Helgarpósturinn - 12.04.1995, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 12.04.1995, Blaðsíða 8
FJALLAHJÓL IvllÐvl KflU ÐWG0 FW2 ÚTBÚNAÐ- ARLISTAR DAGSFEROIR Fjallahjólið og nauðsyn- legir aukahlutir - Fjallahjól með a.m.k. 10 gírum •Ljós að framan og aftan •Brúsafesting •Vatnsbrúsi sem passar í brúsafestingu Aðrir aukahlutir •Bögglaberi að aftan •Taska eða töskur sem auðvelt er að festa á bögglaberann •Hnakktaska •Táklemmur með ólum Fatnaður •Skór með stífan botn og úr sterku efni •Vind®og vatnsheldar buxur •Vind®og vatnsheldur jakki •Hanskar eða grifflur með grip í lófanum •Ullarvettlingar •Vettlingahlífar •Hjálmur •Nærbolur •Treyja eða skyrta •Nærbuxur, stuttar eða síðar •Buxur, síðar og stuttar •Sokkar •Þunn lambhúshetta eða eyrnaband Æskilegur búnaður •Matur •Léttur skyndihjálparbún- aður •Hitabrúsi •Áttaviti •Kort af ferðasvæði •Hnífur •Vír •Snæri •Sólvörn Nauðsynleg verkfæri •Pumpa •Bætur •Dekkjaþvingur •Keðjuþvinga Æskileg verkfæri •Sexkantar, 2-6 mm •Fastir lyklar 8 og 10 mm og aðrir sem passa fyrir hjólið •Flatt skrúfjárn •Stjörnuskrúfjárn •Vírklippur •Keðjuhaldari •Keðjuolía Æskilegir varahlutir •Slanga •Bremsuvír •Gírvír •Bremsupúðar •Boltar og rær sem passa 2-3DAGA Ýmis búnaður •Tjald •Tjalddýna •Svefnpoki •Prímus •Eldfæri •Pottar og pönnur •Matur •Hnífur •Mataráhöld •Vatnsbrúsi sem passar i festingar •Hitabrúsi •Áttaviti •Kort af ferðasvæði •Vír •Snæri •Nál og tvinni •Sólvörn •Léttur skyndihjálparbún- aður •Ennisljós •Merkjabyssa •Ferðaútvarp Marinó Freyr Sigurjonsson i hjolreiðakeppm i Heiðmórk. Keppnishjólreiðar á íslandi Kannsld verðum m kanrodá við getum engu umpaðspáðS fyrr ena Marinó Freyr Sigurjónsson pumpaður um keppnishjólreiðar. Hvenœr byrjuðu menn að œfa hjðlkappreiðar á íslandi? „Það hefur verið svona upp úr 1980. Síðan fjallahjólin komu hafa verið haldnar nokkrar keppnir, sem fyrst voru skipu- lagðar af íslenska fjallahjóla- klúbbnum (ÍFHK) og Erninum. Keppnishald er nú komið að mestu á könnu Hjólreiðafélags Reykjavíkur — það var talin ástæða til að halda skipulagn- ingu keppna og ferðalaga aðskil- inni. Nú fara á hverju sumri fram nokkrar keppnir í fjallahjólreið- um. Það eru 30-40 manns sem taka þátt í þeim, svo þetta er töluverður fjöldi orðinn, sem keppir.“ Æfa menn stíft? „Ég held ég megi fullyrða, að hér sé mjög góður efniviður til staðar í hjólreiðum. En það er erfitt að æfa eitthvað af viti hérna á íslandi - sumrin eru það stutt. Á veturna verðum við að láta okkur nægja að æfa okkur inni á þar til gerðu æfingatæki, sem er eiginlega bara sérstakur standur fyrir götuhjól, sem þú situr þá á og æfir jóig. Núna er reyndar stórt verkefni í gangi í götuhjólreiðunum. í júní næst- komandi fara Smáþjóðaleikarnir fram í Lúxemburg. Nú ætla ís- lendingar í fyrsta sinn að senda landslið í hjólreiðakeppnina þar. Þetta verður fyrsta „alvöru“- hjólreiðakeppnin sem íslending- ar eiga opinbera fulltrúa sína í. Það verður fjögurra manna lið sem fer.“ Eru það sömu menn, sem æfa fyrir keppnir í fjalla- og götuhjól- reiðum? „Já, þetta eru allt sömu menn. Þeir eru jafnvígir á hvort tveggja." En hver er munurinn á þessum tveimur keppnisgreinum? „í fjallahjólreiðunum er það fyrst og fremst tækni og þol sem á reynir. Tæknin sem maður þarf að kunna til að keppa á götuhjóli er minni; aftur á móti eru farnar lengri vegalengdir á götuhjólun- um. Ef menn vilja stefna á að taka þátt í keppni eins og Tour de France eða Giro d’Italia, hvað þurfamenn þá að gera? Hefur ein- hver Íslendingur reynt það? „Það er náttúrlega draumur sérhvers metnaðarfulls kapp- hjólreiðamanns að komast í keppni eins og Tour de France, en það er ansi fjarlægur draum- ur. Það eru bara atvinnumenn sem komast í svona keppnir. Sá íslendingur sem ég held ég geti fullyrt að hafi náð lengst okkar er Pálmar Kristmundsson, sem æfði lengi í Danmörku. Hann þjálfaði okkur hérna síðasta sumar. í Danmörku er kapphjólreiða- mönnum skipt í klassa, einhvers konar deildir, eftir styrkleika: A, B, C og byrjendur. Pálmar komst upp í B-klassann, en til þess að geta gerst atvinnumaður og þar með komast í lið sem keppir í To- ur de France þarf maður að hafa náð toppklassa sem áhugamaður fyrst. Það var því langur vegur eftir.