Helgarpósturinn - 08.05.1995, Qupperneq 8
FRETTIR
Ivl'A'N (!) ÐWGiy R*8
Lögfræöingurinn Haraldur Jónasson, formaður Félags
íslenskra hugvitsmanna
fáránlegar hugmyndir
Brotnaði a
baðum on
hannaði Dað
með dyrum
•„Hugvitsmenn hafa verið álitnir geggjaðir eða í
besta falli sérvitringar," segir Haraldur Jónasson,
formaður Félags íslenskra hugvitsmanna. „Við vilj-
um breyta þessari ímynd og koma íslensku hugviti á
framfæri þannig að það sé til gagnsemi fyrir þjóðfé-
lagið. Hingað til hafa þó ekki margir sýnt því áhuga
nema þá einstaka heiðursmenn."
Haraldur, sem er lög-
fræðingur að mennt, seg-
ir að brýn nauðsyn kalli
oft á bestu hugmyndirn-
ar, en hann vinnur nú að
því að þróa hugmynd
sem hann fékk þegar
hann brotnaði á báðum
öxlum og vantaði þá til-
finnanlega baðkar sem
hann gæti notað þrátt fyr-
ir þessa fötlun. „Það eru
ekki til nema rándýr
sjúkraböð til að mæta
þessu, sem er skrítið mið-
að við hvað margir eiga í
þessum erfiðleikum,
bæði aldraðir, slasaðir,
hreyfihamlaðir og offitu-
sjúklingar," segir Harald-
ur. Hann ákvað að bæta
úr þörfinni og hannaði
baðkar með dyrum sem
viðkomandi gengur inn í
og lokar á eftir sér. Það
hljóta að fylgja því ýmis
óþægindi að þurfa að
sitja í baðinu bæði meðan
rennur í það og eins þeg-
ar rennur niður úr því aft-
ur, en Haraldur segir að
það mál sé hægt að leysa
með því að víkka frá-
rennslis- og aðrennslis-
lagnir. „Svo getur maður
bara setið með hand-
klæði yfir öxlunum og
beðið eftir að baðið fyll-
ist.“
En það er ýmislegt ann-
c„Hugvitsmenn
eru ekki geggjaðir
sérvitringar.“
að á prjónunum hjá Har-
aldi, tií dæmis varnar-
vopn. „Ég er að hanna
vopn sem drepur ekki,
heldur stuggar hættunni
burt, og fórnarlambið
getur mætt til vinnu dag-
inn eftir eins og ekkert
hafi í skorist. Það er at-
hyglisvert að í löndum
eins og Bandaríkjunum,
þar sem byssueign er
jafnmikil og raun ber
vitni og aðallega hugsuð
til sjálfsvarnar, er ekkert
vopn aðgengilegt fyrir al-
menning nema það sem
drepur. Þetta gæti verið
öryggistæki fyrir þá sem
finnst þeir ofsóttir eða
minni máttar án þess að
það hefði ömurlegar af-
Íeiðingar eins og manns-
lát í för með sér.“ Að lok-
um sagði Haraldur að
snjöllustu hugmyndirnar
væru oftast sáraeinfaldar
og jafnvel hlægilega aug-
ljósar í fyrstu. Þegar slíkt
kæmi upp þá vissi hug-
vitsmaðurinn að hann
væri dottinn niður á eitt-
hvað gott.B
Höskuldur Höskuldsson með minnsta
geisladisk sem komiö hefur út hér-
lendis. Þvermálið er aðeins 7,5 sm.
hljómsveitum þegar vel liggur á
mér en er ekki með neina
stjörnudrauma.“B
•„Það er alltaf gaman að vera fyrstur í einhverju," segir Höskuld-
ur Höskuldsson, kynningarfulltrúi hjá Spori. Nýverið gaf hann út
fyrstu smáskífuna sem kemur út í formi geisladisks á íslandi.
„Ég fékk þessa flugu í höfuðið
og gerði diskinn í tilefni af þrí-
tugsafmælinu mínu 20 apríl.
Eg er að toppa þá poppara
sem gáfu út 25 ára afmælisplöt-
ur á síðasta ári,“ segir Höskuld-
ur, en tekur fram að hann sé
bara að grínast svo hann særi
nú engan af goðsagnapoppurum
þjóðarinnar á.
