Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1945, Qupperneq 20

Frjáls verslun - 01.03.1945, Qupperneq 20
skiljum öllum þjóðum betur, að maðurinn liíir ekki á einu saman brauði. Þess vegna kaupum við bækur og aðra andans fæðu fyrir einar 15—20 Vínland milljónir á ári, eða sem svarar a. m. k. hið góða. 150 kr. á hvert mannsbarn í landinu. Til frekari áréttingar og öryggis kaupum við svo vínanda fyrir hátt á fjórða milljónatug króna, eða um 300 krónur á mann til jafnaðar, þar með talið hvítvoðungar, karlægt fólk og góðtempl- arar. „Dáindis lagleganana af sér vikið“ af þjóð, sem er svo bindindissinnuð, að hún heldur alltaf uppi hálfgerðu áfengisbanni! Nærri lætur, að þriðjungur af tekjum ríkisins sé tollur og verzlunarhagnaður af áfengi. „Landið græðir mest á mér, mest drekk ég á nótt og degi,“ segir Páll Ólafsson í hugleiðingum sínum um brennivínstollinn og hag föðurlandsins. Og Jónas Hallgrimsson segir að íslendingar lifi á „mysu og mjólk, en mest á brennivíni.“ Hið unga íslenzka lýð- veldi lifir mest á brennivíni. Það er að tiltölu við fólksfjölda mesti sprúttsali í heimi. Hagkerfi þess er svo dásamlega upp byggt, að það er hægt að koma því í megnustu vanskil og f járhagskröggur með því að hætta að kaupa áfengi nokkra mánuði. Hvbr ,,þurr“ dagur kostar ríkið hundrað þúsund krónur. Svo það nálgast í raun og veru fullkomna skemmd- arstarfsemi að láta nokkurn tíma skorta vín. Enda verður að játa, að miklu meiri áherzla er lögð á inn- flutning þess en ávaxta, smjörs og annars óþarfa! Það mundi þykja hrottalegt að segja, að drykkju- skapur væri þjóðarnauðsyn. Hinu verður ekki neit- að , að áfengiskaup er undirstöðuatriði í efnalegu sjálfstæði, verklegum framkvæmdum, bindindisút- breiðslu og hvers konar menningarviðleitni yngsta og efnilegasta lýðveldisins á jörðu hér. Ergo: drekka eins og flón og yfirvöldin reka af höndum! Þá verður mitt feðrafrón farsælast af öllum löndum. Bankablaðið. Síðara hefti Bankablaðsins 1944 kom út fyrir nokkru. Birtist þar löng og fróðleg grein um 250 ára starfsemi Englandsbanka, útdráttur úr skýrslu íslenzku sendinefndarinnar á fjármálafundinum í Bretton Woods og minningarorð, sem Sigurður Arn- grímsson ritar um Eyjólf Jónsson, fyrrverandi úti- bússtjóra á Seyðisfirði. Auk þessa eru í blaðinu fræðandi ritgerðir um starfsemi íslenzku bankanna fyrr og nú og fjöldi stuttra en skemmtilegra greina um áhuga- og hagsmunamál bankamanna. Blaðið er 46 síður að lesmáli, prýtt mörgum myndum og allur frágangur hinn vandaðasti. Ritstjóri þess er Adolf Björnsson, en útgefandi er Samband íslenzkra bankamanna. 20 „FRJÁLS VERZLUN" Utgefandi: Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Formaiiur: Oddur Helgason. Ritstjóri: Jónas Arnason. Ritnefnd: Einar Ásiuundsson, Pétur Ólalsson, Baldur Pálmason, Ivar GuiVinundsson, Luðvig Hjálmtýsson. Skrifstofa: Vonarstræti 4, 2. hæð, Reykjuvík. Sími 5293. IsafoldarprentsmiSja h/f. Smælki. Gömul kona átti páfagauk, sem var í hæsta máta orðljótur. Meðal annars hafði hann lært þessa setn- ingu: „Þess vildi ég óska, að kerlingar-uglan væri steindauð," og þessi orð viðhafði hann óspart í samræðum sínum við menn og málleysingja. Hins vegar átti prestur gömlu konunnar páfagauk, sem var kunnur fyrir kurteisi og háttprýði, enda alinn upp við Guðsótta og góða siðu. Gamla konan fór nú með sinn páfagauk til prestsins og kom honum þar í vist í von um, að hann mundi nú læra kurteislegra orðbragð af páfagauk prestsins. Skömmu seinna kom sú gamla í heimsókn á prestsetrið, til þess að forvitnast um hag og háttabót hins óprúttna páfa- gauks. En ekki var hún fyrr komin inn úr dyrun- um, en hún heyrði kveða við hið gamalkunna: „Þess vildi ég óska, að kerlingaruglan væri steindauð." Og páfagaukur prestsins tók undir í kristilegri tón- tegund: „Heyr þú vora bæn, góður guð.“ ★ I kvikmyndahúsinu. Hann: Stendur kaldur súgur í bakið á þér? Hún: Nei. Hann: Er sætið þitt þægilegt? Hún: Já. Hann: Sérðu vel á myndina? Hún: Já, alveg prýðilega. Hann: Þá skulum við skipta um sæti. ★ Hermaður skrifar konu sinni: „Ég er búinn að fá mig fullsaddan af nöldrinu í þér og bið þig, í guðs bænum, að hætta að senda mér skammabréf, á meðan ég er hér á vígvellinum. Ég vil fá að berjast í friði.“ ★ Nonni litli hefur ekki mikla trú á réttlætinu í heimi hér: „Ef mér verður á að setja einn fingur upp í mig, þá er ég húðskammaður og kallaður öll- um illum nöfnum; en þegar litli bróðir lætur eins og bjáni og stingur öðrum fætinum upp í sig, þá finnst öllum það vera sniðugt og hlægilegt." FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.