Helgarpósturinn - 08.05.1995, Side 16

Helgarpósturinn - 08.05.1995, Side 16
ÍÞRÓTTIR M rA' N 0 BWG UJ R*8 Hugur i Gri Mikii eftirvænting er''í Grindavík vegna íslands- niótsins í fótbolta, en Grindavík á í fyrsta sinn lið í fyrstu deild. Talsverð bjartsýni ríkir uni að lið- inu gangi vel í keppninni. Stuðningur bæjarbúa er mikill og segja heima- menn að Luka Kostic þjálf- ari sé ekki bara að gera góða hluti með liðið, heldur hafi honum einnig tekist að virkja bæjarbúa til mikils stuðnings. Luka ætlar ekki að spila með í sumar. Þó er reikn- að ineð að hann leiki ef Luka Kostic mikið iiggur við eða ef leikmenn verða óheppnir með meiðsii eða leik- bönn.B Langt Éan dryldðan hólst • Félagslið hérlendis hafa lengi tíökaö að selja áfengi í einni eða annarri mynd á kappleikjum sínum. Það skýtur því nokkuð skökku við að menn innan íþróttahreyfingarinnar skuli vera að býsnast yfir bjórsöluleyfinu á HM. Ef til vill hefðu forystumenn íþróttahreyfingarinnar átt að taka fyrr á þessum málum, því mörg íþróttafélög hafa náð sér í aukapening með sölu á áfengum drykkjum á kappleikjum. Dæmi um þetta er þegar stuðnings- mannaklúbbar koma saman fyrir ieik og í hálfleik í félagsheimilun- um, þar sem menn geta fengið sér styrkjandi drykki og styrkt félagið í leiðinni. íþróttafélög sem selt hafa áfengi á kappleikj- um eru til dæmis Valur, KR, ÍBV og Breiðablik. Ellert B. Schram, formaður ÍSÍ, sagði aðspurður í samtali við Póstinn að sér væri kunnugt um að að áfengi hefði verið veitt til- teknum lokuðum hópum í tengslum við leiki, en að hann vissi ekki til að áfengi væri selt almennum áhorfendum. Ellert sagði það skoðun sína og ISÍ að allar áfengisveitingar í tengslum við íþróttaleiki væru óviðeig- andi.É EllertB. Schram vissi af klíku- drykkj- unni. Sampras KLÁR í SLAGINN Hinn frábœrí tennisleik- arí Pete Sampras er nú óðum að ná sér eftir ökklameiðsl og hefur til- kynnt þátttöku í opna þýska meistaramótinu sem hefst í nœstu viku. Sampras œtlar að kom- ast í leikœfingu fyrir opna franska meistara- mótið sem hefst síðar í mánuðinum. Nú erþví orðið Ijóst að á mótinu í Þýskalandi verða níu af tíu stigaefstu tennisleik- urum heims á meðal þátttakendaM RUGLAR ALLT Fœra þarftvo leiki til á komandi íslandsmóti í knattspymu vegna þátt- töku ÍBK í Toto-keppn- inni. Leikirnir sem verða fœrðir eru leikur Fram og Keflavíkur, sem vera átti 25.júní en verður 23.júlí, ogleikur Leift- urs og Keflavíkur, sem vera átti 16. júlí en verð- ur leikinn 9. ágúst. And- stœðingar Keflavíkur- liðsins í Toto-keppninni verða frá Austurríki, Skotlandi og Frakk- landiM Ovíst um framtIo Helga hjá Stuttgart. Helgi úr gifsi Helgi Sigurðsson, knatt- spymumaður hjá Stuttg- art, er að ná sér eftir fótbrot. Hann er kominn úr gifsi og á að geta ver- ið farinn acI hlaupa eftir tíu daga. Þjálfaraskipti hafa orðið hjá félaginu og óvíst um framtíð Helga hjá þvíM Rfitur Rarklftu fiinhvern tíma leitt lift sitt til sigurs? •Spennan í NBA-deildinni fer sívaxandi. Hver leikur sem leikinn er táknar að styttri bið er í úrslitin sjálf og allir vilja sjá sína menn og sín lið í úrslitunum. Líklega vilja flestir þó sjá Charles Barkl- ey leika til úrslita með liði sínu Phoenix Suns. Fyrir tveimur árum tapaði Suns fyrir Chicago í mjög skemmtilegum úrslitaleikjum og margir bjuggust við liðinu tvíefldu; en meiðsli og almennt áhugaleysi hafði þau áhrif að liðið náði ekki að komast í úrslitin. Nú er hins vegar stóra spurningin hvort Charles Barkley nái að næla sér í titil í vor, því flestir líta svo á að þetta sé hans síðasta tækifæri. Barkley kom inn í deildina ár- ið 1984 og þótti þá ekki líklegur til stórafreka enda lítill og þybb- inn miðað við flesta aðra leik- menn (192 sm og 130 kg). Raun- in hefur hins vegar orðið sú að í dag er hann einn