Á diskinum syngur Höskuldur
lagið Lóa litla á Brú, sem Haukur
Morthens gerði ódauðlegt á sín-
um tíma, en upprunalega er lag-
ið komið frá Elvis Presley og hét
Why Don’t You Wear Ring Aro-
und Your Neck í ensku útgáf-
unni. Lagið er einnig í „instru-
mental" gerð á diski Höskuldar
og getur því hver sem er spreytt
sig á að syngja það, en Máni
Svavarsson endurútsetti lagið.
Aðspurður um hvort eigi að
fylgja skífunni eftir með ein-
hverjum hætti segir Höskuldur
að svo sé ekki.
„Ég ætla að hætta á toppnum.
Þetta er fyrst og fremst til gam-
ans gert og húmorinn er í þessu
frá A til Ö. Ég hef tekið lagið með
en þeir hafa orðið uppvísir að
svipuðum árásum áður. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
ég hef fengið er víst ósköp iítið
hægt að gera í málinu," segir
hún. „Manni finnst voðalega
skrítið, þegar börn gera svona,
að foreldrarnir skuli ekki ráða
betur við þau. Maður hugsar
bara með hryllingi til þess
hvernig þetta gæti orðið þegar
þeir verða unglingar.
Þetta hefur haft þau áhrif á
mig að ég er miklu hræddari um
strákinn. Ef hann er eitthvað
lengur úti en hann segist ætla
að vera þá hef ég meiri áhyggjur
af honum en áður.“
Þuríður segir erfitt að benda á
einhverja ákveðna lausn í mál-
um af þessu tagi en telur æski-
legt að opinberir aðilar grípi inn
í og sendi viðkomandi ofbeidis-
seggi til sálfræðingsH
sönnuð í málinu.
„Það eru tveir drengir grunað-
ir um að hafa verið hér að verki
Guðjón Þór Magnússon
9 ára og Þuríður Pét-
ursdóttur móðir hans.
Tveir drengir réðust á
Guðjón og börðu hann
með spýtu með þeim
atleiðingum að hann
handleggsbrotnaði og
hlaut heilahristing.
•„Eg missti eina tönn, en það var allt í lagi því það var barna-
tönn. Nokkrar aðrar tennur losnuðu en núna eru þær orðnar
fastar aftur," segir Guöjón Þór Magnússon, 9 ára. í marsmánuði
réöust tveir drengir á hann og börðu með spýtu fyrir utan versl-
unarmiðstöðina í Hólagarði í Breiðholti með þeim afleiðingum
að hann hann hlaut ýmiskonar áverka og heilahristing.
„Vinstri handleggurinn brotn-
aði, en núna er ég laus úr gifsinu
og bara með teygjubindi,” segir
Guðjón, en hann var fluttur á
slysadeild þar sem gert var að
sárum hans.
„Ég veit ekki hverjir strákarnir
eru sem réðust á mig en ég held
að þeir eigi heima í Fellunum. Ég
hef ekki séð þá aftur og hræðist
ekkert að vera einn úti á daginn
en passa mig á að vera kominn
heim snemma á kvöldin.“
Aðdragandinn að árásinni var
sá að Guðjón átti leið í Hólagarð
í Breiðholti, þar sem hann hitti
tvo pilta sem hann hafði aldrei
séð áður. Eftir stutt orðaskipti
fóru þeir að rífast og annar
piltanna tók upp spýtu og
barði Guðjón með henni. Hann
lagði á flótta en piltamir eltu
hann og létu höggin dynja á
honum. Guðjóni tókst við illan
leik að komast inn á mynd-
bandaleigu og lögreglan kom á
vettvang skömmu síðar. Þuríður
Pétursdóttir, móðir Guðjóns,
kærði árásina, en henni er ekki
kunnugt um að sekt hafi verið
c „Manni finnst
voðalega skrítið,
þegar börn gera
svona, að foreldrarn-
ir skuli ekki ráða
betur við þau. Maður
hugsar bara með
hryllingi til þess
hvernig þetta gæti
orðið þegar þeir
verða unglingar.