Vísbending


Vísbending - 10.11.2000, Qupperneq 2

Vísbending - 10.11.2000, Qupperneq 2
V ISBENDING Kaffi á allra vörum Nýlega tilkynnti ameríska kaffi- keðjan Starbucks að hún hygð- ist opna kaffihús í Mílanó á Ítalíu. Það verður að segjast eins og er að þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur því að í Mílanóborg má fmna um 600 kaffibari og -hús að þjóðarhætti, sem sagt eitt kaffihús á hverja tvö- þúsund íbúa. Það verður því athyglivert að sjá hvort Starbucks-keðjan getur haft sömu áhrif á kaffimenningu þar eins og hún hefúr haft víða um heim. Upphafíð meðan McDonalds keppir að því að bjóða upp á lágt verð þá er hver bolli hjá Starbucks mun dýrari en gengur og gerist annars staðar. Þegar Starbucks fór inn á Chicago-markaðinn átti íyrir- tækið í miklum erfiðleikum vegna þess að fáir vildu kaupa kaffidrykki þess fyrir tvöfallt hærra verð miðað við kaffi annars staðar. 1 staðinn fyrir að lækka verð, eins og margir hefðu gert í þeirri stöðu, var ákveðið að treysta á að við- skipavinir myndu smám saman komast á bragðið og þá væri ekki aftur snúið fyrir þá. Sú varð og raunin. um miðjan áratuginn að stefnt væri að því að reka 2.000 kaffihús árið 2000 fannst flestum það ótrúleg bjartsýni en annað hefur komið á daginn. Eitthvað um 2.800 Starbucks-kaffihús eru í Bandaríkjunum einum saman og um 550 utan Bandaríkjanna, flest í Asíu. Sam- kvæmt nýrri framtíðarsýn fyrirtækisins virðist kaffivæðingunni hvergi nærri lokið. Áætlanir fyrirtækisins sýna að stefnt er að því að reka 10.000 Starbucks- kaffihús árið 2005 með samanlagða veltu upp á 6,6 milljarða Bandaríkjadala. Hlutabréfaverð Starbucks hefur stigið hratt að undanfómu en hlutabréf í fyrirtækinu hafa skilað góðri ávöxtun undanfarin ár, langt umfram bæði Dow Jones og Nasdaq (sjá mynd 1), þó svo að sveiflurnar hafi verið miklar. Landvinningar elta Starbucks á árinu 2000 er um 1,6 milljarður Bandaríkjadala. Ef útþenslustefna fyrirtækisins á að ganga eftir verður því velta fyrirtækisins að ^ órfaldast og rúmlega það á næstu fimm árum um leið og fjöldi kaffihúsa mun þrefaldast. Fyrirtækið verður þó að halda vel á spilunum ef þetta á að geta gengið efitir. Þrátt fyrir að Starbucks eigi í raun engan alþjóðlegan keppinaut er ekki þar með sagt að leiðin sé greið. Hugmyndin á bak við Starbucks er aug- Ijós enda hafa keppinautar verið fljótir til að apa hana eftir og jafnvel betrum- bæta. Hitt er svo annað mál að þó að Starbucks sé í 72. sæti yfir verðmætustu vöramerkiheims, l,6milljarðs dalavirði samkvæmt Interbrand, þá er vörumerkið tiltölulega óþekkt á nýjum mörkuðum. Þetta hefur hins vegar ekki staðið fyrirtækinu fyrir þrifum og hefur það lagt undir sig hvern markaðinn á fætur öðrum og hefur jafnframt sigrað hverja þrautina á eftir annarri, gert tedrykkju- menn Lundúna að kaffisjúklingum og fengið Japani til að spóka sig með Starbuckskaffi ágötumúti, sem sérfræð- ingar í menningu Japans töldu útilokað. Kaffihúsaeigendur á Ítalíu ættu því að vara sig þó svo að innreið keðjunnar virðist við fyrstu sýn eins og máttlaust áhlaup Richards Bransons