Vísbending - 09.07.1999, Blaðsíða 1
V
V i k n
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
9. júlí 1999
27. tölublað
17.árgangur
Nýlega hafa birst tölur í
heimspressunni yfir verð-
mætustu fyrirtæki í heimi
(BusinessWeek), verðmætustu vöru-
merki í heimi (F inancial Times) og ríkustu
einstaklinga í heimi (Fortune). Hér á landi
vinnur Frjáls verslun að slíkri tölu-
greiningu á íslenskum fyrirtækjum og
mun hún birtast á haustmánuðum.
Flestir hafa gaman af slíkum talnaleik
enda er það hluti af metnaðinum sem
samkeppni skapar að stefna á toppinn
á slíkum listum.
Langflottastur
Þrátt fyrir að oft sé búið að spá því að
Microsoft-veldið hafí náð hápunkti
sínum hefur það aldrei staðið hærra en
nú. Microsoft, framleiðandi Windows-
hugbúnaðarins, er stærsta fyrirtæki í
heimi, að markaðsvirði 407,22 milljarðar
Bandaríkjadala. Það er 23,3% stærra en
það næststærsta sem er General Electric.
Þrátt fyrir málaferli og að tekjur
Microsoft-fyrirtækisins hafí „aðeins"
aukist um 26% á síðasta ári, í samanburði
við 46% aukningu á árinu 1996, jókst
virði þess um 95% að nafnvirði frá árinu
áður. Á sama tíma má sjá að vörumerkið
Microsoft er næst á eftir Coca-Cola yfir
verðmætustu vörumerki í heiminum,
metið á rúmlega 56,65 milljarða
Bandaríkjadala.
Bill Gates III, stofnandi og stærsti
eigandi Microsoft-fyrirtækisins, er um
leið, rétt eins og síðustu tvö
ár, ríkasti maður í heimi.
Eignir hans eru metnar á
rúmlega 90 milljarða
Bandaríkjadala, sem er
76,5% aukning frá sömu
könnun 1998.Næsturáeftir
Gates er fjármálagúrúinn og
stjórnandi Berkshire
Hathaway fjárfestinga-
sjóðsins, Warren Buffett.
Buffett þyrfti að tvöfalda
eignir sínar og meira til ef
hann ætlaði sér að ná Gates.
Bill Gates er því á nútímamáli
„langflottastur".
Virðismat
Sushi
r
Iupphafi áratugarins voru það japönsk
fyrirtæki og milljarðamæringar sem
voru mest áberandi á þessum listum.
Árið 1989 voru 7 af 10 verðmætustu
fyrirtækjum í heimi japönsk, fimm afþeim
voru bankar. Efst á lista var japanska
símafyrirtækið Nippon Telegraph &
Telephone, þá metið á 163,86 milljarða
Bandaríkjadala. Næstu þrjú ár á eftir
lækkaði virði fyrirtækisins hratt, eins og
annarra japanskra fyrirtækja, og var
komið niður i 77,52 mi llj arða árið 1992 og
var þá eina japanska fyrirtækið sem var
eftir á listayfir 10 verðmætustu fyrirtæki
í heimi. Árið 1993 vaknaði von um að
Japansmarkaður væri að lifna við,
hlutabréf hækkuðu í verði og Nippon
komst aftur í efsta sæti listans yfír
verðmætustu fyrirtæki í heimi sem það
hélt í næstu tvö ár á eftir. Síðan þá hefúr
það skref fyrir skref farið neðar á listann
og er nú í þrettánda sæti þrátt fyrir að
verðmæti þess hafi ekki lækkað að
verulegu leyti. Önnur fyrirtæki hafa
einfaldlega vaxið meira og þá
netfyrirtækin mest af öllum.
