Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 5
til. Svipur landsins er óvenju margbrotinn, tilbreyt-
ingin óendanleg, andstæðurnar miklar, litirnir marg-
ir og skrautlegir og loks það, að loftið er óvenju-
lega tært. Af þeim ástæðum nýtur maður fegurðar-
innar betur hér heldur en í öðrum löndum, þar
sem hún annars er sambærilega mikil.
En hvert á þá að ferðast og hvernig á að ferð-
ast?
l’essari spurningu hlýtur að skjóta fram í luiga
hvers þess einstaklings, sein ákveðið hefur að leggja
land undir fót í fyrsta skipti tii þess að skoða Is-
land.
Það er ekki að ófyrirsynju að fólk spyrji, því það
er engan veginn sama hvert ferðazt er, og ennþá
síður hvernig maður ferðast.
Ef ég ætti að gefa einhverja bendingu eða ráð-
leggingu óreyndum ferðamanni myndi ég leggja
honum það höfuð-heilræði að velja sér stað eða
landsvæði þar sem helzt eru líkur fyrir góðu veðri.
Fólk kann að brosa að slíku heilræði, og marg-
ur segja að útilokað sé að fara eftir jiví, þar sem
veðráttan sé hið breytilegasta fyrirbæri á íslandi
og duttlungafyllsta, þannig að oft séu mörg veður
suma dagana og í önnur skipti breytist það dag
frá degi. Þetta er að sumu leyti satt, en engan-
veginn einhlítt. Mér finnst ég hafi talsvert aðra
persónulega reynslu á sumarferðalögum mínum
undanfarin ár, þannig að oft gangi til ákveðinnar
EKKI ER RÁÐ,
NEM A
í TÍMA SÉ TEKIÐ
NAUST
S í m a r :
Gestir 17759
Skrifst. 17758