Vísbending - 24.09.1999, Page 4
(Framhald af síðu 3)
kröfur á ríkissjóð eða verið greidd teljist
til útgjalda, hvernig sem skuldfærslu er
háttað og hver sem mótaðilinn er.
Aðeins með þeim hætti er öllu til skila
haldið um hagsmunaleg skipti ríkissjóðs
og efnahagsáhrif. Þetta var raunar þegar
meginregla laga um fjárlög og ríkis-
reikning frá 1966 þegar þau voru
samræmd við þjóðhagsreikninga og
peningaskýrslur. Fyrir stjórnsýslulega
tregðu komu lögin þó ekki til fullra
framkvæmda svo að þurft hefur að ítreka
og fullmóta reglurnar. Sumir héldu við
þá skoðun að einungis endanlega
greiddartekjurog gjöld hefðu efnahags-
áhrif, eða mest slík áhrif, og mátti að
nokkru til sanns vegar færa þegar
mönnum var gjarnara að ráðstafa að
bragði þeim peningum sem þeir komu
höndum yfir. Með fullþroska fjármagns-
markaði er öldin önnur. ÖIl aukning
eignar, sennilegra ævitekna og þar með
lífeyris getur haft samsvarandi áhrif á
neyslu og persónulega fjárfestingu og
leitt til lántöku eða niðurrifs innstæðna
fyrr og meir en ella. Með þessum
veigamikla fyrirvara verður að taka þeirri
staðhæfingu fjármálaráðherra að
aðgerðir ríkissjóðs á formlegum lána-
markaði hafi mest hagræn áhrif. Mest,
en ekki öll. Og einmitt nú gengur
sérfræðingum illa að skýra aukningu
innflutnings og viðskiptahalla með
almennri tekjuaukningu. Greinar-
höfundur hefur í fyrri Vísbendingu (18.
tbl. 1999) bent á eigna- og æviteknaáhrif
sem hugsanlega skýringu við hlið tekju-
þróunar er vonandi verka í eitt skipti
fyrir öll. Hin gífurlega úthlutun
lífeyrisréttinda gæti verið veigamikill
þáttur þeirrar skýringar.
Spuming fjármálaráðherra
Fjármálaráðherra varpar í fyrirsögn
Morgunblaðsgreinar sinnar 3.
september fram spurningunni:
„Rekstrarhalli og lánsfjárafgangur - fer
það saman?“ Von er að spurt sé. Mitt
svar við spurningunni er neitandi. Allt
sem kemur í rekstur kemur fram gagn vart
lánajöfnuði í víðum skilningi samkvæmt
framangreindri meginreglu, þar á meðal
lífeyrissjóðum. Lánajöfnuði er skipt í
tvennt í ríkisreikningi, veitt lán ríkissjóðs
og hreyfingar þeirra og tekin lán með
niðurstöðu um lánsfjárþörf. Valin er sú
undarlega uppstilling að færa lífeyris-
skuldbindingar í fyrri deildina sem
mótvægi gjaldfærslunnar, rétt eins og
um endurgreiðslu láns sé að ræða, í stað
þess að færast með teknum lánum. Á
yfirliti 3 um skuldir og veitt lán er
lífeyrisskuldbindingum sleppt en á
efnahagsreikningi eru þær teknar sem
skuldir í sérstökum flokki. Að þeim
meðtöldum nema skuldir skv. yfirlitinu
363 milljörðum eða 62% af lands-
framleiðslu en hrein skuld umfram
lánveitingar 276 milljörðum eða 47% af
landsframleiðslu. Hafa báðar stærðirnar
hækkað talsvert að fjárhæð yfir árið en
lækkað dálítið að hlutfalli.
Meðan erfiðleikar steðjuðu að á
undanförnum árum stunduðu hag-
stofnanir að reikna og réttlæta ríkishalla
með notkun hugtaksins fullatvinnuhalla
sem var mun skárri en útkoman í reynd.
Þetta hugtak virðist hafa gleymst nú,
þegar dæmið snýr á hinn veginn, að
jöfnuður við hugsað jafnvægisástand
efnahagsmála væri mun óhagstæðari
en reyndin. Beiting þessa hugtaks felur
í sér að allur tekjuauki umfram þetta mark
ætti að leggjast til hliðar til þess að bæta
fyrir lausnum og leysa vanda framtíðar.
Áður varð að vísu að leysa fortíðar-
vanda kjara opinberra starfsmanna og
er matsatriði hve mikill hann var og hvert
færi var á lausn hans. Veilunum í lausn
þess vanda ber að mæta opnum augum
og ljúka honum að fullu samkvæmt
framansögðu.
