Frjáls verslun - 01.03.1945, Qupperneq 7
jafnliátt undir höfði or' að afnumin verði ó-
liæfileft' höft og hömlur. Nauðsynleg aukninn'
getur því a.ðeins átt sér stað, að allar þjóðir
os þegnar þeirra starfi saman í eindrægni os
með skilnins'i hver á annars vandamálum os
S'eri virkar ráðstafanir með gasnkvæman hag
fyrir auguin til að Ieysa vandamálin. (Leturbr.
vor.)
Með því að skiptast á upplýsingum og með
því að ræða málin opinskátt og í fullri vin-
semd í anda gagnkvæmrar hjálpsemi, geta
kaupsýslumenn allra þjóða lagt fram mikinn
skerf til þess mikla starfs að reisa heiminum
nýja og betri félagsbyggingu, sem nauðsyn-
leg verður til að tryggja velgengni og öryggi
heimsins, í stað þess hagkerfis, sem ófriðurinn
hefur úr lagi fært.
Ég er þess fullviss, að fundur kaupsýslu-
manna rvargra þjóða á alþjóða verzlunarráð-
stefnunni mun stuðla að því, að vér getum náð
þessum miklu markmiðum, og sendi ég ráð-
stefnunni beztu óskir um að störf hennar megi
vel takast.
Yðai' einlægur
Franklin D. Rooseveit.
Þetta bréf Bandaríkjaforseta virðist vera
annað og meira en venjuleg kurteisiskveðja. Það
er eins og inngangur eða forleikur að sjálfri
ráðstefnunni. Hér er tónninn gefinn, óhikað og
djarflega, eins og bezt kemur fram í málsgrein-
inni, sem feitletruð er hér að framan.
Hér er í öndverðu sleginn sá demókratiski
strengur, sem ómar í öllum athöfnum þessa
móts, eins og augljósast má verða af því, að
dvergurinn meðal þjóðanna fær þar sömu íhlut-
un og ákvörðunarvald sem mestu og voldugustu
bergrisarnir.
Munum vér nú gera stuttlega grein fyrir
nefndarálitum og tillögum þeirra þriggja
nefnda, er Magnús Kjaran sagði frá í erindi
sínu. En eins og áður er sagt, hlutu nefnda-
tillögurnar einróma samþykki ráðstefnunnar
sjálfrar.
1. Nefndarálit viðskiptamálanefndar.
Hlutverk nefndar þessarar var að fjalla um
verzlunarstefnur þjóða. Átti Magnús Kjaran
þar sæti af hálfu Islendinga.
Álit nefndarinnar er í sem fæstum orðum eins
og hér segir:
Takmark viðskiptalífsins á að vera bætt lífs-
skilyröi manna um heim allan. Þessu takmarki
er unnt að ná, og verður einstaklingsfram-
takið að leggja sig fram í því skyni. Það verð-
FRJÁLS VERZLUN
ur að hagnýta sem bezt allar auðlindir heims-
ins. En skilyrðið til þess, að það geti tekizt,
er, að verzlunin sé sem fjölbreyttust. Frelsi
og heill þjóðanna byggist á framleiðslunni,
en ógerlegt er að auka framleiðslu og atvinnu,
nema með afnámi óþarfra verzlunarhafta.
Meðan verið er að leita jafnvægis eftir
stríðið, má búast við að halda verði, að
minnsta kosti um sinn, einhverju af þeim
hömlum, sem á hafa verið lagðar af styrj-
aldarástæðum og þá einkum í þeim löndum,
sem verst hafa orðið úti. En gæta verður þess,
að slíkri íhlutun verði ekki haldið svo lengi,
að hefð komist á hana. Þá verður að taka tillit
til mismunandi aðstæðna í löndunum og bæta
úr því, sem áfátt er með þeim ráðstöfunum,
sem bezt eiga við í hverju landi um sig. Vilji
til dæmis landbúnaðarþjóð koma upp iðnaði til
eflingar atvinnulífinu, verður að rannsaka,
hvaða iðnaður henti bezt, og jafnframt hvaða
áhrif stofnun slíkrar iðnaðarframleiðslu kynni
að hafa í öðrum löndum.
Háir tollar, innflutningsbönn, kvótar, ríkis-
styrkir, gjaldeyrishömlur og hvers konar
tálmanir einkenndu tímabilið fyrir stríðið. Til
þess að rutt verði úr vegi þeim hindrunum,
sem þannig eru til fyrirstöðu frjálsum við-
skiptum, leggur nefndin til, að gerðir séu fjöl-
hliða viðskiptasamningar, sem allar þjóðir
eigi kost á að taka þátt í, þar sem stefnt verði
að því,
að lækka smátt og smátt tolla,
að afnema kvóta og innflutningsbönn,
að ákvæðinu um „beztu kjör“ sé fylgt af-
dráttarlaust í öllum viðskiptasamningum,
að öllum sé gert jafn hátt undir höfði,
að lagðar verði niður ríkiseinkasölur og rík-
isframleiðslustofnanir, vegna þess, að af þeim
leiðir misrétti gegn öðrum.
Þá leggur nefndin til, að verzlunarsamningai'
milli þjóða séu gerðir til ekki minna en tíu ára,
svo að unnt sé að gera ráðstafanir til langs tíma
um framleiðslu og sölu.
Auk þess gerir nefndin ráð fyrir alþjóða-
liagsmunasáttmála, sem byggist á þeim fjöl-
hliða viðskiptasamningum, sem nefndir hafa
verið. Og loks, að komið verði á alþjóðlegum
liagsmunasamtökum, sem hafi eftirlit með við-
skiptaháttum þjóðanna og samræmi þá ákvæð-
um hagsmunasáttmálans.
2. Álit nefndar þeirrar, er fjallaði nm
liráefni og matvæli.
Af Islands hálfu átti Magnús Kjaran einnig
7