Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 3

Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 3
Þorsteinn Jósepsson, blaðamaður: fi'ei’ÓQfQbb Nýlega var ég á ferðalagi hér á landi og kom þá eins og gerist, og gengur á ýmsa veitinga- og gisti- staði. Barst það á nokkrum stöðum í tal hvernig aðsókn væri á þessum stöðum yfir sumarið, þ. e. á tírna sumarleyfa og ferðalaga. Svarið var oftast nær hið sama. Það að nokkur aðsókn væri iitlendra ferðamanna, en þeir íslenzku væru að mestu leyti hættir að sjást, a. m. k. í lilut- falli við það sem áður hafi verið. Ástæðan fyrir þessu var talin sú, að íslendingar væru hættir að ferðast um sitt eigið land, þeir færu til útlanda í stað þess. Og því er nú einu sinni þannig háttað, að íáár þjóðir hafa meiri þörf fyrir að ferðast til útlanda heldur en einmitt Islendingar. Þeir eru afskekktir frá öðrum þjóðuin, búa við ólík skilyrði, og landið sjálft og náttúra þess gjörólík því sem við sjáum þegar við komum til annarra landa. Það er vissu- lega mikils virði og menningaratriði að komast út fyrir landsteinana og kynnast af eigin sjón og reynd því sem aðrar þjóðir búa við, hvort heldur það eru ytri skilyrði eða menningarverðmæti. Á slíkri þckkingu vöxum við og ég fagna því af lieilum luig að íslenzkur almenningur skuli hafa efni og möguleika — auk vilja á því að ferðast til annarra landa. Með þessu er samt enganveginn sagt að manni beri að forsmá sitt eigið land né láta kynni við það sitja á hakanum, heldur þvert á móti. Aukin þekk- ing — sama á hvaða sviði sem er, er jafnan til góðs og flestir læra betur að meta einkenni, sér- kenni og verðmæti síns eigin lands eftir að liafa öðlazt möguleika á samanburði þess við önnur lönd. Aldrei liefur mér þótt jafn vænt um ísland og eft- ir að hafa ferðazt til útlanda. Ilafði aldrei lært að meta kyrrð né óravíðáttur Sprengisands og Ódáðahrauns fyrr en ég hafði búið langdvölum í þys erlendra stórborga, sætti mig ekki við veðra- ham og kuldahryssing á háfjöllum hér heima fyrr en ég var hálfkafnaður úr sumarhitum langt suður í löndum, mat ekki lækjarnið né urðarholt fyrr en ég hafði sumar eftir sumar gengið um sléttur og akurlönd þar sem hvergi sá stein og hvergi spratt lind undan bakka. Síðan lítur Island öðruvísi út í augum mínum og skynjan. Ég fæ mig aldrei saddan á sérkenni- leika þess og töfrum og finnst ég gæti ferðazt um það óendanlega oft og lengi. Mér finnst meira að segja að Island hafa meira að bjóða, búi yfir meiri fjölbreytni, meiri töfrum og andstæðum en flest önnur lönd, sem ég hefi ferðazt um. Það ber margt

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.