Helgarpósturinn - 12.04.1995, Blaðsíða 9
ógnað af bílum nánast á hverjum
einasta degi. Það er til dæmis
mjög algengt, að stöðvunarlínur
við gatnamót séu við gangbraut,
en bílarnir fara alveg upp að
gatnamótunum og stansa iðu-
lega ofan á gangbrautinni. Sama
sagan er þar sem umferðarljós
eru bæði við og handan við
gatnamót, þar aka bílarnir fram
fyrir fyrstu ljósin, alveg að gatna-
mótunum, þannig að bílstjórarn-
ir sjá ekki ljósin sem eru við
gatnamótin heldur eingöngu
ljósin andspænis. Það nægir
þeim, en þeir setja með þessu
öryggi hjólandi og gangandi veg-
farenda í stórhættu. Það hefur
að vísu ýmislegt gerst á síðustu
tveimur árum eða svo til batnað-
ar fyrir aðstöðu hjólreiðamanna
í Reykjavík, en enn er langt í land
til að vel sé. Stórbót er til dæmis
að lagningu stígs alla Ieið fyrir
flugvöllinn og með ströndinni.
Nú er hægt að velja um tvær til
þrjár leiðir ofan úr Breiðholti og
Árbæ, en Grafarvoginn vantar
ennþá hjólreiðavegartengingu
við miðbæinn. Lagning hans er
orðin mjög brýnt verkefni. Nú
stendur til að setja brú á
Kringlumýrarbrautina og verð-
ur þar með mögulegt að ferðast
á reiðhjóli alla leið frá Seltjarn-
arnesi upp í Heiðmörk án þess
að neyðast til að fara um
hættuleg gatnamót. Enn vant-
ar stíga suður í Hafnarfjörð,
en það stendur víst líka til
bóta. Barátta okkar fyrir
bættri aðstöðu tii hjólreiða
á höfuðborgarsvæðinu virð-
ist því vera að skila ein-
hverjum árangri núna.“ ■
■ Póstfang klúbbsins er: íslenski
fjallahjólaklúbburinn, Pósthólf 5193,
125 Reykjavík. Sími/Fax: 562 0099.
Hjólieiðar reyna á Kýólið
Þó að Mongoose fjallahjólin komi frá Kaliforníu hafa þau þegar sannað ágæti sitt við ís-
lenskar aðstæður. Þau komust jafn áreynslulaust yfir Vatnajökul og þau renna lipurt niður
Bankastræti dag hvern.
Með því að eiga hjól slærð þú tvær flugur í einu höggi. Hjólreiðar gefa mjög góða alhliða
líkamsþjálfun, jafnvel þótt hjólað sé eingöngu styttri vegalengdir, eins og til og frá vinnu.
Auk þess veita hjólin fjölskyldu þinni ótal tækifæri til hressandi og uppbyggilegrar útiveru.
Við hjá GÁP rekum stóra verslun ásamt fullkomnasta reiðhjólaverkstæði landsins og höld-
um reglulega námskeið í viðhaldi og meðferð fjallahjóla. Við erum þekktir fyrir sveigjan-
leika og iipurð í þjónustu. Okkar stefna er að verðið á hjólinu sé aldrei stærsta hindrun
hjólreiðamannsins.
varist fiallahjólalíkingar Kynntu þér málið.
GA?
PERFORMANCE BICYCLE8 ^
G. Á. Pétursson hf.
Fjallahjólabúðin, Nútíðinni, Faxafeni 14, sími 68 55 80
m
FJALLAHJOL
EKKI B A R A Tll FJALLA
ATBURÐA-
ALMANAK
ÍFHK1995
14.-17. apríl
Óvissuferð um suðvestur-
horn landsins, reynt að þefa
upp vorilm.
1. maí
Tökum þátt í hátíðarhöldum
- dagsins og fylkjum liði á
hjólum niður I bæ.
2. maí
Myndasýning og almennar
umræður í Þróttheimum kl.
20.00.
21. maí
Hjólreiðadagurinn. Allir I há-
tíðarskapi, hjólandi niður í
Laugardal.
27. maí
Brandur og byrjendurnir.Létt
ferð um nágrenni Reykjavík-
ur.
2. - 5. júní
Hvítasunnuferð í Skorradal.
Tjaldferð.
6, júní
Myndasýning og námskeið í
ferðamennsku á hjólum í
Þróttheimum.
11. júní
Brandur og byrjendurnir.
Létt ferð niður að Reykjavík-
urhöfn.
16.-18. júní
Hjólað til Þingvalla og geng-
ið þar á fjöll þann 17. júní.
Tjaldferð.
23.- 25. júní
Hjólað í miðnætursól um
nágrenni Akureyrar.
30. júní - 2. júlí
Skarðsheiðarferð. Hjóla-
ganga á Skessuhorn. Tjald-
ferð.
4. júli
Myndasýning og almennar
umræður í Þróttheimum kl.
20.00
7, - 9. júií
Hagavatnsferð. Gist í tjaldi
eða skála.
14. -16. júlí
Hjólað um nágrenni Egils-
staða.
23. júlí
Brandur og byrjendurnir.
Hjólað um nágrenni Reykja-
víkur.
28. - 30. júlí
Fjallahjólamót í Skorradal.
Gist í tjaldi eða skála.
I. ágúst
Myndasýning og almennar
umræður í Þróttheimum kl.
20.00.
4. - 7. ágúst
Svaðilför víðs fjarri bílaum-
ferð og skarkala helgarinn-
ar.
18.- 20. ágúst
Hlöðuvallaferð. Hálendisferð
I nágrenni Reykjavíkur.
Skálaferð.
27. ágúst
Brandur og byrjendurnir.
Hjólað um nágrenni Reykja-
víkur.
5. sept.
Myndasýning og almennar
umræður í Þróttheimum kl.
20.00.
8, -10. sept.
Fjallabaksferð. Hjólað frá
Landmannalaugum um
Krakatindsleið. Skálaf.
15. -17. sept.
Óvissuferð. Reynt að slíta
hár úr hala sumarsins sem
er að kveðja.
22. -24. sept.
Haustlitaferð út í óvissuna.
Tækifæri Ijósmyndafíkla.
3. okt.
Myndasýning og almennar
umræður í Þróttheimum kl.
20.00.
20.-22. okt.
Óvissuferð.
7. nóv.
Aðalfundur.
II. nóv.
Uppskeruhátíð 1995.
Klúbbmeðlimir eta ok
drekka og verr glaðirr.
5. des.
Myndasýning og almennar
umræður í Þróttheimum kl.
20.00.
22. des.
Sólstöðuhátíð. Fögnum rís-
andi sól og horfum glað-
beitt fram á nýtt hjólaár.