(Framhald af síðu 1)
málurn", sem gefin var út árið 1997 af
Hagfræðistofnun Háskóla Islands í
samvinnu við The Fraser Institute í
Kanada, kemur fram að efnahagsfrelsið
hér á landi hefur aukist verulega á
síðustu fimmtán árum, eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd (Frjálsræði I).
Ástæðurnar sem nefndar eru í skýrsl-
unni eru: slakað hefur verið á gjaldeyris-
höftum, vextir gefnir frjálsir og tollar og
skattar hafa verið lækkaðir.
Fraser-stofnunin hefur endurskoð-
að mælikvarða sína í nýjum útreikn-
ingum sem breytir þessari mynd örlítið
(Frjálsræði II). Samkvæmtnýjumgildum
hefur efnahagsfrelsið nær ekkert aukist
allan þennan áratug og Island situr í 36.
sæti á listanum þar sem Hong Kong
trónir í því efsta. ísland fær 7,7 í einkunn
af 10 mögulegum sem verður þó að
teljast nokkuð gott. Það er þó ljóst að
það er mikilvægt að hvergi verði slegið
slöku við svo að lýðræðið og frjálsræðið
fái að njóta sín þjóðinni til hagsældar.
( Vísbendingin '
í h
Rétt eins og starfsmenn fyrirtækja
vilja fá viðurkenningu, ábyrgð og
virðingu frá vinnuveitendum er ekki
óeðlilegt að þjóðfélagsþegnar vilji slíkt
hið sama frá stjórnvöldum. Það grefur
undan ofríki yfirvalda, þekking og
reynsla fólksins skiptir sköpum. Hag-
fræðingur að nafni Max Boisot stað-
hæfir að frá 1929 til 1982 hafi menntun
leitt af sér 30% af framleiðniaukningu
Bandaríkjanna og aukin þekking um
60%. Sívirk menntun er því mjög
mikilvægfrjálsræði, lýðræði og hagsæld.
ISBENDING
Aðrir sálmar
f ' N
Áfram Stoke!
Fréttir af verðbréfamarkaðinum
undanfarna mánuði hafa hrifið
marga. Djarfhugafjárfestarhafa sveiflað
um sig hærri fjárhæðum en nokkru sinni
fyrr án þess að eiga þær. Sumir geta
eignast öll þau fyrirtæki sem hugurinn
girnist á augabragði, jafnvel þó að þeir
geti ekki greitt smáreikninga nema eftir
dúk og disk. Síðasta fréttin af þessu tagi
um hóp aðila sem ætlar að kaupa enska
knattspyrnuliðið Stoke, sem nú mun
vera í 2. deild (í raun 3. deild eftir
venjulegri talningu) þar ytra. Með
útsjónasemi, liðsmannakaupum og
almennilegum þjálfara ætla menn að
koma liðinu í efstu deild á mettíma. Sú
óvenjulega aðferð er notuð til þess að
safna saman fjárfestum að birta útreikn-
inga um arðsemi í DV, en þarkemur fram
að menn muni sexfalda hagnað með því
að ná settu marki á „eðlilegum" tíma. Sú
niðurstaða fer í forsíðufyrirsögn meðan
hinar ólíklegri leiðir sem gefa minni
arðsemi eru sýndar inni í blaðinu.
Islenskir fjárfestar vita að Guðjón er
bestur og undir hans stjórn er það aðeins
tímaspursmál hvenær Stoke verður
Evrópumeistari.
Leynisamningar
netsíðu Mbl.is sagði 23.9.99:
,Davíð Oddsson forsætisráðherra
hélt því fram í gær að gerður hefði verið
leynilegur samningur um að vinna að
yfirtöku Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins þegar sparisjóðirnir seldu fjár-
festingarfélaginu Orca S A í Lúxemborg
hlut sinn í FBA fyrir milligöngu Kaup-
þings. ... Davíð sagði að hagsmunir
ríkisins og markmið stjórnarinnar hefðu
verið sett í uppnám og bersýnilega verið
„stefnt að því að gera afgangsbréf
ríkisins eins verðlítil og vera kann með
þessari gerð og þessum leynisamn-
ingum.“ Hann kvaðst hafa talið að það
væri sitt hlutverk að tryggja að slíkt
næði ekki fram að ganga.“ I ljósi þessara
orða forsætisráðherra er algerlega
nauðsynlegt að Kaupþing hreinsi loftið
með því annað hvort að birta „leyni-
samninginn" eða staðfesta að hann sé
ekki til. Verðbréfafyrirtæki getur ekki
setið þegjandi undir slíkum ummælum.
V J
/Ritstjóm: Eyþór ívar Jónsson ritstjóri ogA
ábyrgðarmaður, Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavík.
Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang:visbending@tainakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda.____________________
4