Vísbending - 22.02.1990, Side 3
VÍSBENDING
MYND 1
AfKoma sjávar- Afkoma "annarra' Afkoma allra
útvegsgreina greina greinanna
tíma þegar raunvextir voru neikvæðir.
Það er einnig trúlegt að þessi ntikli
munur í arðsemi skýrist að nokkru af
því að fyrirtæki í sjávarútvegi séu í
meira rnæli en fyrirtæki í öðrum
greinum rekin með önnur markmið en
arðsemi að leiðarljósi.
í annan stað eru sveiflurnar í
arðsemi sjávarútvegsins mikið meiri
en sveiflurnar í arðsemi ‘annarra’
greina. Staðalfrávik arðsemishlutfalls-
ins var 4,5% fyrir sjávarútveginn en
aðeinsl,4% fyrir ‘aðrar’ greinar. í
þessu sambandi er vert að geta þess að
við útreikning á arðsemi sjávarútvegs-
ins þá reiknaði ég sem framleiðslu-
tekjur samanlagðar framleiðslutekjur
fiskveiða og fiskvinnslu. Ef ég hefði
dregið milliviðskipti þessarra greina
frá, þá hefðu, nteð þeirri aðferð sem
hér er notuð, komið í ljós enn meiri
sveiflur í arðsemi sjávarútvegs. En það
sarna á vitaskuld við um arðsemi
‘annarra’ greina. Þar hefur ekki heldur
verið tekið tillit til milliviðskipta
greinanna nema hvað varðar
verslunina.
í þriðja lagi, þá sýnir mynd 1 glöggt
að arðsemi ‘annarra’ greina breytisl
oft í gagnstæða átt við arðsenti sjávar-
útvegs. Þegar uppgangur er í sjávarút-
vegi þá minnkar arðsemi ‘annarra’
greina, en þegar sjávarútvegurinn
verður fyrir áföllum, þá er arðsemi
‘annarra’ greina hvað mest. Einkum er
þetta áberandi árið 1983. Og þetta
skeður þrátt fyrir að velta ‘annarra’
greina á föstu verðlagi dregst saman
um leið og tekjur í þjóðfélaginu þegar
sjávarútvegurinn verður fyrir áföllum.
Ef við skoðum fylgni á milli arðsemi í
sjávarútvegi og arðsemi ‘annarra’
greina þá kemur í ljós að það er
neikvæð fylgni upp á -0,44 milli þcirra.
Þetta er að vísu ekki mikil fylgni, en
telst þó vera marktæk. Mikil arðsemi í
sjávarútvegi fer þannig saman með
lítilli arðsemi í ‘öðrum’ greinum og
öfugt. Milli arðsemi í fiskveiðum og
arðsemi í fiskvinnslu er aftur á móti
jákvæð fylgni upp á 0,5, sem sýnir að
þessar mjög svo tengdu greinar skipta
velgengni og áföllum sæmilega
bróðurlega á ntilli sín. Þelta sést í mynd
2. Aftur á móti er ekki hægt að finna
neitt marktækt samband á milli arðsemi
í heild og arðsemi í sjávarútvegi, þótt
sumirhlutaraf línuritinu í mynd 1 gætu
gefið tilefni til að ætla að neikvætt
samband sé þarna á milli.
Þessar staðreyndir eiga sér nokkuð
eðlilegar skýringar. Velgengnin í
sjávarútvegi skapar auknar tekjur og
aukna eftirspurn eftir vörum og
vinnuafli. Og þótt þessi aukna eftir-
spurn eftir vörum og þjónustu, sem
‘aðrar’ greinar framleiða, auki tekjur
þessarra fyrirtækja (sérstaklega þeirra
fyrirtækja, sem þurfa ekki að hafa
áhyggjur af samkeppni erlendis frá, en
sú samkeppni eykst með hækkuðu
raungengi á velgengnistímum sjávar-
útvegsfyrirtækja), þá minnkar arðsemi
þeirra vegna þess að launakostnað-
urinn vex hraðar en tekjurnar. A
samdráttartímum í sjávarútvegi skeður
það gagnstæða.
MYND 2
Afkoma veida Afkoma Afkoma
og vinnslu fiskveida fiskvinnslu