Vísbending


Vísbending - 23.11.1995, Blaðsíða 1

Vísbending - 23.11.1995, Blaðsíða 1
V Viku ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 23. nóvember 1995 45.tbl.13. árg. Sótt að bíl- eigendum Nýlega lagði nefnd skipuð tveimur iögmönnum fram til- lögur sínar um bætur í skaða- bótamálum. Niðurstaða nefndarinnar er að hækka beri örorkubætur frá þeim lögum sem nú gilda og munar þar víða mjög miklu. Ef farið verður að tillögum lögmannanna munu iðgjöld í ökutækja- tryggingum hækka svo um munar. Jafnframt hækkar framfærsluvísitala og þar með skuldir landsmanna. Astæðan fyrir þessum tillögum er sú að mikill þrýstingur hefur verið frá nokkrum lög- mönnum um að bætur verði í öllum til- vikumjafnháarí nýjum skaðabótalögum og áður var reiknað samkvæmt svo- nefndum „tryggingafræðilegum út- reikningum“ á tjónum. Iðgjöld hækka stöðugt Áður en lengra er haldið er rétt að rifja upp forsögu þess að sett voru ný skaða- bólalög sem tóku gildi árið 1993. Rekslur ökutækja er dýr og tryggingar bætast ofan á aðra þætti. Fólk fær oflast ekkert út úr tryggingunum heldur bæta þær tjón þannig aðtjónþoli erjafnsettur eftir og áður. Ábyrgðartryggingar eru vegna tjóna sem menn valda öðrum, oft án þess að geta gert sér nokkra grein fyrir umfangi skaðans. Loks er það svo að þótt um sjötti hver ökumaður í þéttbýli valdi árekstri árlega, þá eru það sem betur fer aðeins bara um einn af hverjum hundrað sem valda líkamsmeiðslum. Sly satjón eru þannig mikill minnihluti tjónanna en kostnaður vegna þeirra er miklu meiri en þar sem aðeins verða skemmdir á öku- tækjum. Slysakostnaður hefur á fáum árum hækkað úr því að vera innan við 20% afheildartjónum ínálægt65%. Allt þetta er flókið, sem leiðir til þess að um- ræðaum tryggingareroftekki af neinum skilningi á eðli þess kostnaðar sem að baki iðgjöldum stendur. Margir virðast ekki átta sig á því að nokkurt samband sé milli iðgjalda og tjóna. í umræðunum virðist stundum láta hæst í þeim sem minnstan skilning hafa. Menn trúa öllu upp á tryggingafélögin og þau hafa ekki verið lagin við að koma upplýsingum á framfæri. 1 ársbyrjun 1988 var svonefnd slysa- trygging ökumanns og eiganda lögboðin, en með henni fékk ökumaður sem slas- aðist vegna eigin ökulags bætur til jafns við aðra slasaða. Þetta var hrein viðbót við aðrar tjónabætur og allt varð þetta til þess að iðgj öld hækkuðu um liðlega 60% að raungiídi árið 1988. Þrátl fyrir þetta kom í ljós að ökumannstryggingin nýja stóð ekki undir kostnaði við tjón og iðgjöld í henni hækkuðu ár frá ári. Tryggingafélögin töpuðu miklum peningum á ökutækjatryggingum á árunum 1984 til 1991 þráttfyririðgjalda- hækkanir. Þær drógu hins vegar úr kaup- mætti almennings. Ríkisvaldið og aðilar vinnumarkaðarins höfðu marglýst yfir áhyggjum af þessari þróun og árið 1993 tóku gildi ný lög sem gerbreyttu grund- vellinum fyrir tjónabótum. í þeim fólst m.a. að bætur vegna tiltöiulega lítillar örorku lækkuðu frá því sem verið hefði en hækkuðu vegna mikillar orku- skerðingar. Þetta varþingnefndinni sem um málið fjallaði vel ljóst. Þeir sem halda öðru fram hafa ekki mikið álit á athyglis- gáfu þingmanna. Lögin nýju eru að mestu leyti byggð á dönskum lögum um sama efni, nema hvað íslenskar örorkubætur voru ákveðnar um 25% hærri en þær dönsku. Þótt nýju skaðabótalögin hafi verið í gildi í liðlega tvö ár er þó ekki komin mikil reynsla á