Vísbending - 01.09.2000, Síða 3
ISBENDING
Valkostir til eflingar byggðar á Austurlandi
Um nokkurt skeið hefur fjörug
umræða um byggingu álvers á
Reyðarfírði með tilsvarandi
virkjun fallvatna norðan Vatnajökuls
gagntekið þjóðarsálina. Lítið hefur ver-
ið fjallað um aðra valkosti fyrir Austur-
land í umræðunni. Það vakti til dæmis
nær enga athygli, að Rússar sýndu
áhuga á því að byggja sex milljón tonna
olíuhreinsunarstöð á Reyðarfirði fyrir
nokkrum árum. I september í fyrra kom
örstutt fréttatilkynning frá ríkisstjórn-
inni, þar sem lýst var yfir, að fallið hefði
verið frá frekari hugmyndum um olíu-
hreinsunarstöð, þar sem það verkefni
væri ekki áhugavert. Nú er vitað, að
Rússar munu þurfa að byggja olíu-
hreinsunarstöð einhvers staðar við
Norður Atlantshaf á næstu árum vegna
Timan Pechora olíusvæðanna við Bar-
entshaf, þannig að þama var um raun-
hæfan valkost að ræða. Nefna mætti
aðra valkosti svo sem almenna atvinnu-
þróun, aukinn ferðamannaiðnað, sam-
göngubætur og austfirzkan áhættulána-
sjóð til að styrkja nýja atvinnustarfsemi.
Gallinn er sá, að erfitt er að bera þessa
mismunandi valkosti saman út frá því
sjónarmiði hvað komi Austfirðingum
bezt, þ.e. hvað henti bezt til að styrkja
byggð og mannlíf á Austurlandi.
I þessari grein er fyrmefndum val-
kostum lýst frekar og reynt að bera þá
saman á grundvelli félagslegra og efna-
hagslegra áhrifa svo og umhverfís-
áhrifa með aðgerðargreiningu.
1. Alver og virkjanir
Hugmyndir um byggingu 240 þús-
und tonna álvers á Reyðarfirði,
sem myndi fá orku frá 550 MW Kára-
hnúkavirkjun eru komnar á fullt skrið.
Hér er um rnikla íjárfestingu að ræða, en
lauslega má áætla, að álverið kosti
fúllbyggtum 140milljarðakróna. Kostn-
aður vegna Kárahnúkavirkjunar með
háspennulínum er hins vegar áætlaður
70 milljarðar króna eða 210 milljarðar
króna samtals fyrir valkost 1. Gríðarlegt
jarðrask og mikil landnotkun einkennir
þennan valkost. Efnahagsleg áhrif geta
verið jákvæð, enda mun mikið fjár-
streymi til Austurlands eiga sér stað á
meðan á byggingartíma stendur og
draga til sín sérmenntað fólk til starfa.
Hætt er við, að þenslan, sem myndast á
byggingartíma geti hins vegar haft slæm
áhrif á hefðbundnar atvinnugreinar í
; Júlíus Sólnes
B J prófessor
Tafla 4. Umhverfisvísitala þriggja valkosta
Umhverfisþáttur Land- notkun Efna- hagsleg áhrif Félags- leg áhrif Áhrif á náttúru & lífríki Iðnaðar- mengun Gróður- húsaloft- tegundir Um- hverfis- áhætta EQI= 3wí=Uí(xí)
vogtölur Wi 0,165 0,156 0,237 0,082 0,045 0,110 0,206
Valkostur 1: Álver með Kára- hnúkavirkjun. 0,553 4,485 1,638 0,576 0,808 0,963 3,056 2,00
Valkostur 2: Olíuhreinsunar- stöð, án virkjana 2,274 3,899 2,973 2,150 1,150 0,963 0,797 2,19
Valkostur 3: Alhliða uppbygging með 25 milljarða þróunarsjóð 7,173 1,255 5,390 7,274 7,740 8,670 7,836 6,16
fjórðungnum, sem líða fyrir það „Klond-
ike-ástand“, sem hlýtur að skapast.
