Vísbending


Vísbending - 05.03.2004, Page 3

Vísbending - 05.03.2004, Page 3
ISBENDING Rekstrarkostnaður íslenskra banka Guðjón Rúnarsson lögfræðingur 14. og 5. tölubl. Vísbendingar 2004 birtust greinar eftir Ólaf Klentensson hagfræðing þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu að rekstrarkostnaður íslenskra banka sé of hár í samanburði við nágrannalöndin sem eigi rót að rekja til fjölda útibúa og margra starfsmanna hérlendra banka. Jafnframt kemur fram að rekstrarkostnaður bankanna sem hlutfall af vergri landsfrantleiðslu sé hæstur hér af Norðurlöndunum. Ólafur bendir á að hagkvæmni stærðarinnar gegni lykilhlutverki í að aukahagkvæmni og skilvirkni. Þar hafi viðskiptabank- arnir hérlendis náð árangri og eigi mikið inni en hann hefur áhyggjur af stöðu sparisjóðanna ef ekki komi til hagræðing þar. s Ohagkvæmni smæðarinnar Niðurstöður Ólafs eru áhugaverðar. Reyndar ætti engum að konia á óvart að rekstrarkostnaður banka og sparisjóða sem hlutfall af landsfram- leiðslu sé hæstur hér. Öll þjónusta sem krefst ákveðinna grunninnviða er almennt dýrari í smáu landi en stóru. Nýleg úttekt Hagfræðistofnunar á flugrekstri á Islandi sýnir þetta vel, en þar kemur fram að hlutfallslegt umfang flugrekstrar af landsframleiðslu er lang- hæst á Islandi af Evrópulöndunum.1 Til að halda upp góðri flugþjónustu er þörf á lágmarksyfirbyggingu sent er óháð farþegafjölda. Þetta er einfaldlega ókostur þess að vera smár. Hjá fjármála- fyrirtækjum liggja miklir fjármunir bundnir í tölvu- og upplýsingakerfum Þróun fjölda útibúa og starfs- manna á íslandi og í Noregi ísland Ár 1983 2003 Breyting Útibú 167 180 7,8% Starfsmenn 2.456 3.446 40,3% Noregur Ár 1985 2003 Breyting Útibú 2.062 1.376 -33,3% Starfsmenn 24.569 16.049' -34,7% sem nýtast betur eftir því sem viðskipta- mannahópurinn er stærri. Tafla Ólafs sem sýnir langlægstan íbúafjölda á hvern afgreiðslustað hérlendis af Norð- urlöndunum er hins vegar góð áminning. Þótt hún bendi til óvenjuhás þjónustu- stigs hérlendra banka, bendir Ólafur á að hún sýni ekki síður að fjöldi útibúa sé einfaldlega of mikill miðað við íbúa- fjölda landsins. Útibúanetið Asíðustu áratugum hafa verið gerðar ýntsar hagræðingar í útibúaneti banka hér á landi. Slíkar framkvæmdir hafa oft mætt harkalegum viðbrögðum sveitarstjórna og þingmanna viðkom- andi kjördæmis, sem hafa fordæmt áformin opinberlega. Rök um þjóðhags- lega hagkvæmni, breytt eðli bankaþjón- ustu með aukinni tæknivæðingu o.s.frv. hafa ekki átt upp á pallborðið. Mikil hag- ræðing hefur átt sér stað í bankakerfum flestra Evrópuríkja á síðustu áratugum. Sem dænti er nú almennt ekkert útibú í hollenskum bæjum með undir 3000 fbú- unt heldur einungis hraðbankar. Menn geta gert sér í hugarlund hvert ástandið yrði í bankaþjónustu víða unt land ef sama stefna viðgengist hérlendis. Er það neytendavæn stefna? Ólafur bendir á í grein sinni að það Norðurlandanna sem er með landfræðilega líkastar að- stæður og Island, Noregur, er með helm- ingi fleiri íbúa á hvern afgreiðslustað. Ahugavert er að bera saman þróun útibúa- og starfsmannafjölda í þessurn tveimur löndum á síðustu tveimur áratugum (sjá töflu).2 Þessi ólíka þróun stingur í augu. Utibúum og starfsmönnum í Noregi fer enn fækkandi í framhaldi af sameiningu DnB og Gjensidige NOR (Dnb NOR) undir lok síðasta árs. Santbærileg þróun hefur átt sér stað á hinum Norðurlönd- unum og sér ekki fyrir endann á henni. Islenskur lánamarkaður / Islenskur fjármálamarkaður býr við þá sérstöðu hversu stór hluti lánakerf- isins er ennþá í höndum ríkisins. Þar gín hinn rfkisrekni Ibúðalánasjóður yfir markaði einstaklingslána eins og mynd 1 sýnir vel. Hlutur lífeyrissjóða vekur einnig athygli, en í nágrannalöndunum stunda lífeyrissjóðir almennt ekki lána- starfsemi. Ef Ibúðalánasjóður, LIN og lífeyrissjóðir eru teknir saman er hlut- deild þeirra um 70% á þessunt markaði.3 SB V birtu í febrúar 2003 skýrslu unt markaðsvæðingu húsnæðisfjármögn- unar þar sem kynntar voru leiðir til að færa þennan þátt lánamarkaðarins frá ríki til fjármálafyrirtækja. Þar kom fram að auðvelt væri fyrir bankakerfið að sinna þessari þjónustu án kostnaðar- aukningar í rekstri í ljósi þeirrar miklu sérþekkingar á lána- og áhættusviði sem hefur verið byggð upp síðustu ár. Jafn- framt var bent á að slík breyting væri til (Framhald á síðu 4) Mynd 1. Markaðslilutdeild banka og stofnana á lánamarkaði Trygginga- Eignaleigur Lífeyrissjóðir 11% Viðskipta- bankar og sparisjóðir 26% Lánasjóðir ríkisins (LÍN) 7% Mynd 2. Heildargjöld meðalviðskiptavinar á ári m.v. verð samkvœmt verðskrám lbúðalána- sjóðir 51% Aðrir fjárfestinga sjóðir 1% I t C/3 3

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.