og Virgin- cola á bandaríska gosdrykkj amarkaðinn. Starbucks hefiir þó það fram yfir Virgin og kaffibari Ítalíu að höfða til yngri kynslóða sem getur gert fyrirtækinu kleift að ná fótfestu á þessum erfiða markaði. Italía er eitt af fyrstu vígjum meginlands Evrópu sem Starbucks hyggst sigra en sennilega það erfiðasta. Ef Starbucks verður á allra vöram áítalfu er ljóst að frekari landvinningar í Evrópu verða fyrirtækinu auðsóttir. Fyrsta Starbucks-kaffihúsið var opnað í Seattle í Bandaríkjunum árið 1971. Frá upphafi hefúr mest verið lagt upp úr því að búa til og selja gæðakaffi. Árið 1982 samanstóð Starbucks af fimm kaffihúsum í Seattle sem seldu espresso og gæðakaffi. Það var árið sem Howard Schultz var ráðinn sölu- og markaðs- stjóri keðjunnar. Hann var þar í þrjú ár en hætti til þess að stofna sína eigin kaffihúsakeðju sem fékk nafnið II Giomale. Árið 1987 keypti Schultz Star- bucks-staðina og sameinaði öll kaffi- húsin undir Starbucks-nafninu. Sagan segir að Howard Schultz hafi fengið hugmyndina að hinu nýja Star- bucks-kaffihúsi þegar hann skoðaði kaffikúltúr Ítalíu. Þar ræður gestrisnin ríkjum og kaffigerð er meira í ætt við listgrein en hefðbundna smásölu. Honum hefur sennilega orðið ljóst að ítalir era háðir kaffi og leggja mikið upp úr gæðum og eru tryggir sínu upp- áhaldskaffihúsi. Alla vega er Starbucks orðið langvinsælasta kaffimerkið á Bandaríkjamarkaði og þó víðar væri leitað og viðskiptavinir Starbucks era þeir tryggustu í bandarískri smásölu- verslun þar sem hver viðskiptavinur sækir Starbucks átján sinnum í mánuði að meðaltali. Samkeppnishæfni r Oljóst er hversu mikið Starbucks hefur breyst í höndum Howard Schults hvað grunnhugmyndina varðar. Það er þó ljóst að hann hefur gert stórfyrirtæki úr tiltölulega litlu fjöl- skyidufyrirtæki rétt eins og Ray Kroc gerði fyrirMcDonalds. Framlag Schults felst í áherslu á stöðuga nýsköpun með viðskiptavininn í fyrirrúmi, góða starfs- mannastefnu og brjálæðislega út- þenslustefnu. Flestu af þessu má líkja við McDonalds-hugmyndina. Einföld hugmynd sem byggir á þörfúm og óskum viðskiptavina á alls staðar við. Það er þó ýmislegt áberandi ólíkt með þessum tveimur fyrirtækjum. Á Kaffivæðing Þrátt fyrir að útþensluhugmyndin sé að miklu leyti tekin beint úr McDon- alds-smiðjunni þá hefur Starbucks ekki notað sérleyfisaðferðina sem gerði McDonalds kleift að vaxa með ógnar- hraða. í staðinn hefur Starbucks fjár- magnað starfsemi sína eftir hefð- bundnum leiðum í Bandaríkjunum og oft gert samstarfssamning við önnur fyrirtæki þegar keðjan hefur opnað kaffihús erlendis. Fyrirtækið var sett á hlutabréfamarkað árið 1992. Vöxturinn hefur verið ógnvænlegur, í byrjun tíunda áratugarins voru kaffi- húsin 84 talsins en undir lok aldarinnar era þau orðin rúmlega 3.300 talsins (sjá mynd 2). Þegar Howard Schultz sagði Mynd 1. Hlutabréfaverð Starbucks slðustu fimm ár 1996 1997 1998 1999 2000 Mynd 2. Fjöldi Starbucks-kaffihúsa (1990-2000) OT-cNcoTj-incoN-oocno S(J)0)(J)0)0)0)0)0)0)0 010)0)0)0)0)0)0)0)0 2

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.