Vísbending


Vísbending - 23.11.1995, Qupperneq 3

Vísbending - 23.11.1995, Qupperneq 3
Lögregluhagfræði Dr. Þorvaldur Gylfason Menn þurfa ekki að vera ýkja vel að sér í lögreglusögum Agötu Christie eða annarra höfunda til að vita hvemig morðrannsókn fer fram: lögreglan leitar að kveikju, til- efni, tilgangi. Sama aðferð getur skilað mönnum langa leið við rannsóknir á ýmsum öðrum meinsemdum mannfé- lagsins. Samgöngur, verð og menntun Við skulum taka örfá dæmi til um- hugsunar. • Hvers vegna eru vegirnir svona vondirá Haítí? Þaðstafarafþví, að stjórn Duvalier-feðganna, „Papa Doc“ og „Baby Doc“, sem hrökklaðist að vísu frá völdum fyrir fáeinum árum, vildi í raun og veru, að vegirnir væru vondir, svo að fólkið í landinu ætti þá erfiðara með að fara langar leiðir á andspyrnufundi. Stjórnarherramir leystu hins vegar sam- gönguvanda sjálfra sín með því að fara allra ferða sinna á torfærutækjum eins og þeim, sem prýða bifreiðagey mslur banka og ýmissa ráðuneyta í Reykjavík. • Hvers vegna var póst- og síma- kerfið í Sovétríkjunum sálugu ónothæft og símaskrár ófáanlegar nema handa nokkrum útvöldum? Það var vegna þess, að einmitt þannig vildu stjórnvöld hafa það til að torvelda samskipti venjulegs fólks. Símasambandsleysið var tæki til þess að halda almenningi í skefjum. Símar leiðtoganna voru á hinn bóginn í ágætu lagi. • Hvers vegna var verðlagi þarna austur frá haldið niðri með handafli? Og hvers vegna var vöxtum og verði á gjald- eyri haldið langt neðan við markaðsvirði þar og víða í Afríku og annars staðar í vanþróuðum löndum um árabil, enda þótt stjórnvöld vissu (eða ættu a. m. k. að vita), að of lágir vextir og of hátt gengi skaða efnahagslífið til langframa? Þetta stafar af því, að skorturinn fékk skömmtunarstjórunum vald yfir öðru fólki og fyrirtækjum. Þeir, sem höfðu „góð“ sambönd og gátu tryggt sér að- gang að ódýrum vörum, lánumoggjald- eyri, höfðu einnig hag af þessari skipan. Þeir, sem hagnast mest á miðstýringu og halda henni við, reyna iðulega að villa á sér heimildir með því að dásama markaðsbúskap, einkaframtak og at- hafnafrelsi í orði. • Hversvegnaeigaskólarogmennta- stofnanir í vök að verjast víða um heim, þótt valdhafarnir tali mikið og fjálglega um gildi menntunar og menningar við ISBENDING hátíðleg tækifæri og reyni yfirleitt að senda börnin sín í beztu skóla, sem völ er á? „Papa Doc“ var læknir að mennt, en leyfði mörgum þegna sinna halda, að hann væri göldróttur, til að halda þeim í skefjum. Hann skildi að einræðisherrum stafarhættaaf upplýstu fólki. Hví skyldu óhæfir atvinnustjórnmálamenn reyna að efla menntun og menningu? Þeir gera sér yfirleitt grein fyrir því, að eitt hið fyrsta, sem fólkið myndi nýta menntun sína til, væri að fá sér betri foringja. Atvinnuleysi Og nú vaknar ein spurning enn: hvers vegna er atvinnuley si svo þrálátt þjóðfé- lagsböl víða um Evrópu, þótt allir segist vera á móti því? Svarið er einfalt: sumir hagnast á at- vinnuleysi, þótt þeir geri sér e. t. v. ekki glögga grein fyrir því. Hagsmunir þeirra standa í vegi fyrir atvinnu handa öllum. Skoðum þetta betur. Atvinnuleysi stafar alls staðar og ævinlega af því, að vinnuveitendur treysta sér ekki til að greiða þann kostnað, sem ráðning fleira fólks í vinnu hefði í för með sér, miðað við afköst vinnunnar. Þessi kostnaður er annars vegar laun til starfsmanna og hins vegar launatengd gjöld til ríkisins. Kaup og kjör eru víðast hvar í Evrópu yfirleitt ákveðin þannig, að fjölmenn verklýðsfélög semja við samtök vinnu- veitenda fyrir hönd launþega. Vinnandi fólk er þannig rofið úr nánum tengslum við atvinnureksturinn, sem er uppspretta