Vísbending - 21.11.2003, Side 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
21. nóvember 2003
47. tölublað
21. árgangur
Norðurlandaveldið
Þegar listi World Economic Forum
yfir samkeppnishæfni landa var
birtur í lok október mátti sjá að
Norðurlandaþjóðirnar voru á meðal níu
efstu þjóðanna og Finnland í efsta sæti
listans. Norðurlandaþjóðirnar eru meðal
allra ríkustu þjóða í heimi og með hvað
best reknu hagkerfin á flesta mælikvarða.
Norðurlöndin ættu þannig að vera
fyrirmynd annarra þjóða. Norðurlöndin
eru að mörgu leyti stórveldi.
Stærð og ríkidæmi
Norðurlandaþjóðimar eru meðal rík-
ustu þjóða í heimi, mælt sem verg
landsframleiðsla á mann á kaupmátt-
arkvarða. Miðað við tölur fyrir síðasta
ár þá var Noregur ríkasta þjóð í heimi,
Danmörkí þriðja sæti, Island í þvífjórða,
Finnland í fimmtánda og Svíþjóð í
nítjánda sæti. Svíþjóð hefur þó lengst
af verið drifkrafturinn þó að Finnland
hafi tekið frumkvæðið á síðustu árum.
Svíþjóð er engu að síður stærsta hag-
kerfið, með 240 milljarða dollara verga
landsframleiðslu á síðasta ári, en Noreg-
ur, sem er næststærst, var með 193 mill-
jarða dollara landsframleiðslu. ísland er
litli bróðirinn í hópi Norðurlandanna,
með 8,7 milljarða dollara verga lands-
framleiðslu á síðasta ári sem vegur ein-
ungis 1,2% af heildinni (sjá töflu).
Samanlagt var verg landsframleiðsla
Norðurlandanna 746 milljarðar dollarar
á síðasta ári sem er litlu meira en lands-
framleiðsla Kanada en einungis tæplega
Verg landsframleiðsla Norðurlandanna, hlutfallsleg stœrð, mannfjöldi
og einkunn á samkeppnishœfnikvarða og nýting fjarskiptatœkni
Norður- lönd VLF (ma. $) Hlutfallsl. stærð Mannlj. (í þús.) Efnahags- umhverfi Stofnana- umhverfi Tækni- væðing Viðskipta- umhverfi Nýting fjarsk.t.
Sviþjóð 240,3 32,2% 8.925 8 7 4 3 1
Noregur 193 25,9% 4.538 4 16 13 22 5-9
Danmörk 172,2 23,1% 5.374 5 1 8 4 2
Finnlaml 131,5 17,6% 5.201 2 2 2 1 5-9
fsland 8,7 1,2% 288 16 3 15 14 3-4
Sanitals 745,7 100,0% 24.326 3 3 4 3 1
helmingur af landsframleiðslu Bret-
lands og bandaríska hagkerfið er fjórtán
sinnum stærra en hagkerfi Norðurland-
anna. Svipaða sögu má segja þegar
íbúafjöldinn er skoðaður, samanlagt búa
24,3 milljónir manna á Norðurlöndum
en 59 milljónir manns búa í Bretlandi og
289 milljónir í Bandaríkjunum. í slíkum
stærðarmælingum eru Norðurlöndin
kannski ekki stórveldi en þegar innvið-
irnir eru skoðaðir þá dylst engum að
Norðurlöndin eru leiðandi á allmörgum
sviðum.
Mikil samkeppnishæfni
A lista World Economic Forum var
TlFinnland, eins og áður segir, í efsta
sæti, Svíþjóð í því þriðja, Danmörk í
fjórða, Island í áttunda og Noregur í því
níunda. Bandaríkin, Tævan, Singapúr
og Sviss raða sér í lausu sætin á toppn-
um. Bretlanderífimmtándasæti. Saman-
lagt hefðu Norðurlöndin lent í öðru sæti
á þessum lista en Bandaríkin hefðu
hreppt efsta sætið. Hvað varðar einstaka
liði þá er efnahagsumhverfið og stofn-
anaumhverfið það þriðja besta í heimi
og h vað tækni væðingu varðar eru Norð-
urlöndin í tjórða sæti (sjá töflu).
Öll Norðurlöndin eru framarlega á
þá undirmælikvarða sem notaðir eru til
þess að mæla samkeppnishæfni landa
eða getu þjóðar til þess að dafna enn
frekar. Helst eru það þó Noregur og
Island sem dragast þar aftur úr. Þetta má
líka sjá á kvarða um viðskiptahæfni en
þar eru Finnland, Svíþjóð og Danmörk
á meðal fjögurra efstu þjóða, Bandaríkin
eru í öðru sæti á eftir Finnlandi og Bret-
land í sjötta sæti, en Island í því fjórtánda
og Noregur í tuttugasta og öðru (sjá
einnig 6. tbl. íslensks atvinnulífs). Sú
niðurstaða endurspeglar áherslu Norð-
manna og Islendinga á náttúruauðlindir
í stað nýsköpunar. Engu að síður er
tæknivæðing á Norðurlöndununt með
því allra mesta í heiminum og hafa þau
öll sýnt mikla hæfni til þess að breytast
(Framhald á síðu 4)
Mynd 1. VLF á mann í Norðurlöndunum að
meðaltali eftir áratugum (%)
Mynd 2. VLF á mann í Bandaríkjunum, Bretlandi
ogNorðurlöndunum (vegið m.v. stœrð) (%)
6
5
4
3
2
I
0 -H
1970-80
Heimild: OECD
1980-90
1990-00
2001-04
4
3.5
3
2.5
2
1.5
1
0,5
0
1970-80
Hcimild: OECD
1980-90
1990-00
2001-04
1
Öll Norðurlöndin eru á
meðal allraríkustu og sam-
keppnishæfustu landa í
heimi.
2
Stundum virðist sem hugs-
unarferlið hefjist hvorki né
endi mcð það markmið að
fá nothæfa njj
Þórður Friðjónsson fjallar
um framtíðkauphallarinnar
en íslenski markaðurinn er
nú orðinn fullvaxta.
4
Framhald af forsíðugrein
um veldi Norðurlandanna
óg keppikefli þeirra að við-
halda hagsældinni.
/)V