Vísbending - 18.04.1997, Side 1
V
Viku
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
18. apríl 1997
15. tbl. 15. árg.
Samþjöppun og samkeppni
/
kjölfar úrskurðar Samkeppnisráðs um
skilyrðifyrirsameininguinnanlands-
flugs Flugleiða og Flugfélags Norð-
urlands í hafa orðið miklar umræður um
fákeppni og einokun hér á landi. Þessi
umræða hefur farið um víðan völl og þarf
engan að undra því að aðstæður hér á
Iandi hafa um margt verið frábrugðnar
því sem venjast má í lýðræðisríkjum. Þátt-
taka hins opinbera í atvinnurekstri hér á
landi skekkir þó alla samkeppni í sumum
atvinnugreinum. Aðstæður hérlendis eru
einnig að mörgu leyti frábrugðnar vegna
smæðar þjóðfélagsins. Vandséð er að
margir aðilar geti þrifist hérlendis í rekstri
sem krefst miki lla fjárfestinga sökum þess
hversu miklu hann þarf að skila til baka
til að hægt sé að greiða fjármagnskostn-
að og eðlilegan arð. Sú staða sem sumir
rekstraraðilar hér á landi hafa lent í þ.e.
að vera nánast einir í viðkomandi atvinnu-
grein, er ekki endilega til komin vegna
einhverra einokunartilburða heldur þess
að upphafleg fjárfesting er það mikil að
markaðurinn hér ber ekki fleiri aðila.
Þannig gæti það vald sem samkeppnis-
stofnun hefur verið vandmeðfarið ef t.d.
á að grípa til aðgerða til að vinna á veldi
Flugleiða eins og boðað er af forstöðu-
manni samkeppnissviðs Samkeppnis-
stofnunaríDegi-Tímanumþann lO.apríl
sl. íslenskir neytendur og fjárfestar gætu
orðið fórnarlömb í slíkum leik.
Stærstu fjögur/átta
Meðal þeirra aðferða sem gjarnan er
notaðar til að meta samþjöppun er
að leggja saman markaðshlutdeild fjög-
urra stærstu fyrirtækjanna í atvinnugrein
og ef hún er yfir 50% af heildarmarkað-
inum þá er er samþjöppunin talin óeðlileg.
Einnig er hægt að leggja saman mark-
aðshlutdeildáttastærstufyrirtækjannaog
ef hún er yfir 70% þá telst hún óeðlileg.
Herfindahl-Hirschman
Sú aðferð sem oftast er notuð í Banda-
ríkjunum við að meta samþjöppun á
markaði er vísitala Herfindahl-Hirsch-
man. Þessi vísitala er reiknuð út frá mark-
aðshlutdeild fjögurra stærstu fyrirtækja í
hverri atvinnugrein. Markaðshlutdeild
hvers fyrirtækis er margfölduð með 100
og færð í annað veldi og síðan lögð við
markaðshlutdeild hinna fyrirtækj anna. Ef
algjör einokun ríkir í atvinnugreininni
þáyrði þessi vísitala 10.000 eða 1002. Ef
fjögur fyrirtæki eru í atvinnugrein og hafa
jafna markaðshlutdeild þá yrði vísitalan
2.500 (252 + 252 + 252 + 252). Venjan er
sú að túlka niðurstöður vísitölunnar á
eftirfarandi hátt.
Ef vísital an er undir 1000 þá er samþj öpp-
un talin ásættanleg og engin ástæða til
aðgerða.
Ef vísitalan er á bilinu 1000 til 1800 þá
er samþjöppun talin nokkur og jafnvel
rnikil og hugsanlegt er að gripið verði til
aðgerða en það veltur á öðrum þáttum.
Ef vísital an er yfir 1800 þá er samþjöppun
talin mjög mikil og líklegt er að gripið
verði til aðgerða.
Einnig er litið til hækkunar vísitölunnar
við samruna fyrirtækja ef vísitalan er á
bilinu 1000 til 1800eftiraðsamruniásér
stað. Hækki hún um meira en 100 stig er
talið líklegt að gripið verði til aðgerða og
eins ef hún hækkar um 50 stig og hefur
jafnframt hækkað um 100 stig síðustu
þrjú árin. Sé vísitalan yfir 1800 eru sam-
svarandi mörk 50 stig og 25 stig.