launanna. Miðstýring kjarasamninga leiðir til misræmis í launamynduninni, þannig að stórir hópar launþega eru verð- lagðir út af vinnumarkaðinum án þess að fá rönd við reist. Þessum hópum er meinað að selja vinnu sína við því verði, sem vinnu veitendur eru fúsir og færir um að greiða; þá er talað um „undirboð". Þannig tekst sterkum launþegahópum, sem telja sig sæmilega örugga um at- vinnu sína, að semja um laun, sem leggja atvinnuöryggi veikari hópaí hættu. Þetta er segin saga víða um Evrópu. A atvinnuleysistímum þarf raunveru- legur launakostnaður að lækka og launa- munur trúlega að aukast, til að full at- vinna geti aftur komizt á að öðru jöfnu. Þeir, sem hafa vinnu og telja sig ekki þurfa að óttast um hana, hafa hag af því að hindra þá launalækkun, sem dygði til að útrýma atvinnuleysinu. I Rússlandi hefur atvinnuleysi ekki aukizl að neinu ráði síðustu ár þrátt fyrir hrun fram- leiðslunnar, og ekki heldur í Eistlandi og Lettlandi. Þetta stafar að miklu leyti af því, að vinnumarkaðurinn þar austur frá er nú orðinn frjáls og sveigjanlegur. Vinnuveitendur þar semja nú yfirleitt beint við launþega um kaup og kjör hver fyrir sig eins og í Sviss og Austur-Asíu, án milligöngu voldugra verklýðsfélaga og fyrirtækjasamtaka. Við þennan vanda bætast svo launa- tengdu gjöldin, sem eru þungur baggi á mörgum evrópskum fyrirtækjum. Ríkið lelur sig ekki geta misst þessar tekjur, því að þá færi stöðugleikinn í efnahags- lífinu út í veður og vind. Ríkið telur sig ekki heldur geta nýtt sér aðra hagfelldari tekjustofna í staðinn með því t. d. að taka upp umhverfisgjöld og veiðigjöld, því að þá myndu væntanlegir gjaldendur rísa upp til andmæla. Þeir, sem krefjast mikillar þjónustu af ríkinu eða neita að greiða fyrir umskipan skattheimtunnar, knýja því óbeint á um skattlagningu, sem stuðlar að áframhaldandi atvinnuleysi. Þarna liggur hundurinn grafinn. Takið eftir mynztrinu, því að það er eins í öllum dæmunum að framan: sterkir hópar reyna að skjóta sér undan kostnaði og varpa honum yfir á aðra. Það er eðli- legt, en þá ríður á því, að ríkisvaldið veiti sérhagsmunahópunum viðnám og standi heldur vörð um hag hinna, sem höllum fæti standa. Lág laun Og þá kemur lokaspurningin: hvers vegna er Island orðið að láglaunalandi, þannig að ríkisstjórnin er farin að auglýsa Island erlendis sem einhvers konar „lág- launaparadís" handa erlendum fjár- festurn, sbr. nýlegan landkynningar- bækling frá iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytinu? Þetta stafar af því, að miklir, en þröngir, hagsmunir eru bundnir við óbrey tt ástand íefnahagslífinu. Sterköfl standafastgegn þeim efnahags- og stjórnskipunar- umbótum, sem þjóðin þarf á að halda til að snúa vörn í sókn. Þessi öfl ráða ennþá lögum og lofum í þremur stærstu stjórn- málaflokkum landsins og í banka- og fj ár- málakerfinu og þá um leið í atvinnulífinu að verulegu leyti, en þau hafa þó smám saman verið að missa tökin annars staðar í þjóðfélaginu, einkum í fjölmiðla- heiminum og meðal menntamanna. Þessi öfl verða brotin á bak aftur fyrr eða síðar, en hætt er við því, að þau eigi eftir að kallaenn meiri fátæktyfirfólkið ílandinu frarn að því. Höfimdur er prófessor við Háskóla Islands ------♦----♦----♦------ Svartsýnir Ungverjar I könnun sem gerð var meðal al- mennings í Ungverjalandi í haust kom fram að þrált fyrir að þeirhafi haft nokkurt forskot á aðra Austur-Evrópubúa þegar alræði kommúnista lauk, þá eru þeir brúnaþungir þegar efnahagsmál ber á góma. Þeir spá 33% verðbólgu og búast við því að milli níu og tíu ár líði áður en lífskjör batna. 3

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.