Frjáls verslun - 01.07.1994, Síða 42
100 STÆRSTU
arða hagnaður gefur 1,3% hlutfall af
veltu. Það er ámóta útkoma og Þjóð-
hagsstofnun birti nýlega úr sinni
könnun sem náði til afkomu og rekst-
urs 786 fyrirtækja. I þeirri könnun
nam hreinn hagnaður af reglulegri
starfsemi fyrirtækjanna um 1,1% af
tekjum þeirra árið 1993 borið saman
við -0,2% árið 1992. Þar munaði
mestu um bætta afkomu banka og
sparisjóða á síðasta ári.
MEÐALLAUN HÆKKA
Víkjum þá að starfsmanna- og
launamálum í fyrirtækjunum. Þar
kemur athyglisverð niðurstaða í ljós.
Af 100 stærstu fyrirtækjunum gáfu 79
þeirra upp meðallaun. Miðað er við
meðallaun á hvert ársverk en fleiri en
einn starfsmaður getur verið
á bak við það ef um hlutastarf
er að ræða. Samanlagður
fjöldi ársverka hjá fyrirtækj-
unum var 25.833 ársverk
eða um 20% af vinnumar-
kaðnum.
MEÐALLAUN FYRIRTÆKIS
164 ÞÚSUND Á MÁNUÐI
Af þeim 79 fyrirtækjum á
meðal 100 stærstu, sem gáfu
upp meðallaun sín, greiddi
hvert þeirra að jafnaði um
1.963 þúsund í meðaUaun á
síðasta ári eða um 164 þús-
und krónur á mánuði og er
það um 3,8% hækkun frá því
síðast er hvert fyrirtæki
greiddi að meðaltali um 157
þúsund á mánuði. Athugið að
launatengd gjöld eru ekki innifalin í
þessari upphæð.
Þess skal getið að þótt svo vilji til
að 79 fyrirtæki hafi einnig gefið upp
meðallaun í fyrra er ekki alveg um
nákvæmlega sömu fyrirtækin að
ræða vegna breytinga á röðun
topp-100 listans.
MEÐALLAUN 26 ÞÚSUND MANNS
UM147 ÞÚSUND Á MÁNUÐI
Ekki fara saman greidd meðallaun
hvers fyrirtækis og samanlögð með-
allaun allra hinna 25.833 starfsmanna
(ársverka) fyrirtækjanna. Meðallaun
er mjög mishá á milli fyrirtækja.
Fyrirtæki, sem greiða há laun og hafa
hlutfallslega fáa starfsmenn, hífa
meðaltalið upp.
Meðallaun hvers starfsmanns (árs-
verks) reynast í könnuninni núna um
1.750 þúsund á ári eða um 147 þúsund
á mánuði. Það er hækkun um 4,3%
þar sem þau voru síðast um 1.697
þúsund á ári og um 141 þúsund á mán-
uði.
í sérúrtaki 73 fyrirtækja á meðal
100 stærstu fyrirtækjanna, sem gefa
upp meðallaun bæði árin, fæst mjög
keimlík niðurstaða. Hækkun meðal-
launa hvers fyrirtækis á milli ára er þó
aðeins minni eða um 2,4%.
ÁRSVERKUM FJÖLGAÐI
75 fyrirtæki á meðal þeirra 100
stærstu gefa um fjölda ársverka og
breytingar á milli ára. Ársverkum
fjölgar hjá 32 fyrirtækjum, fækkar hjá
33 og eru óbreytt hjá 10 fyrirtækjum.
í heildina var fjölgunin um 125 ársverk
hjá þessum 75 fyrirtækjum. Það er
vísbending um að hjólin hafi snúist
hraðar í atvinnuk'finu á síðasta ári mið-
að við árið 1992.
Afar fróðlegt er að skoða nánar þau
33 fyrirtæki af 75, sem gefa upp
breytingar, á ársverkum á milli ára. I
tólf þeirra, eða rúmlega þriðjungi,
fóru heildarlaunin, þrátt fyrir færri
starfsmenn, engu að síður upp. Með
öðrum orðum; þessi fyrirtæki fækk-
uðu starfsmönnum en heildarlauna-
greiðslur hækkuðu.
FÆRRISTARFSMENN
- HÆRRI MEÐALLAUN
í 27 þeirra fyrirtækja, sem fækk-
uðu starfsmönnum á síðasta ári,
hækkuðu meðallaun þeirra starfs-
manna sem eftir voru. Það er vís-
bending um að meira mæddi á þeim
og að þeir hafi fengið greitt fyrir að
taka á sig viðbótarverkefni.
MEÐALLAUNAGREIÐSLUR 471
FYRIRTÆKIS170 ÞÚSUND
Á STARFSMANN Á MÁNUÐI
í fyrsta skipti í sautján ára sögu
könnunar Frjálsrar verslunar eru
starfsmannamál og heildar-
laun allra fyrirtækja, sem
taka þátt í könnuninni, skoð-
uð.
Að þessu sinni sendu 545
fyrirtæki upplýsingar inn til
blaðsins. Af þeim gaf 471 upp
meðaUaun. Niðurstaðan er
að meðllaun hvers þessa 471
fyrirtækis voru um 2.036
þúsund á ári eða um 170 þús-
und á mánuði. Þetta er hærri
tala en þegar meðallaun 100
stærstu fyrirtækjanna voru
aðeins skoðuð en þar voru
þau um 164 þúsund á mánuði.
Þetta gæti verið vísbending
um að greidd séu hærri laun í
smærri fyrirtækjum en stór-
um.
MEÐALLAUN 53 ÞÚSUND
STARFSMANNA UM144
ÞÚSUND Á MÁNUÐI
í því 471 fyrirtæki, sem gaf upp
meðallaun, voru heildarlaun 91,9
milljarðar króna og starfsmenn (árs-
verk) 53.249 eða um 41% af öllum
vinnumarkaðnum. Með öðrum orð-
um; meðallaun hvers starfsmanns í
öllum þessum fyrirtækjum voru 1.725
þúsund á ári eða um 144 þúsund á
mánuði.
Þegar á heildina er litið gefur rekst-
ur fyrirtækjanna árið 1993, sam-
kvæmt könnuninni, ótvírætt vísbend-
ingu um að hjól atvinnulífsins séu farin
að snúast ívið hraðar — og vonandi
verður þar framhald á.
Víkjum þá að starfsmannamálum.
40