Vísbending


Vísbending - 02.06.1995, Síða 2

Vísbending - 02.06.1995, Síða 2
V ISBENDING útfl utningstekna af VLF hljóti að hækka sjálfkrafa. Það er hægt að rökstyða þá fullyrðingu að vægi milliríkjaviðskipta aukist með hagvexti og efnahagslegum framförum. Það sem einkum styður þessa ályktun er aðmilliríkjaverslun hefureflsthraðaren landsframleiðsla heimsins. Þá eru einnig þærkenningar til semtelja aðákveðnar útflutningsgreinar séu leiðandi í hagvaxtarþróun hvers lands, eins og sjávarútvegur hefur verið hér á landi. Kenningarnar byggja á því að þessar greinar hafi meiri dýnamík, og því sé meiri gróska íþeirri starfsemi sem tengist milliríkjaviðskiptum. Þessi regla er reyndar ekki án undantekninga eins og sést af dæminu um Japan, helsta hagvaxtar- og útflutningsundri tíma- bilsins frá 1960-1990, í töflunni hér fyir neðan. Þótt þessi kenning gangi ekki upp fyrir Japan þá fær hún vissan stuðning þegar íslenskar hagtölur eru skoðaðar. I mynd á blaðsíðunni á undan eru sýnd 10 ára meðaltöl af vægi útflutnings í landsframleiðslu og 10 ára meðaltöl hagvaxtar, mælt með árlegum meðal vexti þjóðartekna á föstu verðlagi. I báðum tilfellum eru meðaltölin miðuð við síðasta árið þannig að talan fyrir 1970 er meðaltal af vægi útflutnings fyrir árin 1961-1970 og meðaltal hagvaxtar á árunum 1960-1970. Fylgni raðanna, sem mælist 76%, er augljós af myndinni. Auðvitað sannar þessi fylgni ekki að um orsakasamband sé að ræða, en óhætt ætti að vera að fullyrða að þær upplýsingar sem hér hefur verið bent á gefi vísbendingar um að vandamál íslenska hagkerfisins kunni að vera að það sé ekki nógu opið. Höfundur er hagfrœðingur á Þjóðhagsstofnun 'Pciul Krugman: Tilhögun gengismála á Islandi: kostir við stefnumörkun; Fjármálatíðindi nr. 3, 1991. 2Heimildirfyrir tölum íþessari töflu eru OECD (ritið National Accounts 1960- 1993) og Þjóðhagsstofnun. 3Sbr. greinina Aukning útflutnings er forsenda góðra lífskjara eftir Jóhannes Nordal og Sigurgeir Jónsson í Fjármálatíðindum nr. 3, 1968. Stefnumótun hjá opin- berum stofnunum Ólafur Gunnarsson Uppi eru tvö meginsjónarmið um hvernig lítaberi ástefnumótun. Annars vegar er litið á stefnumótun sem áætlanagerð og er þá gengið út frá að spá megi um framtíðina með nokkuri vissu. En hins vegar er það sjónarmið að umhverfið sé svo óútreiknanlegt að ekki sé hægt að gera raunhæfar áætlanir og markmið stefnumótunar eigi að vera uppbygging stjómkerfis sem gerir kleift að bregðast skjótt við síbreytilegu umhverfi. Ytriaðstæðurráðanokkruum það hvort er betur við hæfi, en almennt er nauðsynlegt að taka tillit til beggja sjónarmiða við stefnumótun. Skilgreina má stefnumótun opinberra stofnana með eftirfarandi hætti: Öguð vinnubrögð við töku grund- vallarákvarðana og framkvœmd aðgerða sem móta eðli staifseminnar og vísa veginn um livert halda skuli í starfsemi stofnunarinnar. S tefnumótun einkafy rirtækj a tekur mið af samkeppni, en stefnumótun opinberra fyrirtækja snýst meira um samvinnu þeirra aðila sem eru ábyrgir fyrir stjórn stofnunarinnar. Stefnumótun felur í sér að spurt er spurninga eins og hvað erum við að gera, hvað við getum gert, og hvað við eigum að gera. Nýjar áherslur við stjórn ríkisstofnana Auknar kröfur til ríkisfyrirtækja og minni stöðugleiki í starfsumhverfi þeirra valda því að leita þarf nýrra leiða við stjórnun þeirra. Margar ríkisstofnanir standa frammi fyrir því að framlög lil þeirra hafa staðið í stað eða minnkað á sama tíma og kröfur um árangur hafa aukist. Stefnumótun er eitt þeirra tækja sem stjórnendur opinberra stofnana geta beitt til að lakasl á við síbreytilegt starfsumhverfi og kröfur um betri árangur. Stefnumótunarvinna f sinni einföldustu mynd felst stefnumótunarvinna í því að stjórnendur og þeir sem hafa ákvarðanavald yfir - n Útflutningur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu Sæti Sæti 1960 1960 1993 1993 Lúxemborg 85,80% 1 85,60% 1 Belgía 38,40% 5 68,80% 2 írland 30,30% 7 67,70% 3 Holland 45,70% 2 50,60% 4 Noregur 41,30% 4 43,30% 5 Austurríki 24,30% 9 37,90% 6 Sviss 29,30% 8 36,40% 7 Danmörk 32,20% 6 34,90% 8 Finnland 22,50% 11 33,30% 9 ísland 43,00% 3 32,80% 10 Svíþjóð 22,70% 10 32,80% 11 V-þýskaland 19,00% 14 31,90% 12 Nýja Sjáland 22,00% 12 31,00% 13 Kanada 17,20% 15 29,50% 14 Bretland 20,90% 13 25,30% 15 Portúgal 15,40% 16 24,10% 16 Ítalía 13,00% 19 23,40% 17 Frakkland 14,50% 17 22,60% 18 Grikkland 9,10% 21 22,20% 19 Spánn 8,90% 22 19,30% 20 Astralía 14,20% 18 19,30% 21 Tyrkland 4,50% 25 14,20% 22 Mexíkó 8,80% 23 12,40% 23 Bandaríkin 5,20% 24 10,30% 24 Japan 10,70% 20 9,40% 25 v________________________________________________________y 2

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.