“ En hvar standa íslenskir kapp- hjólreiðamenn í alþjóðlegum samanburði? „Við vitum það ekki. Keppnin á smáþjóðaleikunum í sumar verð- ur fyrsta tækifærið til að komast að raun um það. Kannski verðum við síðastir, kannski fremstir, við getum engu um það spáð fyrr en á reynir. Nokkrir okkar hafa að vísu prófað að taka þátt í áhuga- mannakeppnum í Danmörku til dæmis og keppt þá í C-klassan- um. Þeir sem hafa reynt það hafa verið svona eitthvað fyrir ofan miðju. Einar Jóhannsson hefur náð verðlaunasæti — hann getur talist sterkasti hjólreiðamaður okkar í dag.“ En hvernig gengur að fjár- magna keppnishjðlreiðar hér á ís- landi? Fást styrktaraðilar auðveld- lega? „Það hefur gengið bærilega. Samkeppnin milli innflytjend- anna hjálpar okkur náttúrlega til þess.“ Að lokum: Hvað eru margir að æfa fyrir landsliðið sem œtlar til Lúxemborgar? Ert þú þar á með- al? „Það eru alla vega 6 manns að æfa fyrir þetta núna. Ingþór Hrafnkelsson til dæmis, sem hefur til þess betri aðstöðu í Noregi, þar sem hann er við nám. Hvort ég er að æfa mig fyrir þetta veit ég ekki. Kannski. Við sjáum til.“ ■ íslenski fjallahjólaklúbburinn *áwmm w m - r, i m i m y íhnad Kynning á starfsemi klúbbsins og spjall við formann hans. íslenski fjallahjólaklúbburinn var stofnaður í Þjóðgarðinum í Skaftafelli 5. júlí 1989, einu ári eftir að fjallahjól voru orðið fáan- leg hér í almennum reiðhjóla- verslunum. Upphaflega heyrðist ekki mikið frá klúbbnum og má segja að aðallega hafi aðeins borið á honum í gestabókum þeirra svæða sem Magnús Bergs- son og Gísli Haraldsson, frum- kvöðlarnir að stofun klúbbsins, fóru um á fjallahjólaferðum sín- um um landið. Merki klúbbsins var nú komið á stimpla og notað af þeim félögum líkt og hundur merkir sér stað: „Hér kom ég“. Þetta varð til þess að ýmsir fóru að taka eftir stimplinum og sýna því áhuga að ganga í klúbbinn. Ekki var það algengt að íslend- ingar hjóluðu um landið á þess- um tíma, og lentu þeir fáu, sem það gerðu, oft í spaugilegum uppákomum, eins og þegar menn voru afgreiddir á erlendu tungumáli á tjaldsvæðum eða í verslunum. Stórt vandamál klúbbsins við að koma málefnum sínum á framfæri á þessum tíma, var að almenningur var sokkinn í bull- andi einkabílavæðingu eftir „þjóðarsáttar“-lækkun tolla á bíl- um árið 1986. Ekki auðveldaði þetta ástand baráttu klúbbmeð- lima fyrir því að bæta stöðu reið- hjólsins í umferðinni gagnvart bílnum. Það gerðist síðan þann 27. apr- íl 1991, að boðað var til almenns fundar, þar sem línur voru lagð- ar í starfsemi klúbbsins. Fólk var kosið í nefndir og klúbbnum skipt í ferðadeild, sem sér um ferðamál, keppniskeild, sem sér um keppnishald, og umhverfisdeild, sem sér um umhverfis- og skipu- lagsmál. Þegar hér var komið sögu, voru klúbbfélagar um 100 talsins. Síðan þá hefur þeim fjölgað hægt og sígandi, eftir því sem starfsemin hefur aukist. Hjólreiðafélag Reykjavíkur (HFR) sér nú um starfsemi keppnis- deildarinnar. HFR er nú aðili að ÍBR og vinnur að því að efla hjól- reiðar sem íþrótt, bæði innan götu- og fjallahjólagreinarinnar. FERÐA- OG UMHVERFISMAL Þar sem keppnishald er nú að- allega á könnu HFR beinist nú- verandi starfsemi ÍFHK í ríkari mæli að ferða- og umhverfismál- um. Fyrsta þriðjudag hvers mán- aðar eru haldnir félagsfundir í Þróttheimum með myndasýning- um, námskeiðum og almennu spjalli. Gefið er út fréttabréfið „Hjólhesturinn" nokkrum sinn- um á ári, þar sem hægt er að finna fræðsluefni, ferðasögur og fréttir. Núverandi félagafjöldi er rúmlega 300 manns. Meginhluti starfseminnar fer auðvitað fram á sumrin, með ýmsum uppákom- um og ferðum sem flestir geta tekið þátt í — jafnvel þeir sem ekki eiga fjallahjól. Vetrarmán- uðirnir eru vel nýttir til að viða að sér efni um um- hverfis- og skipu- lagsmál í þágu hjólreiðamanna og koma því til skila til opin- berra aðila. ÍFHK er í sam- -+

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.