Vísbending


Vísbending - 05.07.1996, Qupperneq 2

Vísbending - 05.07.1996, Qupperneq 2
ISBENDING r : s Fylgni Islenskra hagsveiflna (breyt. á landsframl. milli ára) við sveiflur í öðrum löndum ls/ESB Ís/N-Ameríka fs/Noregur Ís/Svíþjóð IS/Danmörk Is/Finnland Ís/Bretland Is/Bandaríkin Ís/Japan Is/Þýskaland Ís/Frakkland Ís/Tyrkland fs/NýjaSjáland ís/írland Fylgni 13% 5% 22% 45% 7% 39% 14% -1% 18% -18% 2% 4% -2% Fylgni eins árs töf 16% 45% 60% 38% 40% 43% 32% 46% -12% -7% -3% 7% 23% -24% Fylgnitölur einar og sér sanna ekki orsakasamband, en gætu bent til þess að það séu sömu áhrifavaldar að verki. Það er líklega skýringin á mikilli fylgni milli íslands og Norðurlandaþjóða, en þetta eru tiltölulega smá hagkerfi sem byggja mikið á útflulningi og jafnvel á sömu markaðssvæði. T.d. er fylgnin á milli Noregsogíslands mjögsterk. Hins vegar kemur á óvart að fylgni Islands við helstu viðskiptaþjóðir er fremur lítil ef undan eru skilin Bandaríkin.Sérstaklegaer nei- kvæð fylgni við Þýskaland undarleg, þ.e. íslandi virðist ganga betur ef Þýskaland er ílægðog svo öfugt. Til viljun gæti ráðið hér einhverju. En rétt er að benda á að hér eru aðeins 17 ár skoðuð og því er þessi samanburður meira til gamans gerður. Sem vænta mátti er fylgnin við Tyrkland fremur lftil. Að standa stakur Hér að framan hefur verið fjallað um tengsl á milli landa með tilliti til vöru- og þjónustuflæðis. En þetta er aðeins ein tengsl af mörgum og hagsæld smitast á milli landa á ýmsan annan hátt. Til að mynda skiptir flæði á framleiðsluþáttum miklu og slík áhrif eru umlalsverð á milli margra landa í Evrópu. Þá mætti einnig nefna flæði á hugmyndum og tækni eða jafnvel hugarfari á milli landa. Island hefur að sumu leyti verið opið fyrir erlendum hugmyndum, fólk hefur t.d. farið mikið utan til mennta. Hins vegar hefur landið verið lokað fyrir fjármagnsstraumum. Utlendingum er bannað að fjárfesta í arðbærustu atvinnugreinunum hér, sjávarútvegi og virkjunum, og þeir sýna ekki mikinn Hversu mikið sveiflast landsframleiðsla? Breytileiki (staðalfrávik) hagvaxtar í ýmsum löndum 1979-96 Hvaða þýðingu hafa hagsveiflur? Allt frá heimskreppunni miklu á fjórða áratug þessarar aldar (og kenningum Keynes sem sigldu í kjölfarið) hefur almennt verið álitið að það sé ein meginskylda stjórnvalda sé að reyna að jafna hagsveiflur. Betra sé að hagsældin vaxi jafnt og þétt, en að hún gangi í miklum skrykkjum. Þannig nýtist vinnuafl og fjármagn best (menn sleppa við atvinnuleysi og fjöldagjaldþrot), auk þess sem niðursveifla hefur afskaplega slæm áhrif á þjóðfélagið í heild og snýr áformum einstaklinga á hvolf. Samkvæmtþessu ætti breytileiki (staðalfrávik) landsframleiðslu að veramælikvarði á hversu vel hefur tekist til með hagstjóm í hverju landi eða kannski í hversu góðu jafnvægi hagkerfið er í. Á mynd hérað ofan erþessi breytileiki borinn saman á milli landa. Stöðugast íþessum hópi erFrakkland, en breytileiki landsframleiðslu fslands er allt að því helmingi meiri. Hér sést einnig að Norðurlöndin virðast skiptast í tvo hópa. Danmörk og Svíþjóð eru stöðug, en Island og Finnland tiltölulega óstöðug. Hins vegar ber að nefna nokkra fyrirvara um hvernig hægt er að túlka þessar tölur. Þetta er ekki neinn mælikvarði hagvöxtinn sjálfan. Þannig kunna sum lönd að vera stöðnuð og því stöðug. í öðru lagi skiptir umfang opinbera geirans miklu máli, en það er eðli hagkerfa þar sem ríkið ræður útgjöldunum að sveiflast fremur lítið eins og t.d. Svíþjóð og Danmörk þar sem ríkisútgjöld eru allt að því 60% af þjóðarframleiðslu. I þriðja lagi hafa sveiflurnar misjöfn áhrif á milli landameð tilliti verðbólgu og atvinnuleysis, en sum hagkerfi virðast þola sveiflur betur en önnur. T.d. virðist vera betra að vera staddur í Bandaríkjunum á tímum niðursveiflu en á Spáni í uppsveiflu, en atvinnuleysið á fyrrnefnda landinu erþá 6-7% í niðursveifluen um 15-20% á því síðarnel'nda í uppsveiflu. J V áhuga á öðrum kostum er landsmenn hafa verið að bjóða þeim, ef fjárfestingar í álvinnslu eru undanskildar. Þá erþaðrétt nú nýlega (frá 1994) sem Islendingum er leyfilegt að fjárfesta ytra. Slíkir fjár- straumarhéðan eru útflutningur sem mun skila landinu drjúgum gjaldeyristekjum. Ekki aðeins í gegn um arð- og vaxtagreiðslur heldur einnig tengja þær landið umheiminum og styrkj a innlendar atvinnugreinar á marg víslegan máta, eins og t.d. hefur gerst í sjávarútvegi. Svo virðist af fylgni íslenskra hagsveiflna við erlendar sem íslenskl hagkerfi standi stakt og hræringar ytra virðast ekki skipta miklu máli fyrir framvindu hér. Allar kenningar hag- vísinda leggja það eindregið til að lönd tengist sern flestum viðskiptaböndum, þannig að hagkerfin opnist og mis- munandi aðstæður og hæfileikar í h verj u landi nýtist sem best. Þetta er sérlega mikilvægtfyrirsmærriþjóðir. Þærhljóta að nýta sér markaði og sérhæfingu stórþjóða til þess að selja framleiðslu sína en ekki síðurtil þess að kaupa þær neyslu- og fjárfestingarvörur sem þær vanhagar um. Hér ættu íslendingar að vera í kjöraðstöðu, mitt á milli hinna tveggja stóru hagkerfa ESB og Bandaríkjanna. En hvernig höfum við nýtt færin? Góðæri bæði í Evrópu og Ameríku 1988-90 sigldi framhjá ströndum Islands, því á sama tíma var kreppa hérlendis. íslendingar hafa byggt nær öll viðskiptasambönd sín við aðrar þjóðir á fiskverslun, og þegar fiskinn vantaði til að selja stóðum við bjargarlaus. Hér þarf að treysta fleiri bönd. Hagur landsins ræðst fyrst og fremst af því hversu vel hagkerfið er tengt efnahagsheildunum austan og vestan við okkur. 2

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.