Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1945, Side 8

Frjáls verslun - 01.03.1945, Side 8
sæti í þessari nefnd. í nefndarálitinu er þeirri skoðun lýst yfir, „að framleiðsla, vinnsla og dreifing hráefna og matvæla eigi að vera í höndum einkafyrir- tækja, rekinna af þeim og á þeirra ábyrgð.“ Hlutur ríkisstjórna í þessum efnum sé hins vegar sá, að veita fyrirtækjunum stuðning með því að gangast fyrir rannsóknum, aukinni menntun, söfnun og útgáfu hagskýrslna og því um líku. Um álit nefndarinnar á viðskiptahömlum nægir að vísa til nefndarálits viðskiptamála- nefndar hér að framan. Nefndin leggur til, að stofnuð sé alþjóðleg viðskiptamiðstöð, sem sé upplýsingastofnun, safni skýrslum um framleiðslulíkur og sennileg markaðsskilyrði og veiti hvers konar upplýs- ingar, sem komið geti hlutaðeigandi aðiljum að haldi. Nefndin leggur til, að fulltrúarnir á ráð- stefnunni hlutist til um það, hver um sig, við menntamálastjórn lands síns, „að leggja frek- ari áherzlu á bætt lífsskilyrði, þar með talið mat- aræði, betri klæðnaður, betri skipun heilbrigðis- mála og aukin heilsuvernd.“ Að endingu er því lýst yfir, að „mestu hags- bætur, sem þjóðum heimsins geta fallið í skaut, munu verða árangurinn af því, að hráefnum þeim og matvælum, sem til aflögu verða á hverj- um stað, verði skipulega dreift á heimsmarkað- inn eftir viðskiptaleiðum einkaframtaksins." 3. Álitsgjörð þeirrar nefndar ráðstefnunnar, er fjallaði um einstaklingsframtakið. Af hálfu Islands átti Haraldur Árnason sæti í þessari nefnd. I nefndarálitinu segir: „Einróma álit nefndarinnar er það, að fyrir- komulag einstaklingsframtaksins sé hin bezt kunna leið til þess að koma á raunverulegri alheims-velmegun og fullnýtingu vinnuaflsins, svo og að tryggja og halda við heimsfriðnum, en þetta stuðlar að bættum lífsskilyrðum fyrir allar þjóðir. Þess vegna er því haldið fast fram, að stjórnirnar viðurkenni og styðji meginreglurnar, sem einstaklingsframtakið byggist á, en þær eru: 1. Jafnrétti til athafna. 2. Jafnrétti fyrir lögum. 3. Verðlaun fyrir framtak. 4. ívilnun fyrir sparsemi. 5. Skattafyrirkomulag, sem ýtir undir at- hafnalöngunina og áhættuhvötina. 8 6. Takmörkun á emkasölu. 7. Ríkisstjórn faili frá samkeppni við einka- fyrirtæki. 8. Framleiðsla og afurðasala án tálmana. 9. Réttlát ágóðaskipting, jafnhliða því að tryggðir séu hagsmunir neytenda og vinnuafls í því augnamiði, að vaxandi fjölda manna sé séð fyrir fleiri og fleiri hlutum, en slíkt hefur í för með sér há- marks atvinnumöguleika við hin hæstu launakjör (level of wages). 10. Stjórn, sem með löggjöf mun vera verzl- unarstéttinni til hvatningar, með því að sjá henni fyrir starfssviði í samræmi við ofangreindar meginreglur. Rauði þráðurinn. Magnús Kjaran sagði í erindi sínu, að frelsi úg. mannréttindi hefðu verið efst á baugi á ráð- stefnunni í Rye. Þótt hér hafi verið farið fljótt yfir sögu, er það, sem sagt hefur verið, nægi- legt til’að sýna, að Magnús Kjaran hefur gefið rétta lýsingu á þeirri stefnu og þeim anda, sem ríkti á þessari alþjóðaráðstefnu kaupsýslu- manna. Það ætti að vera öllum þjóðum hugleikið, að sá andi og sú stefna næði sem mestum tökum í verzlunarviðskiptum þjóða í milli, og þó sér- staklega þeim þjóðum, sem minnstar eru fyrir sér. Friðinum í heiminum, farsæld og öryggi ein- staklinga og þjóða verður þá fyrst borgið, er hinn demókratiski andi, andi samúðar, gagn- kvæms skilnings og gagnlívæmrar tilhliðrunar- semi nær ekki einungis til verzlunarviðskipta, heldur og stjórnmálaviðskipta, menningarvið- skipta — allra samskipta þjóða í milli. Það er gleðiefni, að valdamestu leiðtogar ó- líkra þjóða með ólíka menningu, erfðavenjur og lífsskoðanir, geta orðið ásáttir um sameiginleg- ar ráðstafanir til tryggingar friði og farsæld í heiminum á komandi tímum. En árangur slíkra ráðstafana veltur á því, hve vel hinir fáu ,,stóru“ hafa munað eftir hinum mörgu „smáu“. Um stundarsakir er hægt að sjá heildinni borgið með því að ganga á réttindi einstaklinganna. En varanlegt öryggi heildarinnar er komið undir hollustu einstaklinganna, — ekki þrælsótta eða oftrúarhollustu —, heldur fúsri og yfirvegaðri hollustu frjálsra manna, sem finna og viður- kenna, að réttlátlega er að þeim búið. Rauði þráðurinn í öllum ályktunum og at- höfnum Alþjóðaráðstefnu kaupsýslumanna, sem haldinn var í Rye, er þessi: Skilyrðin til þess að milliríkjaviðskiptin geti náð heilbrigðum þroska, eru þau, að stórir og smáir, ríkir og FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.