Breytingar í
Bandaríkjunum
Sú stofnun sem sér um samkeppnismál
í Bandaríkjunum er Federal Trade
Commission (FTC) og hefur hún sætt
töluverðri gagnrýni fyrirstörf sín. Gagn-
rýnin hefur t.d. beinst að skilgreiningum
á samkeppnissviðum. Stofnunin stöðv-
aði fyrirhugaðan samruna tveggjafyrir-
tækja sem versla með skrifstofuvörur.
Samanlagthefðimarkaðshlutdeildþeirra
orðið 4% á markaðnum en með því að
skilgreina fyrirtækin sem líklegasta stað-
inn sem neytendurmyndukaupamegnið
af skrifstofuvörum sínunt þá töldust fyrir-
tækin hafa 100% markaðshlutdeild.
Microsoft er eitt þeirra fyrirtækja sem
hefur lent í klónum á stofnuninni. Þar var
á endanum barið saman samkomlag um
smábreytingu á verði semekki geturhaft
áhrif á markaðsstöðu fyrirtækisins og það
dugði til að koma fyrirtækinu úr klípunni.
Viðhorfin hafa reyndar tekið nokkrum
brey tingum því að ofurkappið sem menn
lögðu á að hindra einokun hefur bráð af
og í staðinn er reynt að jafna aðstöðu
fyrirtækja og ýta þannig undir samkeppni
á jafnréttisgrundvelli. Þannig yrði kann-
ski ekki amast við mikilli markaðshlut-
deild tveggja skipafélaga í sjóflutning-
um en málum yrði fremur þannig fyrir
komið að nýir aðilar fengju sömu skilyrði
t.d. varðandi hafnaraðstöðu og geymslu-
rými. Með slíkum aðgerðum gæti nýr aðili
komið inn á markaðinn og veitt þeim sem
fyrireru samkeppni á jafnræðisgrunni.
Islensk samþjöppun
Erfitt er fyrir aðra en opinbera aðila að
reikna út vísitölu Herfindahl-Hirsch-
man fyrir íslensk fyrirtæki. Þjóðhags-
stofnun hefur gögn um veltu allra fyrir-
tækj a og ætti að geta reiknað út vísitöl una
með einföldum hætti og er ástæða til að
hvetja til þess. Vísbending gerði tilraun
til að reikna vísitöluna en hafa verður þann
fyrirvara á að ekki er víst að upplýsingar
úr Atvinnuvegaskýrslu 1994 og Frjálsri
verslun, 100 stœrstufyrirtœkin 1994 séu
sambærilegar. Einnig hafa orðið veruleg-
ar breytingar á ýmsum sviðum atvinnu-
lífsins frá 1994. Varasamt er þó að taka
aðferðir sem hafa verið þróaðar erlendis
upp án þess að sérstakur gaumur sé gefinn
að forsendum. Efnahagslíf á Islandi og í
Bandaríkjunum er gjörólfkt, bæði að upp-
byggingu og vegna stærðarmunar.
Samþjöppun í atvinnugreinum á
íslandi 1994
Atvinnugrcin Herfindahl- Fjögur
Hirschman stærstu í %
Fiskveiðar 42 12
Fiskiðnaður 34 12
Almennur iðnaður 124 19
Smásöluverslun 312 31
Samgöngur 1.383 59
Peningastofnanir 2.020 84
Tryggingar 2.009 82
Heimildir: Frjáls verslun, Þjóðhagsstofnun, Banka-
eftirlitið, útreikningar, Vísbending.
--------------------------------; - --------------------— : S.
Samþjöppun í atvinnu- Yrnsar hliðar eru á upp- a Björn G. Olafsson fer yfir a OlalurOlafsson landlækn-
I greinum er áhyggjuefni / byggingu lífeyrissjóða- -4 stöðumálavegnafyrirhug- { \ irálokaorðinuntþáþróun
-L víðaen meiri gaum ætti að keifisins ogerfarið nokk- aðrar magnesíumverk- I sem fyrirsjáanleg er varð-
^ gefaaðjafnræðifyrirtækja.____uð f saumana á því.__________smiðju hér á landi.___________andi málefni aldraðra. ^