besti leikmað- ur deildarinnar og enginn efast um hæfileika hans inni á vellin- um. í gegnum tíðina hafa menn þó gagnrýnt hann fyrir hegðan hans utan leikvallar og spurt þeirrar spurningar hvort hann hafi þann persónuleika sem nauðsynlegur er til að leiða lið til sigurs. Þegar hann var í Phila- delphia átti hann erfitt með að sætta sig við slæmt gengi liðsins og varð því algjör pest fyrir fé- laga sína og forráðamenn liðs- ins. Þegar honum var loksins skipt til Phoenix tók ferill hans fjörkipp og síðan þá hefur hann náð sínum besta árangri. Barkley er hraðlyginn og mik- ill spaugfugl og fátt elskar hann jafnmikið og að ljúga að blaða- mönnum. Hann hefur það t.d. fyrir reglu að ljúga um meiðsli sín og segir alltaf að þau séu mun alvarlegri en raunin er. Svo að segja í hvert skipti sem hann ^missir úr leik vegna meiðsla Barkley að segja dómara frá skoðunum sínum. Erfið bakmeiðsli hafa háð Barkley. Sjálfur segist hann vera betri í golfi en körfubolta. tekst honum að ljúga að ein- hverjum blaðamanni að hann þurfi að fara í uppskurð og ferill hans sé á enda. Hann er einnig gjarn á að vera óvarkár í orðum þannig að oft skapast hin mestu hneyksli vegna ummæla hans. Eitt sinn sagði hann við blaða- menn í Fíladelfíu: „Þetta var svona leikur sem gerir það að verkum að maður vill fara beint heim og lemja konuna sína.“ Allt varð vitlaust og þúsundir bréfa bárust frá konum og kvenrétt- indasamtökum. í vetur reyndi franskur fréttamaður að ná tali af Barkley eftir leik og Barkley sagði yfir allan salinn: „Hver fjandinn, það er nógu slæmt að þeir skuli vera farnir að hleypa kvenfólki hingað inn, nú hleypa þeir inn útlendingum. Hvað kemur næst?“ í vetur var hann spurður hvort það skipti hann miklu máli að vinna meistaratit- ilinn nú í vor. Barkley svaraði: „Ef við erum nógu góðir, þá vinnum við. Ef við erum það ekki, þá vinnum við ekki. Þetta verður allt í lagi á hvorn veginn sem er. Heimurinn verður ekki betri staður og það leysir engin vandamál [ef við vinnum]. Ég held að sólin rísi aftur. Ekki spurning; ég verð annaðhvort fullur í allt sumar af fögnuði eða fullur allt sumarið til að drekkja sorgunum." Eins og skiljanlegt er falla svona staðhæfingar ekki vel að þeirri ímynd sem foreldr- ar vilja að börnin taki sér til fyr- irmyndar, enda hefur Barkley alla tíð verið ötull við að lýsa andúð sinni á hetjudýrkun. Hann skilur ekkert í því að ungir krakkar líti meira upp til karla sem geta troðið flott og skorað þriggja-stiga körfur en foreldra sinna sem leggja hart að sér við vinnu allan daginn. Eitt af því sem Barkley hefur um nokkurt skeið strítt blaða- mönnum með er að hann ætli að bjóða sig fram sem fylkisstjóri Alabama. Þegar hann var spurð- ur hvað hann ætlaði að gera sem fylkisstjóri svaraði hann: „Bara — æ leyfðu mér að vera í friði. Ekki neyða mig til að hugsa í dag.“ Eins og sést er Barkley langt frá því að vera venjulegur íþróttamaður. Hann segir það sem hann hugsar og gerir óspart grín af trúgirninni í fólki. Það eru þó ekki bara yfirlýsing- ar hans við blaðamenn sem hafa valdið fjaðrafoki. Hann hefur oft- ar en nokkur annar leikmaður verið rekinn af velli (22 sinnum) og fengið flestar tæknivillur sem leikmaður hefur fengið í sögu deildarinnar (223 í byrjun síð- asta tímabils). Barkley hefur lent í slagsmálum á skemmti- stöðum og var í hitteðfyrra kærður fyrir að nefbrjóta mann á krá í Miiwaukee. Maðurinn vildi komast að því hvort Barkl- ey væri eins harður og hann gef- ur sig út fyrir að vera og komst að raun um hið sanna. Fiestir eru þó sammála um að gott sé að vera með Barkley í liði. Hann á það til að vera með læti þegar illa gengur en þegar liðið hefur meðbyr eru fáir betri að ýta undir hann en Sir Charles.ÉJ

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.