxta umfram verð- hólgu hefur vakið menn til tim- hugsunar unt dreifingu fjármagns i atvinnurekstri á nvjan leik. Dr. Owen henti á tvær leiðir til að gera eignarhald í atvinnurekstri al- mennt og jafnara en nti er. í stað þess að selja hlutahréf í ríkisfyrirtækjum á hlutahréfamarkaði. en þá leið hafa bresk stjórnvöld valið, mætti ein- faldlega gefa hlutabréfin og dreifa þeim jafnt á milli allra þegnanna. Samuel Brittain, einn af ritstjórum Financial Times, benti fyrstur manna á þessa leið til að jafna eignarhaldog þá vegna dreifingar arðs af olíu- auðlindum Breta í Norðursjó (sjá Vísbendingu 30. nóvember 1983). Síðari leiðin sem dr. Owen riefndi er miklu umdeildari en hún er fólgin í því að hlutabréf fyrirtækja flytjist smátt og smátt í eigu ávöxtunarsjóðs, en þessi sjóður væri í eigu allra landsmanna og dreifði þannig arö- gjöt’jafnt til allra þegna. Kaupmáttur kauptaxta Eins og fyrr sagöi hefur aukið atvinnuleysi í Evrópu og hækkandi tjármagnskostnaður orðið til þess að heina s|onum manna að dreifingu Ijarmtigns. Htigsanlegt er að ny tækni liafi minnkað verulega eftir- spurn eltir vinnu — ef til vill til Irambúðar — að minnsta kosti miðað við þau laun sem nu gilda. Að öðru jöfnu þvrfti ekki að skipta verulegu ntáli þott eftirspurn eftir öðrum framlciðsluþættinum minnki. Kennslubókin segir að þa ntuni eftirspurn eftir hinunt framleiðslu- þættinum. fjármagni. aukast. En minnkandi eftirspurn eftir vinnuafli og lækkandi verð á vinnu skiptir verulegu máli vegna þess að flest fólk á ekki aðrar eignir en húsnæöi sitt og hefur þ\í ekki tekjur af sölu annarra framleiðsluþátta en vinnu sinni. A það er bent að óvist sé að þau laun sem skapa jafnvægi á vinnumarkaði. þ.e. lítið sem ekkert atvinnuleysi, séu nógu há til að hægt sé að lifa af þeim. Raunar bendir allt til þess að ..jafnvægislaunin" séu lægri en atvinnuleysisbætur í ýmsum ríkjunt (dr. Herberg Giersch. for- stöðumaður Kiel lnstitute í Þýska- landi, hefur t.d. haldiö því frarn að launataxtarí mörgum Evrópuríkjum séu 15-20% hærri en ..jafnvægis- laun"). Núverandi dreifing tjármagns í Evrópuríkjum leiöir til þess að fólk þarf að segja sig á sveitina, meö öllu sem því tylgir. rnissi það vinnu sína eða lækki laun svo aö ekki sé hægt aö lifa af þeint. Eignatekjur tlestra eru svo litlar að þær skipta ekki máli. Væri fjármagn í atvinnurekstri hins vegar dreifðara gætu fleiri hætt sér upp lág laun eða engin laun og lifað af eignatekjum. Talið er að dreifing fjármagns verði meðal mikilvægustu mála sem stjórnmálamenn verða að takast á við á næstu árum. Þau ötl sem ráða því að tjármagn verður meira virði en vinnuafl minna virði berast víða vegna alþjóðlegs fjármagnsmarkaðs og utanríkisverslunar. Félagsleg rök gegn háum vöxtum og lágum laun- um, gegn vaxandi hlut fjárntagns í framleiðslutekjum. eru eingöngu þau að fleiri hafa tekjur af vinnu cn fjármagni. Þessi rök hyrfu eöa yrðu amk. léttari á metunum ef jatnari drcifing fjármagns tækist. Dæmisaga prófessors Meades Jantes Meade hcfur dregið upp lýsingu af þessum vanda í nýlegri grcin i Journal of Social Policv (Vol. 13. nr. 2. 1984). Meade bendiráað framleiðslutæki verði brátt nokkurn veginn jafnhæf og mannlegar hendur. Við núverandi launastig kynnu vélmenni brátt að verða mun arðbærari við framleiðslustörf en he fðb u ndið vin n uafI. Við slíkar aðstæður kynnu laun að lækka þannig að full atvinna haldist nokkurn veginn. Af þessu hlytistenn ójafnari dreifing fjármagns en nú þannig að „auðugir eigendur vél- ntenna gætu haft í þjónustu sinni fjölda bryta og þjóna á lágum launtim". Einnig kynni svo að fara. og það telur prófessor Made lík- legra. að verkalýðsfélögum takist að halda rauntekjum háum. Þá fer launþegum sífækkandi og atvinnu- levsi sívaxandi. Niöurstöður Meades eru á þann veg að laun eigi að fá að „breytast á þann veg að allir sem þess óska geti átt kost á að vinna. Það er hugsanlegt og ásættanlegt ef allir nytu sann- gjarns hluta arðs af vélmennum og tölvurn. og raunar af eignum al- mennt". Prófessor James Meade. nóbels- verðlaunahafi í hagfræði, Samuel Brittan, ritstjóri Financial Times, og dr. David Owen, læknirog formaður sósíaldemókrata á Bretlandi, eru ólíkir menn og eiga sjálfsagt ekki margt sameiginlegt. en hafa þó allir komist að sameiginlegri niðurstöðu. Ódýr vélmenni sem geta leyst af hólmi hefðbundið vinnuafl geta orðið til blessunar eða mikillar bölvunar eftir því hvernig til tekst aö dreifa eignarhaldi fjármagns í vest- rænunt ríkjunt. Jafnvel án tækni- breytinga í anda vísindaskáldsagna er jafnari dreifing fjármagns æskileg til að unnt sé aö skapa atvinnu- tækifæri fyrir þá sem vilja vinna án skaðvænlegra áhrifa af breyttri skipan framleiðslutekna ntilli vinnu- afls og fjármagns.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.