þau. Síðastliðið vor féll dómur í Hæstarétti þar sem breytt var vaxta- prósentu sem nota skyldi þegar metið er fjárhagslegt tjón. Þessi dómur leiddi til þess að bætur vegna tjóna sem urðu fyrir 1. júlí 1993 hækkuðu. Munur milli gamla og nýja tírnans á bótum, þar sem örorka er lítil, óx enn. Verðbólga eykst í tillögum lögmannanna tveggja er tekið mið af dómi Hæstaréttar og lagt til að bætur vegna skertrar vinnugetu hækki almennt. Samkvæmt útreikningum Vís- bendingar er meðalhækkun örorkubóta samkvæmt tillögunum nálægl 50%. Y mislegt vekur athygli, t.d að lágmarks- bætur eru miðaðar við laun rétt undir meðallaunum skv. athugun Þjóðhags- stofnunar og aldraðir fá bætur fyrir fjárhagstjón, þótt þeir séu hættir vinnu. Hvort tveggja stuðlar að því að menn séu betur settir el'tir tjón en áður og er því brot á grundvallarreglu í skaðabótarétti. Þessir gallar á tillögunum veikja tiltrú á þeim en það þarf þó ekki að koma í veg fyrir að þeim verði hrundið í framkvæmd. Það er því mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvaða áhrif þær hafa á bíl- eigendur, sem áendanum borgabrúsann. Stærstur hluti bóta er nú vegna slysa og gera má ráð fyrir því að örorkubætur séu milli helmingur og þrír fjórðu hlular slysabótanna. Ekki er enn komin næg reynsla af nýju lögunum til þess að meta hlutfallið með meiri nákvæmni. Miðað við þetta leiðir tillaga lögmannanna tveggja til þess að bætur hækki um 15- 25% og hækkun iðgjalda verði litlu minni. Meðaliðgjöld eru nálægt 35 þús- und krónum í lögboðnum tryggingum og heildarkostnaðarauki því nálægt 15 þúsundkrónumítveggjabílafjölskyldu. Þetta kallar á 26 þúsund króna launa- hækkun, þegar tekið er tillit til skatta. Framfærsluvísitala myndi hækka um 0,4-0,5% og skuldir heimilanna hækka um rúman milljarð á einni nóttu. Allt væri þetta gott og blessað ef réttar- bót væri að þessum breytingum. Megin- atriði er að sá sem lendir í tjóni sé jafn- settur peningalega fyrir og eftir tjón. Á þessu Itafa litlar athuganir verið gerðar og forsendur þær sem tryggingastærð- fræðingar by ggðu útreikninga sína á eru alls ekki endilega í samræmi við raun- veruleikann. Dr. Pétur Blöndal hefur kannað samspil fj árhagsafkomu fyrir og eftir sly s og tekið mið af bótum almanna- trygginga og lífeyrissjóða. Þær athuganir benda til þess að vægi þeirra þátta hafi verið stórlega vanmetið þegar fjárhags- legt tjón vegna orkutaps er reiknað. Rök hníga að því að sá grunnur sem lögmennirnir tveir miða við í tillögum sínum, það er bætur eftir gamla laginu, sé rangur. Það væri rangt af þingmönnum að leggja álögur á alla ökumenn, og reyndar flesta landsmenn, með því að leiða í lög skaðabótagrunn sem er jafn ótraustur og sá sem þessar tillögur gera ráð fyrir. Efni blaðsins í forsíðugrein um bílatryggingar er sýnt fram á að iðgjöld í ökutœkjatrygg- ingum og framfœrsluvísitala hœkka ef farið verður að tillögum nefndar um breytingar á skaðabótalögum. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, varar við því að horfið verði frá markmiðum um jöfnuð í ríkis- fjármálum, þótt betur horfi í efnahags- lífinu eftir samning um álversstækkun. Þorvaldur Gylfason, prófessor, svarar því hvers vegna stjórnvöld velja oft stefnu sem skerðir kjör meginhluta þjóðarinnar í greininni Lögregluhagfrœði. V__________________________________J

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.