Vísbending


Vísbending - 07.12.1995, Blaðsíða 3

Vísbending - 07.12.1995, Blaðsíða 3
hafi þess tíunda, kemur aldrei til með að greiða sín námslán til baka að fullu vegna þeirra reglna sem giltu um endurgreiðslur lánanna á þessum tíma. Eins og áður er minnst á var endurgreiðslutíminn 40 ár í námslánakerfinu á árunum 1982-1992 og tekjutengt greiðsluhlutfall 3,75% af útsvarsstofni. I raun þýðir þetta að þeir semtókuhærri lán enu.þ.b.3m.kr. rnunu aldrei greiða viðbótina því árlegar af- borganirm.v. 3,75% endurgreiðsluhlut- fall og meðaltekjur duga ekki fyrir hærri upphæð á 40 árum. Þeir sem fengu hæstu námslánin á þessum tíma, einkum þeir sem stunduðu dýrt framhaldsnám erlendis, fengu því ríflega námsstyrki frá ríkinu. Dæmi eru um að námsmaður hafi fengið tæplega 15 m.kr. námslán og er einfalt að reikna hversu stóran hluta ríkið ber af kostnaði við framhaldsnám hans. Rúmar lánsheimildir ásamt illa ígrunduðum reglum um endurgreiðslur námslána skýra að langstærstunr hluta þá 6,3 ma.kr. sem LÍN hefur lagt til hliðar í bókhaldi sínu. Mynd 2 segir rneira en rnörg orð um þetta, en þar er sýnd heildar- fjárbinding í lánum til einstaklinga sem skulda meira en 3 m.kr. hjáLánasjóðnum, flokkuð eftir fæðingarári lántakenda. Hinhliðin NýfjárhagsúttektRíkisendurskoðunar sýnir glöggt að brey tingarnar sem gerðar voru á lögum um LIN og úthlutunar- reglum á árinu 1992 hafa dregið veru- lega úr kostnaði ríkissjóðs af námslána- kerfinu. Kemur þar bæði til að láns- heimildir eru nú þrengri en áður og lán skila sérmun hraðar til baka vegna hertra endurgreiðsluákvæða. Aðþessu leyti má segja að markmið löggjafans með breytingunum hafi náðst. Hin hliðin á málinu, þ.e. sú er snýr að námsmönnum, er þó öllu dekkri. Þeim er nú gert að greiða 5% af heildartekjum sínum til greiðslu afborgana af náms- lánum sínum, einungis tvei mur árum eftir námslok. Eftir sjö ár frá námslokum hækkar hlutfallið s vo í 7% þar til lán hafa verið greidd að fullu. Ofanritaður benti á í áðurnefndri grein sinni í Vísbendingu að sé miðað við algengar ráðstöfunar- tekjur háskólafólks að námi loknu getur greiðslubyrði numið 6-10% eftir fjöl- skyldugerðum þegar endurgreiðslu- byrðin hefur náð hámarki. Svo þung greiðslubyrði geturhæglegaleitt til veru- legrar aukningar vanskila hjá Lána- sjóðnum á næstu árum og þá einkum hjá fólki sem leggur í íbúðarkaup að námi loknu. Að óbreyttu gæti núverandi bali því orðið skamm vinnur. Þetta ætti að vera stjórnvöldum enn meiri hvatning en ella til að gera róttækar breytingar á núver- andi endurgreiðsluákvæðum Lánasjóðs- laganna. Höfundur er hagfrœðingur Fullar bætur fyrir fjártjón Jón Steinar Gunnlaugsson Vi'sbending mun vera tímarit sem vill láta taka sig alvarlega. Hefur það, eftir því sem best er vitað, leitast við að birta greinar um þj óð- félagsmál, sem fyrst og fremst eru skrifaðar á fræðilegum forsendum, þó að þar sé ekki forðast að birta skoðanir á umdeildum málefnum. Slíka útgáfu hefur lengst af vantað á Islandi og er það því fagnaðarefni að forkólfar þessa tímarits skuli vilja halda henni úti. En útgáfa af þessu tagi krefst agaðra vinnubragða. Sé þeim ekki beitt, er viðbúið að tiltrúin, sem tímaritið þarfnast, hverfi sem dögg fyrir sólu. A forsíðu 45. tbl. 1995 birlist grein sem er fjarri því að uppfylla ofangreindar kröfur. Þar er tjallað um tillögur Gunn- laugs Claessen hæstaréttardómara og Gests Jónssonar hæstaréttarlögmanns unt breytingar á skaðabótalögum nr. 50/ 1993 með þeim hætti að furðu vekur. A.m.k. er ljóst að grein þessi er ekki til þess fallin að skoðast sem framlag til al- varlegra umræðna um skaðabótarétt. Til- lögunum er þama fundið flest til foráttu en þó það helst, að iðgjöld í bíla- tryggingum muni hækka ef lögunum verði breytt á þann hátt, sem tillögumar ráðgera. Eg sé ástæðu til að gera hér á eftir nokkrar athugasemdir við greinina og óska eftir að útgefendur tímaritsins birti lilskrifið. 