Vísbending


Vísbending - 10.01.1997, Qupperneq 4

Vísbending - 10.01.1997, Qupperneq 4
ISBENDING Hagtölur Atvinnuleysi á síðasta ári var heldur minnaen árið 1995. Ekki hafa verið birtar tölur fyrir atvinnuástand í desem- ber en þrátt fyrir það er greinileg minnk- un eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Svokallað náttúrulegt atvinnu- leysi hefur verið nokkuð í umræðunni. Lauslega skilgreint er það þröskuldur sem myndast vegna þess að ekki eru allir tilbúnir til að vinna þótt þeir hafi einhvern tíma farið út á vinnumarkaðinn og einnig eru alltaf einhverjir sem eru að skipta um vinnu og eru tímabundið atvinnulausir. Talið er að náttúrulegt atvinnuleysi hérlendis sé um 3 - 4%. Atvinnuleysi 1995-1996 í Bandaríkjunum hefur verið talið að náttúrulegt atvinnuleysi sé um 5,5% en þessi kenning er nú í uppnámi því atvinnuleysiþarernú 5,3%. Fyrirnokkr- um árum var ekkert atvinnuleysi hér á landi og mætti af því ætla að náttúrulegt atvinnuleysi sé ekki til. Svo er þó ekki því að eftirspurn eftir vinnuafli var haldið uppi með fölskum rekstrarkjörum at- vinnulífsins sem byggðist á verðbólgu og óverðtryggðunr lánum. Það gat ekki farið nema á einn veg. V____________________________________/ Vísbendingin eir atvinnurekendur sem hafa keypt vinnu eða efni af verktökum ættu að gæta þess að skila inn launamiðum vegna þessara aðila. Ella glatast réttur til að gjaldfæra kostnað vegna þessa. Halda má lífeyrissjóðsiðgjaldi utan stað- greiðslu allt að 4% af Iaunum á þessu ári. Allt mótframlag launagreiðanda í lífeyrissjóð telst stofn til útreiknings tryggingagjalds frá og með ársbyrjun. Tryggingagjald verður 6,28% á þessu ári, sérstakur flokkur verður 3,88% og vegna sjómanna reiknast 0,65% viðbót- ariðgjald. \_________________________) Kerrnir hag- fræði okkur að hugsa? Nútímasamfélag er ákaflega flókið fyrirbrigði sem byggist á mannleg- um samskiptum og nýtingu efnislegra og óáþreifanlegra gæða. Breytingar á einstökum þáttum hafa yfirleitt áhrif á aðra og stundum verður keðjuverkun um allt. Dæmi um þetta eru hinar ýmsu tískubylgjur sem hafa gengið yfir heiminn. Rokkæðið sem hófst á miðjum sjötta áratugnum hefur haft ákaflega víðtæk áhrif, ekki aðeins í tónlistariegum skilningi heldur varð einnig stórkostleg hugarfarsbreyting gagnvart ungu fólki. Þessi áhrif eru sterk í dag og móta um- hverfið. Tónlist unga fólksins hefur oft ögrað viðteknum venjum og oft hafa komið fram á sjónarsviðið sjálfskipaðir krossfarar sem berjast gegn nýjungun- um. Rokkið var af þeim afgreitt sem „tónlist djöfulsins". Hvað kemur þetta hagfræði við? Hagfræðin kennir okkur að ekki er allt sem sýnist. Það eru afar fáir þættir, sem ekki hafa áhrif á aðra þætti og ef bregðast á við breytingum verður að taka tillit til sem flestra þátta. Hag- fræðin er ekki patentlausn allra vanda- mála heldur tilraunir ýmissa aðila til að móta kennisetningar sem lýsa ferlum og sýna fram á áhrif breytinga á einstaka þætti. Hagfræðin er að sumu leyti hug- vísindi og að öðru leyti raunvísindi. Utreikningur á margfeldisáhrifum sam- kvæmt kenningum Keynes lávarðar eru raunvísindi að mestu en það hvort kenn- ingin á yfirleitt við fremur en aðrar kenn- ingar í hagfræðinni eru hins vegar hug- vísindi. Þróun kenninga, prófun og að- lögun er ferli sem aldrei tekur enda. Stundum er sagt í gamni að hagfræðingar setji fram kenningar sem byggðar séu á ákveðnum forsendum og ef kenning- arnar standast síðan ekki í raunveru- leikanum þá sé forsendunum einfaldlega breytt. Kenningarnar séu eftir sem áður jafn rangar. Sá sannleikur felst í þessum brandara að hagfræðin er sífellt að bregðast við og endurbæta og það er þetta ferli sem kennir okkur að hugsa. Því að þótt við- eigandi viðbrögð í gær hafi verið að breyta einum þætti, t.d. fjárfestingu eða sparnaði, þá er ekki víst að þau viðbrögð eigi við í dag. Aðrirsálmar Davíðssálmar hinir nýju Forsætisráðherra flutti þjóðinni boð- skap um áramót með hefðbundnum hætti. Tvennt er það sem finna verður að í málflutningi ráðherrans. Hann hefur snúist í svo eindreginn and- stæðing Evrópusamvinnu að hann sér þaðan ekkert gott koma. Sér í lagi snýst hann nú gegn evrópumyntinni en með þeim rökum að með því séu stjómmála- menn sviptir möguleikunum til gengis- fellinga. Þetta er einmitt kostur við evrópumyntina, með því að nota hana verða fyrirtæki að laga sig að raunveru- leikanum en ekki laga raunveruleikann að sjálfum sér eins og gerist með þeirri tekjutilfærslu sem fylgir gengisfellingu. Tilvísun í vitlaust styrkjakerfi Evrópu- sambandsins breytir þessu ekki; ein vit- leysan gerir ekki aðra betri. Aðgerðaleysi gleður! s Iáramótagrein segir forsætisráðherra tal um aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar gleðja sig því það sé einkenni góðra stjórna að gera sem minnst. Hér slær saman tveimur hugsunum. Það er ekki gott að gera lítið þegar margt er ógert. Það einkenni vitra stjórnenda að láta þegna sína sem mest í friði. Það er hins vegar einkenni hins lata að gera það sama í dag og í gær. Er Keilisnes að ganga aftur? Nei ætli það, en væri ekki ráð að leggja frá sér pennann og grípa til rek- unnar? Það er ekki að sjá að mikið hafi verið gert á Keilisnesi þótt að skrifað hafi verið undir hina og þessa samning- ana. Stjórnviska að er ánægjulegt til þess að vita að erfitt gengi Guðbjargarinnar á Isa- firði er vegna slæmra stjórnvaldsákvarð- ana en ekki rangra ákvarðana eigenda skipsins. Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri og ábm., Benedikt Jóhannesson. Útg.: Talnakönnun hf., Borgartúni 23, 105 Rvík. Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646. Internetslóð:http://www.strengur.is~talnak/ vief95.html,netfang:talnak@strengur.is Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskól- ans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda.

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.