Félagsleg áhrif verða veruleg, en talið
er, að álverið skapi um 700 bein störf og
varlega áætlað a.m.k. önnur 700-1400
afleidd störf. Þettaatriði ermjögumdeilt,
þar sem spyrja má hvort margfeldis-
áhrifín muni ekki að einhverju leyti eiga
sér stað á höfuðborgarsvæðinu. Þá er
einnig hætt við, að einkum sú röskun,
sem verður á hálendinu, geti haft nei-
kvæð áhrif á ferðamannaiðnaðinn þótt
þettaséeinnigumdeilt.Álverogvirkjanir
munu einnig óneitanlega rýra hina
umhverfisvænu ímynd landshlutans.
Töluverð röskun á náttúrufari ntun eiga
sér stað, einkum vegna virkjanafrain-
kvæmda við Kárahnúka og háspennu-
línur. Einhver röskun á lífríki hreindýra
mun eigasérstað,en lífríki í Reyðarfirði,
þar sem álverið rís, virðist ekki vera mikil
hætta búin, enda er það mjög fábreytt á
þeim slóðum. Töluverð iðnaðarmengun
er frá álverinu, einkum flúorryk svo og
önnur úrgangsefni, föst og loftkennd.
Losun koltvíoxíðs verður um 450 þúsund
tonn á ári, og eykur þannig heildarlosun
landsmanna um 17%. Ekki er um neina
sérstaka umhverfisáhættu að ræða utan
þess, sem þegar hefur verið rætt.
2. Olíuhreinsunarstöð
r
Aárunum 1997 og 98 stóð rússneska
fyrirtækið MD Seis fyrir forathugun
ábyggingu sexmilljóntonnaolíuhreins-
unarstöðvar á Reyðarfirði í samstarfi
við íslenzk stjórnvöld. Jafnframt voru
helztu unthverfisáhrif slíkrar stöðvar
rannsökuð af íslenzkum og erlendum
samstarfsaðilum. Niðurstöður þeirra
sýndu, að umhverfísáhrif olíuhreins-
unarstöðvar væru vel ásættanleg. Áætl-
aður kostnaður vegna byggingar stöðv-
arinnar er um 160 milljarðar króna svo
hér er um svipaða fjárfestingu að ræða
og fyrir valkost 1. Landnotkun stöðvar-
innarerfremurtakmörkuð eðaum 50-60
ha. að meðtalinni höfn og hafnarsvæði.
Stöðin þarfnast ekki nýrra virkjana, þar
sent algengast er að slíkar stöðvar
framleiði sjálfar sitt rafntagn, en orkuþörf
hennar eru 160 GWh. Efnahagsleg áhrif
eru mjög sambærileg við valkost 1 með
sams konar afleiðingum á byggingar-
tíma. Félagsleg áhrif verða einnig svip-
uð, en þó má gera ráð fyrir að stöðin
skapi enn fleiri störf eða urn 1000 bein
störf og varlega áætlað a.m.k. önnur
1000 afleidd störf, þar sem rekstur henn-
arerum niargtflóknari en íálveri. Stöðin
mun einnig rýra hina umhverfísvænu
ímynd Austurlands þótt það verði í
minna mæli en álverið. Hér niunar mest
urn virkjanaframkvæmdirnar, sem verða
óþarfar ef gert er ráð fyrir, að ekki verði
ráðist í neinar virkjanir samhliðaþessum
valkosti. Áhrif á náttúru og lífríki eru
tiltölulega lítil og gilda að nokkru leyti
sömu rök og fyrir valkost 1. Iðnaðar-
mengun frá stöðinni er aðallega olíu-
mengaður úrgangur, sent annaðhvort
þarf að brenna eða hægt er að urða.
Losun koltvíoxíðs er nánast eins og fyrir
álverið eða unr 450 þúsund tonn á ári.
Olíuhreinsunarstöðin skapar töluverða
umhverfisáhættu í formi olíulosunar í
sjó vegna sjóflutninga á olíu og olíu-
afurðunt. Hægt er að sýna fram á, að
draga megi verulega úr þessari áhættu
með markvissum aðgerðum.
3.Þriðjaleiðin
riðji valkosturinn er ímyndaður og
til þess fallinn að auðvelda saman-
burð á hinum tveini valkostunum. Hann
er hugsaður þannig, að settar eru franr
lausbeizlaðar hugnryndir um hvernig
mætti sporna við þeirri byggðaröskun
með annars konar aðgerðunt en þeim að
koma upp stóriðjufyrirtækjum. Til að
styrkja atvinnustarfsemi í ljórðungnunt,
(Framhald á sídu 4)
3