Frjáls verslun - 01.07.1959, Síða 13
frcmst að gœta haglendis, færra lciða fyrir hestinn
og ofbjóða honum ckki mcð of hraðri eða erfiðri
ferð.
Frjálsastur cr ferðalangurinn fótgangandi — á
tveim jafnfljótum — hvort sem hann ferðast i
l>yggð cða á öræfum. Ilvergi nýtur maður frelsis-
tilfinningar í jafn ríkum mæli cins og þegar mað-
ur er einn á ferð mcð tjald og mal á baki, þá cr
maður engum og engu háður, þarf ekki að taka
tillit til neins nema duttlunga sjálfs sín. Getur
byggt hús sitt þegar rignir, borðað þegar mann
svengir, hvílt sig þegar hvíldar er þörf og haldið
svo alfrjáls af stað aftur, óháður áætlunum og
ákvörðunum öðrum en líðandi stundar.
Þótt maður sé að vísu frjálsastur einn á ferð,
myndi cg ekki ráðleggja neinum að leggja ein-
samlan til óbyggða og helzt ættu menn ekki að
fara færri en þrír saman. Það léttir burð á tjaldi,
hitunartækjum og eldsneyti, en fyrst og fremst er
það j)ó af öryggisástæðum, ef óhöpp cða slys bera
að höndum.
í öllum ferðalögum þarf útbúnaður að vera cins
léttur, lítill og hagkvæmur og frekast cr unnt. Sér-
staklega á þetta við um gönguferðir, en gildir ])ó
um allar fcrðir að mcira eða minna leyti. Því minni
sem farangurinn er þeim mun hreyfanlegri er eig-
andinn, með hvaða farartæki sem hann ferðast,
einkum gætir þessa á leið í farartækin og úr þeim
aftur.
Um gönguferðir skal sérstaklega taka fram að
þar er áríðandi að hafa létt tjald og tjaldbotn.
Meira að segja er tjaldbotn ekki endilega nauðsyn-
|_Jefjið ferðir, aldnir, ungir,
^"^skir rætast, drungi víkur,
'Y'ygið ykkur, akið hingað,
jj^ngan ferðavonin svíkur.
J^ífsins njótið, kynnizt kætizt,
J^'omið þar sem fólkið mætist
j^ftir skemmtun ýminskonar:
^^ka, synda, dansa, veiða:
Hótel KEA, Akureyri,
ykkur veitir beztan greiða.