Árið 1990 var helmingurinn af tíu
ríkustu mönnum heims frá Japan. Sá
ríkasti í heimi var þá Yoshiaki Tsutsumi
sem átti m.a. lestafyrirtæki og hótel. Árið
1997 var enginn japanskur milljarða-
mæringur á meðal tíu ríkustu manna í
heimi. Á þessum síðasta áratug aldar-
innar hefur Tsutsumi tapað 15
milljörðum Bandaríkjadala að raunvirði.
Netveruleikinn
Hvergi hefúr verið eins gaman að lifa
eins og i netveruleikanum á síðustu
árum. Reyndar hefúr hamingjan ríkt í
öllum tölvugeiranum ef vöxtur Micro-
soft-fyrirtækisins er skoðaður. Net-
fyrirtæki, en það eru fyrirtæki sem
eingöngu eru til á netinu, hafa vaxið
gífurlega hratt. Hlutabréfaverð í net-
bókaversluninni Amazon.com hefur
hækkað um 708% á tveimur árum, Y ahoo
um 441% og America Online um 473%.
Rekja má vöxt 19 af 50 stærstu
fyrirtækjum í heimi beint eða óbeint til
netveruleikans. Amazon.com er 254.
stærsta fyrirtæki í heimi, metið á tæplega
19 milljarða Bandaríkjadollara (226
sinnum meira en SH, stærsta fyrirtæki
íslands, á sama tírna) þrátt fyrir að það
V/H hlutfallið sé -103, enda hefúr
fyrirtækið aldrei sýnthagnað, ekki frekar
en mörg önnur netfyrirtæki.
Netveruleikinn virðist þó vera farinn
að dala eitthvað sem það hláturgas sem
hann hefur verið. Hlutabréf í banda-
rískum fyrirtækjum sem tengjast
netveruleikanum hafa lækkað í verði urn
40% frá því í apríl á þessu ári. Þessi
sömu fyrirtæki og komu svo hressilega
inn á markaðinn gætu því farið sömu
leið til baka ef markaðinum þykir
netveruleikinn ekki jafnskemmtilega
raunverulegur og áður.
Tafla I. Tíu rikustu menn i lieimi 1999 og uppruni
auðs jicirra (miiljardar Buiularíkjaðala).
Tafla 2. Tiu verðmætustu fyrirtœki i lieimi
1999 og vöxtur jieirra á milli ára.
Nr. Nafn Uppruni auðs $ma. Nr. Fyrirtæki $ma. Vx.
1 William Gates (Microsoft, US) 90 1 Microsoft 407,2 95%
2 Warren Buffett (Berks. Hathaway, US) 36 2 General Electric 333,1 23%
3 Paul Allen (Microsoft, US) 30 3 IBM 214,8 97%
4 Steve Ballmer (Microsoft, US) 19,5 4 Exxon 193,9 12%
5 Phillip Anschutz (Qwest Communic., US) 16,5 5 Royal Dutch/Shell 191,3 -2%
6 Michael Dell (Dell Computer, US) 16,5 6 Wal-Mart 189,6 54%
7 S. Robson Walton (Wal-Mart, US) 15,8 7 AT&T 186,1 37%
8 Prince Alw aleed (Sádi-Arabía) 15 8 Intel 180,2 49%
9 Theo & Karl Albrecht (Aldi, Þýskaland) 13,6 9 Cisco Systems 174,1 116%
10 Li Ka-shing & fjölsk. (Cheung Kong, Hong K.) 12,6 10 BP Amaco 173,9 22%
O Bill Gates stofnandi f Tómas Öm Kristinsson ^ ^ Þorvaldur Gylfason hag- æ Spákaupntennska eA
I Microsofterríkaslimaður 1 rekstrarhagfræðingur Z fræðingur fjallar um , ' 1 skoðuð m.a. út frá
L í heimi og Microsoft er ^ fjallar um gráðuga og j framlag íslendinga til 1 T hugmyndum Keynes um
verðmætasta fyrirtækið. bíræfna svikahrappa. menntunar. brjálæði markaðarins. 7
1