1. Það er meginatriði í skaðabótarétti, að sá maður sem fyrir tjóni verður, með þeim hætti að annar aðili beri skaðabóta- ábyrgð á tjóninu, fái allt fjártjón sitt bætt. Verkefni löggjafar, sem fjallar um bætur fyrir líkamstjón á hendur skaðabóta- sky Idum aðila, er því að ákveða h vað þurfi til að koma til að um fullar íjártjónsbætur verði að ræða. Þar skipta hugleiðingar um iðgjöld í vátryggingum engu máli. Þeir sem vilja mótmæla lagareglu um fullar bætur fyrir fjártjón með því að vá- tryggingaiðgjöld á sviði ábyrgðar- trygginga muni hækka við lögleiðingu slíkrar reglu, eru í reynd að krefjast þess, að tjónþolar niðurgreiði iðgjöld með hluta af tjónbótum sínum. Það er því nauðsyn- legt að sleppa alveg vangaveltum um fjár- hæð vátryggingaiðgjaldaþegarfjallaðer umefnisreglurískaðabótarétti. Almenn- ar skaðabótareglur eiga ekki bara við kröfur sem vátryggingafélög ábyrgjast, heldur skaðabólakröíur almennt. 2. Hugleiðingar Vísbendingar um að vátry ggingaiðgjöld muni þurfa að hækka eru ekki heldur efnislega sannfærandi. Minnl skal á, að með hinum nýju skaða- bótalögum voru tekin upp svokölluð fjár- hagsleg örorkumöt, þar sem lagður skyldi haldbetri mælikvarði en áður á örorku- ÍSBENDING tjón. Þó að það sé rétt sem fram kemur í grein Vísbendingar, að lítil reynsla sé komin á lögin, er engu að síður ljóst af störfum örorkunefndar fram til þessa, að örorkan lækkar verulega í fjöldanum öllum af smærri málunum. Mín tilfinning er, að sú lækkun muni vega mun þyngra í heildardæminu en sú hækkun bóta sem felst í tillögunum um breytingu á skaða- bótalögunum. Að auki skal minnt á að iðgjöld í bílatryggingum lækkuðu ekkert, þó að skaðabætur til tjónþolanna væru stórlega lækkaðar, fy rst með svonefndum verklagsreglum vátryggingafélaga í nóvember 1991 og síðan með gildistöku skaðabótalaganna á árinu 1993. Það er skrýtið af talnakunnugum mönnum að birta útreikninga á hækkun iðgjalda á þeimi grundvelli sem hér um ræðir. 3.1 málflutningi V ísbendingar er vísað í dönsku skaðabótalögin til stuðnings því fyrirkomulagi á ákvörðun bótafjárhæða sem felst í íslensku lögunum, en eins og kunnugt er voru þau sett að danskri fy rir- mynd. Því er hins vegar sleppt að skýra það út fyrir lesendum tímaritsins, sem fram kemur í skýrslu tvímenninganna, að reiknireglur dönsku laganna eru byggðar á þeirri forsendu að unnt sé að hafa yfir 15% raunvexti af tjónbótum vegna framtíðartjóns. Byggðist hin danska lagasetning á sínum tíma á ruglingi milli nafnvaxta og raunvaxta, sem við Islendingar teljum okkur fyrir nokkru hafa skilið að ekki væri það sama á verðbólgutímum. Vísbending hefur áreiðanlega haft spurnir af því. Dönsku reglurnar hafa hlotið verðskuldaða gagn- rýni af þessum sökum þar í landi. 4. Sú aðferð sem tillögur Gunnlaugs og Gests byggist á við útreikning fram- tíðartjóns er sú sama og notuð er í rétti allra Evrópuríkja, að Danmörku undan- skilinni. Þessar aðferðir eru í grein Vís- bendingar taldar „ekki endilega í sam- ræmi við raunveruleikann“. Um þetta er ekki annað að segja en að þessar aðferðir fela í sér eins góða útreikninga á fjártjóni vegna örorku og menn hafa talið unnl að gera. Fyrir því öllu er gerð góð grein í skýrslu tvímenninganna. Það er ekki heldur nein tilviljun að þessar aðferðir skuli notaðar um gjörvalla Evrópu. Nokkuð skortir á, svo ekki sé meira sagt, að baráttuglöðum V ísbendingarmönnum takist að hrekja réttmæti þessara aðferða. í grein Vísbendingar eru fleiri atriði sem ástæða er til að finna að. Því verður þó sleppt að sinni, enda verður varla talið að blaðið sé heppilegur vettvangur fyrir fræðilegar umræður um efni skaðabóta- réttar á þessu sviði, svo sem blaðið hefur tekið á rnálinu. Efni greinarinnar er með þeim hætti að maður gæti haldið að hún væri skrifuð af fyrirsvarsmönnum vá- tryggingafélaga, sem ólmir vilja koma í veg fyrir nauðsy nlegar brey tingar á skaða- bótalögunum. Ef maður vissi ekki betur. Höfundur er hæstaréttarlögmaður 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.