Frjáls verslun - 01.04.1992, Síða 2
yfSflr Ráðgjöf í sextíu ár
Brautryðj andinn
Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen, eða VST eins og
skammstöfunin hljóðar, er elsta og
stærsta verkfræðistofan á
einkamarkaði á fslandi. Stofan
kennir sig við frumherjann, Sigurð
Thoroddsen, sem hóf sjálfstæðan
rekstur á vormánuðum árið 1932.
Smám saman vatt starfsemin upp á
sig og þrjátíu árum eftir opnun
stofunnar var fyrirtækinu breytt í
sameignarfélag.
VST varð að hlutafélagi árið 1976 í
eigu meirihluta þeirra
tæknimenntuðu manna sem þar
starfa.
Sigurður Thoroddsen fæddist á
Bessastöðum 24. júlí 1902, sonur
hjónanna Skúla Thoroddsen,
ritstjóra og alþingismanns, og
Theódóru Thoroddsen skáldkonu.
Hann lauk prófi í byggingarverkfræði
frá Tækniháskólanum í Kaupmanna-
höfn árið 1927. Nafn hans tengist
með ýmsum hætti virkjunarsögu
íslendinga og byggingarsögu
þjóðarinnar. Hann lét sig félagsmál
stéttar sinnar miklu varða, var
formaður Verkfræðingafélags
íslands um tveggja ára skeið og
frumkvöðull að stofnun Félags
ráðgjafarverkfræðinga og formaður
þess fyrstu árin. - Hann lést í
Reykjavík 29. júlí 1983.
VST er sennilega þekktust fyrir
störf sín tengd beislun vatnsfalla
íslands til framleiðslu raforku.
En VST kemur víðar við sögu. Þar
má nefna margvíslega hönnun húsa,
jafnt íbúðarhúsa,
skóla, kirkna,
félagsheimila
sem annarra
bygginga. Stofan
hefur tekið þátt í
hönnun jafn
óskildra hluta
sem
íþróttamannvirkja
og fiskvinnslu-
fyrirtækja,
hannað hitaveitur
víða um land og
tekið að sér
önnur viðamikil
verkefni á vegum
Sigurður Thoroddsen ruddi braut-
ina og stofnaði verkfræðistofu á
einkamarkaði, þá fyrstu sem hélt
velli hér á iandi.
sveitarfélaga, svo eitthvað sé nefnt.
Nýlegt verkefnasvið VST er
verkefnastjórnun þar sem stofan
kemur fram fyrir hönd verkkaupa
gagnvart hönnuðum, verktökum og
efnissölum.
Sigurður Thoroddsen var
framkvæmdastjóri VST til ársloka
1974 en þá tók Loftur Þorsteinsson
við starfi hans. Loftur lét af starfi
forstjóra sumardaginn fyrsta 1992 og
við því tók Viðar Ólafsson.
Jóhannes Guðmundsson var
fyrsti formaður sameignarfélagsins
og síðar aðstoöarframkvæmdastjóri
um langt árabil.
Sigurður Þóröarson er núverandi
formaður stjórnar Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf.
Á vegum Reykjavíkurborgar er verið
að reisa íbúðir og þjónustumiðstöð
fyrir aldraða við Lindargötu. VST
hefur séð um verkfræðiþátt þeirrar
byggingar.
Starfsmenn
Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen hf. eru nú
um 70 talsins og má
fullyrða að þeir spanni
flest þau svið
verkfræðinnar sem fengist er við hér á
landi. Hluthafar í fyrirtækinu eru 39
talsins úr hópi starfsmanna og eiga
allir jafnan hlut. Starfseminni er skipt
upp í þrjú meginsvið; húsagerðarsvið,
byggða- og tölvusvið og virkjana- og
vélasvið. Framkvæmdastjóri
húsagerðarsviðs og jafnframt forstjóri
stofunnar frá sumarmálum 1992 er
Viðar Ólafsson verkfræðingur.
„Starfsemin á þessari elstu
verkfræðistofu fór hægt af stað á
árunum fyrir stríð. Verkefnin voru þó
margbreytileg; hönnun hafnarmann-
virkja, vatnsveitna og virkjana auk
þjónustu við húsbyggjendur. í lok
stríðsins, samfara miklum búferla-
flutningum til Reykjavíkur, varö
uppsveifla í starfsemi stofunnar um